Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 80
EN BÚENOS AÍRES ER
STAÐUR SEM ÉG HAFÐI
ALLTAF VERIÐ Á LEIÐINNI TIL.
HEILLAÐIST STRAX AF HONUM
SEM BARN, KANNSKI AF ÞVÍ ÉG
VAR Í FÓTBOLTANUM OG
FYLGDIST MEÐ MARADONA.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
Einar Sebastian býr í borg tangósins, Búenos Aíres, rétt við torgið Plaza Dorrego í elsta hluta borgar innar. Fy rst a myndin sem við blasir
þegar stigið er inn í Hafnarhúsið
við Tryggvagötu 17, hafnarmegin, er
einmitt af þessu torgi fullu af dans-
andi fólki. „Maður sem rekur tangó-
skóla kemur með skólafólkið sitt á
torgið á sunnudögum og það sýnir
tangó, svo á kvöldin kemur fólkið úr
hverfinu og dansar,“ útskýrir Einar
glaðlega. Síðan göngum við inn á
sýninguna hans, Tango Milonga.
Myndirnar á hliðarveggjum salar-
ins eru teknar inni á stöðum þar
sem allir geta dansað tangó, að sögn
Einars. „Á flestum þessum stöðum
er hefð er fyrir tangóinum en stund-
um er líka riggað upp tangókvöld-
um hvar sem er. Allir geta tekið þátt,
fólk þarf ekki að vera fullkomnir
dansarar til þess.“ Hann gerir ekk-
ert úr sjálfum sér sem tangódans-
ara. „En ég er hrifinn af dansinum
sem listformi,“ segir hann og kveðst
oft hafa myndað ballett hjá Íslenska
dansf lokknum þegar Katrín Hall
var með hann. „Svo vann ég líka í
leikhúsunum í gegnum meistarann
minn, Grím Bjarnason. Ég reyni að
fanga augnablikið og fólkið, eins og
ég get, með myndavélinni.“
Einar segir Búenos Aíres iða af
dansi. „Ungt fólk er mjög ástund-
unarsamt. Samkynhneigt fólk
af báðum kynjum getur dansað
saman, það er alveg eðlilegt frelsi í
því. Svo eru auðvitað atvinnudans-
arar í tangó sem ferðast um og sýna
og heimsmeistaramót eru haldin í
greininni.“
Gömlum svörtum síma bregður
fyrir á einni myndinni. „Tíminn
stendur svolítið í stað í Argentínu,
þar er enn verið að nota hluti sem
voru aflagðir hér fyrir þrjátíu, fjöru-
tíu árum.“
Á hvorum gafli salarins eru tvær
stærri myndir, þær tengjast per-
sónulegu lífi Einars. Á þeim er kona
sem stóð honum nærri og hún er
dansari. „Þetta er abstrakt partur-
inn á sýningunni,“ segir hann. Við
tengjumst, ég og þessi kona og
unnum seríuna saman nú í janúar.
Mig langaði að túlka uppgjör okkar
í myndmáli í stað ljóðs.“
Einar ólst upp í miðbæ Reykja-
víkur. „Ég er orginal 101. En segi líka
að ég sé í 101 í Búenos Aíres. Miðjan
er reiknuð út frá forsetahöllinni og
ég er á fyrsta kílómetranum. Það er
elsti hlutinn. Þar á ég 120 ára gamalt
hús, sem ég keypti og gerði allt upp.
Hann kveðst fyrst hafa komið til
borgarinnar árið 2002, þá í vinnu
fyrir flugfélagið Atlanta. „En Búenos
Aíres er staður sem ég hafði alltaf
verið á leiðinni til. Heillaðist strax
af honum sem barn, kannski af því
ég var í fótboltanum og fylgdist með
Maradona.“
Ég giska á að loftslagið í 101
Búenos Aíres sé töluvert hlýrra en í
101 Reykjavík. „Já, mér finnst lofts-
lagið í Argentínu vera það besta í
heiminum, aldrei of heitt og aldrei
of kalt. Obbann af árinu er hitinn á
milli 15-30 gráður. Veturinn þar er
eins og veðrið hér í Reykjavík núna.“
Einar er enn hjá Atlanta, við far-
þegadeildina, mikið í Mið-Austur-
löndum og ferðast oft þaðan til Asíu.
En er líka ljósmyndari og einbeitir
sér að listrænni ljósmyndun. „Ég hef
aldrei haft beinan áhuga á atvinnu-
ljósmyndun en lærði auglýsinga-
ljósmyndun tækninnar vegna. Við
sem lærðum handverkið erum alltaf
í hjarta okkar á móti stafrænni ljós-
myndun en svo verður að viður-
kennast að hún er þægileg í hraða
samfélagsins. Myrkraherbergið er
komið inn í tölvuna og ég get unnið
hvar sem er, það er þægilegt fyrir
mann eins og mig sem er mikið á
ferðinni,“ segir hann. „Þetta er í
fyrsta skipti sem ég sýni einungis
stafrænar myndir og ég er sáttur
við útkomuna.“
Að lokum er Einar spurður út í
Sebastian-nafnið. „Ég er kaþólskur
og tók það upp sjálfur,“ svarar hann.
„Afi minn var læknir og vann stund-
um í kaþólska spítalanum á Landa-
koti, pabbi var líka alltaf svolítið
hallur undir kaþólikka en skírðist
samt ekki. Ég tók það skref og
þaðan tók ég upp Sebastian-nafnið.
Sebastian er verndari ferðalanga,
það kemur sér vel fyrir mig. Ég hef
vitað af honum frá barnæsku, var
alltaf að teikna hann í teiknitímum
og hef alltaf tengst honum meðvitað
eða ómeðvitað.“
Sýningin Tango Milonga er opin
f immtudaga til sunnudaga frá
klukkan 14 til 18 fram á 16. júní.
Hrifinn af
dansinum
sem listformi
Þótt ljósmyndarinn Einar Sebastian þyk-
ist ekki kunna að dansa tangó, þá heillast
hann af fegurð hans og formum. Þess ber
sýningin Tango Milonga í Grafíksal vott.
„Ég er orginal 101. En segi líka að ég sé í 101 í Búenos Aíres!“ segir Einar Sebastian. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þetta par lætur óléttu ekki aftra sér frá því að taka sporið á dansgólfinu.
Ein af fjórum myndum Einars í persónulegu seríunni.
Klassískur dansstaður tangósins í Búenos Aíres. MYND/EINAR SEBASTIAN
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R40 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
2
F
-D
B
3
C
2
3
2
F
-D
A
0
0
2
3
2
F
-D
8
C
4
2
3
2
F
-D
7
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K