Morgunblaðið - 05.04.2019, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 05.04.2019, Qupperneq 45
FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 MORGUNBLAÐIÐ 45 Silfurbrúðkaup, stórafmæli, skírn eða stúdents- veisla? Harpa býður upp á sali, herbergi og rými af öllum stærðum og gerðum – fyrir öll tilefni. Nánar á harpa.is/veislur Brúðkaupið á heima í Hörpu E lísa er eigandi blóma- og gjafa- vöruverslunarinnar Fjögurra árs- tíða. Með versluninni langaði hana að skapa blómaverslun í takt við hverja árstíð sem væri ólík því sem fyrir væri í landinu. Margir leita til hennar þegar brúðkaup stendur fyrir dyrum, enda býður hún upp á öðruvísi afskorin blóm, einstaka vendi og mikið úrval af plöntum og fallegum pottum. Hvernig brúðarvendi ertu að gera núna? „Ég er að gera mjög fjölbreytta vendi – allt frá hefðbundnum kúluvöndum yfir í óhefð- bundnari vendi. Vinsælast hjá okkur um þessar mundir eru villtari vendir og meira um liti, þeir eru lausari og bland- aðri, það sem ég kalla „wild flower look“.“ Hvað er vinsælast í skreytingum í ár? „Það vinsælasta í borðskreytingum eru renn- ingar (e. long runner). Í slíkt eru valin alls konar blóm og greinar. Þá verða æ vinsælli blómaskreytingar fyr- ir ofan borð, í krónum og bitum, ef salurinn býður upp á það. Minni skreytingar í glervösum sem leika um borðin eru alltaf vinsælar og fallegar.“ Hvernig vinnur þú með brúðhjónum? „Ég á yfirleitt fund með brúðhjónum áður en við ákveðum hvaða blóm skal nota. Það fer allt eftir óskum þeirra og í samráði við mig. Vöndurinn er yfirleitt valinn fyrst og oft er gott fyrir mig að sjá mynd af brúðar- dressinu, en ég hanna vöndinn út frá honum og brúðinni. Ákvörðun um aðrar skreytingar fylgir svo á eftir.“ Hvað áætlar maður mikið í kostnað við blómaskreytingar í miðlungsstóra veislu? „Það er mjög misjafnt, eftir því hvort ein- göngu er tekinn brúðarvöndur eða til að mynda skreytingar á köku og bíl og barm- blóm og hversu umfangsmiklar skreyting- arnar eru.“ Elísa er á því að maður ætti alltaf að hafa lifandi blóm í veislum; það geri mikið fyrir veisluna og alla umgjörð. „Að fegra með blómum og fallegum mun- um í kringum mig hefur einnig alltaf verið ástríða mín og stór hluti af mínu lífi.“ Spurð um uppáhaldsblóm segist Elísa heillast af ólíkum og einstökum blómum á hverjum árstíma. Eru til blóm fyrir hverja árstíð? „Já, svo sannarlega, t.d. amaryllis um jól, bóndarós á sumrin, ranaculus og laukblóm að vori og berjagreinar og strá á haustin.“ Það sem er í boði í Fjórum árstíðum breytist reglulega og því mælir Elísa með að fólk sé duglegt að fylgja versluninni á samfélagsmiðlum – til að upplifa og sjá hvort eitthvað af því sem er í boði fellur að smekk þess. Möguleikarnir virðast enda- lausir þegar kemur að blómum, sem geta svo sannarlega verið form listar í fallegum veislum. Elísa Ó. Guðmundsdóttir blómahönnuður og fagurkeri segir að í hverri brúðarveislu ættu að vera lifandi blóm; það gefi tóninn í veislunni. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Saga Sig Listrænt form blóma Stórir brúðar- vendir með villtum blómum eru vinsælir um þessar mundir. Morgunblaðið/Hari Elísa kann hvergi betur við sig en í blómahafi þar sem listsköpun hennar nýtur sín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.