Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 81
BÆKUR
Silfurvegurinn
Stina Jackson
Þýðing: Friðrika Benónýsdóttir
Blaðsíður: 304
Útgefandi: Ugla
Silfurvegurinn er fyrsta skáldsaga
Stinu Jackson og var valin besta
sænska glæpasagan 2018 af Sænsku
glæpasagnaakademíunni. Í því vali
gerði dómnefndin vel því bókin er
bæði vel skrifuð og spennandi og
með eftirminnilegum persónum.
Söguþráðurinn er á þá leið að
fyrir þremur árum hvarf Lina, dótt-
ir Lelle, sporlaust. Allt frá því hefur
Lelle í örvæntingu leitað dóttur-
innar sem hann er sannfærður um
að sé á lífi. Hin unga Meje býr með
afskiptalausri móður og verður ást-
fangin af pilti sem er hluti af stór-
einkennilegri f jölskyldu. Leiðir
Lelle og Meje liggja síðan saman.
Silfurvegurinn er óvenju góð
frumraun. Hún er vel skrifuð og
mikil natni er lögð í persónusköp-
un. Myndin af föðurnum, Lelle,
keyrandi um dag hvern, leitandi
að dóttur sinni verður mjög áleitin
og sterk. Hinni yfirþyrmandi sorg
hans er lýst á áhrifamikinn hátt og
sömuleiðis voninni um að dóttirin
finnist. Sú ósk virðist vonlaus en
Lelle rígheldur í hana.
Hin umkomulausa Meje er sömu-
leiðis afar trúverðug persóna, ung
stúlka sem þráir að finna að hún
tilheyri einhverjum og setur alla
sína trú á ungan pilt. Í seinni hluta
sögunnar birtist ný aðalpersóna
nokkuð óvænt og á alla samúð les-
andans. Þar verður einnig þróun í
sambandi Lelle og Meje sem er lýst
á fallegan hátt.
Í fyrri hluta bókarinnar er að
finna sálfræðilega dýpt sem því
miður er sjaldgæft að finna í glæpa-
sögum. Seinni hluti bókarinnar er
síðan mjög spennandi. Gallinn er
þó sá að ýmislegt sem opinberast
þar virkar ekki nægilega trúverð-
ugt. Þar hefði höfundur mátt endur-
hugsa eitt og annað. Þetta breytir
þó engu um það að hér er á ferð
áhugaverð og spennandi frumraun.
Glæpasagnaunnendur ættu ekki
að missa af Silfurveginum sem er
örugglega ein af bestum bókum í
glæpasagnaflóði þessa vors.
Bókin er ágætlega þýdd en les-
andinn rekst of oft á furðulegar
innsláttarvillur, sumar þeirra æpa
beinlínis á hann. Slíkt á ekki að
gerast. Kolbrún Bergþórsdóttir
NIÐURSTAÐA: Vel skrifuð glæpasaga
með eftirminnilegum aðalpersónum.
Spennandi og áhrifamikil. Glæpa-
sagnaunnendur ættu ekki að láta
þessa bók framhjá sér fara. Þeir verða
ekki sviknir.
Faðir í leit að
dóttur sinni
Mælt er með spennandi og áhuga-
verðri frumraun Stinu Jackson.
Ný l e g a ve it t i M ið s t ö ð í s l e n s k r a b ó k m e n nt a tveimur nýjum höfundum
Nýræktarstyrki fyrir verk þeirra, en
hvor styrkur nemur 500.000 krón-
um. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, af henti
styrkina við athöfn í Gunnarshúsi,
húsi Rithöfundasambandsins.
Nýræktarstyrkir eru veittir árlega
vegna skáldverka höfunda sem eru
að stíga sín fyrstu skref á ritvell-
inum, óháð aldri, og til að hvetja þá
til frekari dáða á þeirri braut. Átt
er við skáldverk í víðri merkingu;
sögur, ljóð, leikrit og fleira.
Auður Stefánsdóttir (f. 1983) fékk
styrk fyrir barnabókina Í gegnum
þokuna. Í umsögn bókmenntaráð-
gjafa segir um verkið: „Í gegnum
þokuna er fantasíubók fyrir börn
um baráttu góðs og ills, dauðann og
lífið. Höfundur tekur á viðkvæmu
málefni á fágaðan hátt og f léttar
saman við spennandi atburðarás á
f löktandi mörkum raunveruleika
og ímyndunar. Textinn er skýr og
aðgengilegur, lýsingar á handan-
heiminum hugmyndaríkar og
margar skemmtilegar skírskotanir
í hvernig er að vera krakki á Íslandi
í dag.“
Kristján Hrafn Guðmundsson
(f. 1979) fékk styrk fyrir smásagna-
safnið Af kvæni. Í umsögn bók-
menntaráðgjafa um verkið segir:
„Af kvæni er safn smásagna sem
eiga það sameiginlegt að gerast í
hversdagslegum íslenskum sam-
tíma. Sögurnar eru grípandi, per-
sónulýsingar skarpar og textinn
er skrifaður á blæbrigðaríku máli.
Smávægilegum atvikum er gjarnan
lýst á spaugilegan hátt; andrúms-
loftið er létt og leikandi en um leið
tekst höfundi að miðla samspili
gleði og alvöru af sérstakri næmni.“
– kb
Styrkir til Auðar og Kristjáns
Auður og Kristján ásamt Lilju Al-
freðsdóttur menntamálaráðherra.
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 41L A U G A R D A G U R 8 . J Ú N Í 2 0 1 9
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-D
1
5
C
2
3
2
F
-D
0
2
0
2
3
2
F
-C
E
E
4
2
3
2
F
-C
D
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K