Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 32
inn væri að fá þær lausnir sem
honum fannst vanta. Þegar við
vorum búin að vinna með þessum
tveimur veitingastöðum náið í
nokkra mánuði varð eftirleikurinn
miklu auðveldari því við vorum
komin með svo magnað kerfi.“
Allir veitingastaðirnir sem eru
hluti af Dineout nota sama kerfið
sem þau bjuggu til. Þau byrjuðu að
innleiða kerfið á veitingastaðina
í ágúst í fyrra og opnuðu heima-
síðuna sína þegar þau voru komin
með 40-50 staði. „Auðvitað tekur
þetta allt tíma og við erum að
innleiða og kenna á kerfið ásamt
því að þjálfa starfsfólkið. Við
þjónustum veitingastaðina alveg
frá a til ö,“ segir Inga Tinna. Ásamt
heimasíðunni mun snjallsímafor-
ritið þeirra koma út eftir nokkrar
vikur. „Það er nánast tilbúið en
það er aðeins verið að fínpússa
það,“ segir Inga Tinna. Dineout
snjallsímaforritið verður auðvelt
í notkun og einstaklega sniðugt.
„Þar verður „memory“ yfir þína
uppáhaldsstaði sem þú hefur verið
að bóka á og þú sérð hvort það sé
laust þar eða ekki. Einnig getur þú
stillt það þannig að þú sjáir hvar
sé laust nálægt þér. Þú getur leitað
alveg eftir þínum þörfum, hvort
sem þú ert grænmetisæta eða ekki,
á leiðinni í bröns eða kvöldmat.“
Eins og staðan er núna eru flest-
allir veitingastaðirnir á höfuðborg-
arsvæðinu en þau eru byrjuð að
þreifa fyrir sér á landsbyggðinni.
„Mikilvægt er að veitingastaðir
og viðskiptavinir þeirra á lands-
byggðinni noti sömu tækni,“ segir
Inga Tinna.
Út að borða og
beint á tónleika
Dineout og Tix.is ætla að sam-
eina krafta sína á næstu vikum og
aðstoða fólk við að gera kvöldið
sitt ennþá betra. „Fólk sem er að
bóka viðburð í gegnum Tix.is
getur bókað borð fyrir eða eftir
viðburð á veitingastöðum nálægt
viðburðinum. Þessi bókun fer fram
í gegnum Tix.is en virknin er í
gegnum Dineout.“
Það er margt spennandi og snið-
ugt fram undan hjá Dineout. „Svo
munum við vera með það þannig
að fólk geti safnað punktum þegar
það bókar á dineout.is og þegar
þau hafa safnað ákveðið mörgum
punktum þá geta þau notað þá
sem inneign á ákveðnum veitinga-
stöðum. Það er ýmislegt í vændum
hjá okkur sem verður gaman að
tilkynna þegar að því kemur.“
Þú getur leitað
alveg eftir þínum
þörfum, hvort sem þú
ert grænmetisæta eða
ekki, á leiðinni í bröns
eða kvöldmat.
Inga Tinna Sigurðardóttir
Ásta Eir
Árnadóttir
astaeir@frettabladid.is
Teymið á bakvið Dineout eru þau Inga Tinna Sigurðardótt-ir, f lugfreyja hjá Ice land air,
Magnús Björn Sigurðsson forritari,
Viktor Blöndal Pálsson forritari,
Sindri Már Finnbogason, eigandi
Tix.is, og Gylfi Ásbjörnsson mat-
reiðslumaður. Þau hafa unnið
hörðum höndum síðastliðin tvö
ár að því að búa til sniðuga lausn
fyrir veitingastaði og viðskipta-
vini þeirra og nú er heimasíðan
dineout.is komin í loftið.
Góðir hlutir gerast hægt
Dineout var hugmynd sem átti að
taka þrjá mánuði í framkvæmd.
Tveimur árum síðar er heima-
síðan farin í loftið en góðir hlutir
gerast hægt. „Þetta hefur verið
virkilega skemmtilegur tími þar
sem afkvæmið dineout.is varð
til,“ segir Inga Tinna. „Dineout er
annars vegar frábær lausn fyrir
veitingastaði, til þess að halda
utan um allar bókanir, hvaðan sem
þær koma, hvort sem þær eru af
netinu, úr síma eða frá fólki sem
labbar inn á staðinn. Hins vegar
er Dineout forrit fyrir viðskipta-
vini veitingastaðanna sem gerir
þeim kleift að bóka borð á netinu
í örfáum skrefum. Þegar einhver
bókar borð af heimasíðunni þá
Þarf ekki að vera flókið
Magnús Björn, Inga Tinna, Gylfi og Viktor eru spennt fyrir komandi vikum.
Á myndina vantar Sindra Má eiganda Tix.is. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGRTYGGUR ARI
Það er nóg að gera hjá Ingu Tinnu þessa dagana. Ásamt því að vera einn
eigandi Dineout þá starfar hún einnig sem flugfreyja hjá Icelandair.
Fyrirtækið Dine
out var stofnað
fyrir tveimur
árum með það
markmið að auð
velda fólki að fá
hugmyndir og
panta sér borð á
veitingastöðum
á netinu ásamt
því að bjóða upp
á góða lausn
fyrir veitingastaði
varðandi bókanir.
sést það samstundis á gólfinu á
veitingastaðnum,“ útskýrir Inga
Tinna. Henni fannst vanta auð-
veldari lausn fyrir veitingastaði og
viðskiptavini þeirra. „Margir veit-
ingastaðir voru að nota dagbækur
eða erlend kerfi til að taka við
bókunum. Ég hugsaði hvort þetta
þyrfti að vera svona forneskjulegt
þannig að ég fór að skoða hvernig
þau eru að gera þetta erlendis eins
og til dæmis í Bandaríkjunum.
Þar nota margir forrit sem heitir
opentable.com, sem er síða sem
gerir notendum kleift að finna sér
veitingastað og bóka á netinu. Við
ákváðum að skoða að fá það kerfi
til landsins en við sáum að það
væri miklu betra að gera þetta sjálf
alveg frá grunni.“
Krefjandi og
skemmtilegt þróunarferli
Þau fengum tvo veitingastaði með
sér í lið til þess að þróa þetta þann-
ig að það yrði sem hagkvæmast
fyrir veitingastaðinn sjálfan. „Það
var mikilvægt að veitingastaður-
*sportpunkta má nýta sem afslátt upp í næstu kaup ENDALAUS
ORKA
Skilar hámarks orku í hverju skrefi!
· FRÍ HEIMSENDING
· 100% SKILARÉTTUR
· 10% AUKA AFSLÁTTUR* boost
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-D
B
3
C
2
3
2
F
-D
A
0
0
2
3
2
F
-D
8
C
4
2
3
2
F
-D
7
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K