Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 44
Á
slaug er hjúkrunar- og kynfræðingur segir að kynlíf
brúðhjóna á brúðkaupsnóttunni sé mjög misjafnt og
kannski ekki svo líklegt að það verði alltaf eins gott og
þegar fólk gefur sér góðan tíma til þess og er afslapp-
að og minna þreytt.
„Ég tel samt góða hugmynd að skipuleggja kynlífið á brúð-
kaupsnóttina eins og annað sem skiptir máli á stóra daginn. Það
gerir væntingar um kynlífið á brúðkaupsnóttina raunhæfar. Það
er svo gott ráð að ræða kynlíf í hjónabandinu, hvernig maður vill
hafa það, eins og allt annað í samböndum.“
Gott kynlíf ekki sjálfgefið
Er gott kynlíf á brúðkaupsnóttina vísbending um gott hjóna-
band? „Ekki endilega. Ég held að kynlíf á brúðkaupsdaginn segi
voðalega lítið til um kynlíf í hjónabandinu þegar lengra er liðið í
sambandinu. Ég tel hins vegar það að bíða með kynlíf lengi eftir
athöfn ekki góða byrjun. En ég tel úrelta hugsun að leggja of
mikla áherslu á kynlífið á brúðkaupsnóttina, enda er fólk flest
ekki að sofa hjá í fyrsta skiptið og að mörgu að huga fyrir brúð-
kaupið. En í brúðkaupsundirbúningi þarf líka að huga að kynlíf-
inu, hvort sem það gerist svo á brúðkaupsnóttina eða morguninn
eftir brúðkaup. Það þarf að sinna öllu því sem við viljum að dafni
vel í hjónaböndum. Ég velti því stundum fyrir mér hvort það geti
verið að um helmingur hjónabanda endi með skilnaði, vegna þess
að við vanrækjum sambandið og kynlífið í samböndum?“
Hún segir að fólk þurfi að taka ábyrgð á eigin kynlífi. „Þú ættir
aldrei að láta það vera á ábyrgð maka þíns að koma þér til. Eins
ætti maki þinn ekki að vera með það á sínum herðum. Til að upp-
lifa gott kynlíf þarftu að taka ábyrgð, vita hvað þú vilt og biðja um
hlutina. Þora að ræða, vera opin og prófa nýja hluti.“
Við erum nakin og berskjölduð
Af hverju er kynlíf áskorun? „Ég held að það sé vegna óraun-
hæfra væntinga okkar m kynlíf. Fjölmiðlar, bíómyndir og aðrir
miðlar sem við sjáum og heyrum gefa oftar en ekki skakka
mynd af kynlífi í samböndum. Svo er líklegt að kynlíf
vefjist fyrir okkur vegna þess að þá erum við líklega
hvað mest berskjölduð. Við erum jú oft allsber í
kynlífi.“
Ætti fólk að gera samning um kynlíf í hjóna-
böndum? „Já, hvort sem það lítur á það sem
samning eða ekki skiptir kannski ekki öllu máli
en að ræða um kynlífið sem part af hjúskapar-
sáttmálanum er góð hugmynd. En eins og alla
samninga þarf svo að endurskoða og endursemja
um kynlífið. Það er ágætt að ræða hvar fólk er statt,
hversu ánægt það er og hvað má gera til að bæta kyn-
lífið, ef þörf er, á árs fresti. Þá er brúðkaupsafmælið ágætis
dagur til þess.“
Hvernig gæti sá samningur litið út? „Fólk gæti skráð hjá sér
markmið fyrir kynlífið fyrir hvert ár í hjónabandinu, hversu oft
ætlar það að fara á stefnumót, hversu oft á ári ætlar það að prófa
eitthvað nýtt í kynlífinu, hvenær hægt er að eiga barnlausa helgi
þetta árið o.s.frv. Þegar við setjum okkur markmið og höfum þau
skýr er líklegra að við náum þeim.“
Hversu ofarlega á lista ætti kynlíf að vera? „Það er auðvitað
persónubundið hversu mikið fólk leggur upp úr kynlífi. En flest
fullorðið fólk hefur áhuga á að stunda kynlíf og finnur að það ger-
ir sambandinu gott. Snertingar og nánd eru manneskjunni nauð-
synlegar svo hún dafni. Kynlíf snýst um snertingar og ætti því
ekki að vera vanrækt.“
Kynlífið á
brúðkaups-
nóttina
Thinkstock
Að setja sér markmið um kynlífið í hjóna-
bandinu er góð leið að mati Áslaugar.
44 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
– MONOGRAPH –
Þá er næsta skref að útbúa brúðargjafalista hjá okkur.
Við gefum brúðhjónum gjafabréf fyrir
15% af andvirði þess sem keypt er af listanum.
Er brúðkaup
í vændum?
· Gera raunhæfar væntingar
· Setja mörk
· Vita hvað maður vill
· Taka ábyrgð á eigin kynlöngun
· Skipuleggja kynlífið
· Leyfa óvæntum hlutum að gerast
Áslaug mælir ekki með að
· Trúa því að kynlífið reddist eða gerist fyrir töfra ást-
arinnar
· Halda að maki þinn lesi hugsanir
· Halda aftur af því að ræða það sem þig langar
Áslaug mælir með að
Áslaug
Kristjánsdóttir
Brúðkaupsnóttin er vanalega eitthvað sem fólk sér í hillingum.
Spurningin er hins vegar sú – hvernig er þetta vanalega hjá fólki á
stóra daginn? Áslaug Kristjánsdóttir sérfræðingur situr fyrir svörum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is