Morgunblaðið - 05.04.2019, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
J
apanski tiltektarsnillingurinn Marie Kondo fer eins
og stormur um heiminn með heimspeki sína sem
fjallar í stuttu máli um að einfalda lífsstílinn, minnka
dótið á heimilinu og halda einungis í það sem veitir
ánægju.
Almenn ánægja er með þessa aðferð, en það sem færri vita
er sú staðreynd að stundum verða hlutirnir verri áður en þeir
frærast í betra horf.
Maðurinn með þráhyggju vegna Marie Kondo
Dæmi um þetta má finna á vef Red Tricycle.
Jenny Jurica segir frá því í pistli þegar maðurinn hennar
vaknar einn daginn og finnur ekkert hreint eða fínt að
klæðast.
„Hann var mikill ruslari í eðli sínu og sérfræðingur í að
forðast það að taka ábyrgð á heimilinu. Þennan morgun benti
ég honum góðlátlega á bók Marie Kondo.“
Til að gera langa sögu stutta þá fjallar greinin um stig-
magnaða þráhyggju eiginmannsins vegna bókarinnar.
„Þessi þráhyggja fór rólega af stað og örlaði í fyrstu ein-
ungis á ráðum í hennar anda þegar eitthvað fór úr skorðum
heima. Sem dæmi kom hann eitt skiptið að mér að slást við
plastílát sem áttu sér hvergi stað í eldhússkápunum. Það var
þá sem hann spurði mig í fyrsta skiptið: Veita þessi ílát þér
ánægju? Ég áttaði mig skyndilega á því að hann var ekki að
grínast. Hann hélt áfram að vera sjálfskipaður sérfræðingur
tiltektar á heimilinu, með því að lána mér ráðin sín óumbeðinn
þegar eitthvað kom upp á.“
Það sem fyllti mælinn
„Það sem fyllti mælinn hjá mér var þegar hann stakk upp á
því að við (ég) myndum brjóta þvottinn öðruvísi saman. Þann-
ig kæmum við (ég) honum betur fyrir. Þetta var kornið sem
fyllti mælinn minn – það var ég sem sá um þvottinn, ég sem
gerði þetta á þennan hátt. Hvað var hann (eða hún) að ryðjast
svona inn á mitt svæði?
Frá því við giftum okkur hafði maðurinn minn sett sirka
einu sinni í þvottavélina og stóð síðan yfir mér með sjálfs-
hjálparbók sem átti að leysa öll heimsins vandamál á einu
bretti.“
„Sem betur fer héldum við áfram og síðan var eins og töfrar
Marie Kondo tækju yfir. Yfir heimilið okkar færðist meiri ró
og friður. Maðurinn minn hætti sem betur fer að spyrja mig
hvað veitti ánægju og fór að taka þátt sjálfur í að gera verkin
með mér. Ég verð alltaf þakklát fyrir það enda eðlilegt að allir
taki þátt. Við erum samheldnari hjón og ég viðurkenni nú fús-
lega að sjálfshjálparbækur geta hjálpað. Þetta hefur kennt
mér að maður skyldi vanda sig við um hvað maður biður.“
„Hvernig Marie
Kondo nánast
rústaði hjónabandinu“
Hver hefur ekki heyrt af KonMari-aðferðinni sem er að hafa ótrúleg
áhrif á heimili og hjónabönd um víða veröld? Almennt er talað vel um
aðferðina en það sem færri vita er sú staðreynd að í breytingum geta
hjónabönd stundum orðið verri áður en þau verða betri.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Hin japanska
Marie Kondo
er orðin
þekkt um
víða veröld.
AFP
Þakklæti
Eitt af því fyrsta sem Marie Kondo gerir áður en hún kennir KonMari-
aðferðina áfram er að krjúpa á kné og hugleiða þakklæti. Hún gerir
þetta til að heilsa húsinu og minna húsráðendur á að heimilið er skjól
fjölskyldunnar. Það sameinar og verndar.
Framtíðarsýn
Hjón ættu að leitast við að sjá framtíðina fyrir sér saman. Rusl og dót á
ekki að hindra fólk í að upplifa drauminn. Eins og eitt par áttaði sig á eftir
tiltekt, að allan tímann voru þau með pláss fyrir eitt barn í viðbót eins og
þau hafði bæði dreymt um.
Ábyrgð
Það er mikil vinna fólgin í því að halda heimili. Slík vinna ætti aldrei að
vera á herðum eins aðila. Allir þurfa að vera þátttakendur á heimilinu og
taka ábyrgð. Því það er heiðarlegt, heilbrigt og uppbyggilegt fyrir alla.
Minningar
Kondo er á því að það eigi að njóta þess sem veitir ánægju. Sem dæmi
um það eru brúðkaupsmyndir. Þær ættu að vera uppi á vegg og minna
hjón á tilgang hjónabandsins, uppruna þess og ánægjustundir.
Ráð Marie Kondo
fyrir hjónabandið
AFP
KonMari aðferðin
hvetur alla
fjölskylduna til
þátttöku og gerir
hjónabönd betri
að mati margra.