Fréttablaðið - 11.06.2019, Page 2
Veður
Hæg breytileg átt eða hafgola og
víða léttskýjað í dag, en skýjað
með köflum SA-lands. Hiti yfir-
leitt 12 til 18 stig, en svalara á
A- og SA-landi. SJÁ SÍÐU 18
Fjör í blíðviðrinu
LYFJALAUS VERKJASTILLING!
LÁTA LÍKAMANN LINA VERKINA!
• ENGAR AUKAVERKANIR
• VATNSHELDIR
• DUGA Í ALLT AÐ 5 DAGA
ALLT
HÁLS
HNÉ
BAK
AXLIR
FÁST Í APÓTEKUM UM LAND ALLT!
FIT VERKJAPLÁSTRAR
ALÞINGI Fundur hefst á Alþingi
klukkan hálf ellefu í dag. Fyrir utan
óundirbúnar fyrirspurnir sem er
fyrsti dagskrárliðurinn eru 40 mál
á dagskrá fundarins. Þriðji orku-
pakkinn og tengd mál eru aftast á
dagskránni en enn hefur ekki náðst
samkomulag um hvernig ljúka eigi
þingstörfum fyrir sumarleyfi.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins hafa einhverjar óformlegar
viðræður átt sér stað um helgina.
Formlegar viðræður forystufólks
flokkanna á þingi hefjast aftur í dag.
Þegar umræðu um þriðja orku-
pakkann var frestað í síðustu viku
voru sjö þingmenn Miðf lokksins
enn á mælendaskrá. Formaðurinn,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
beið þess þá að flytja 45. ræðu sína
í málinu.
Meðal þeirra mála sem koma til
2. umræðu í dag eru frumvarp sem
heimilar innflutning á fersku kjöti,
frumvarp um þjóðarsjóð og frum-
varp um sameiningu Seðlabankans
og Fjármálaeftirlitsins. – sar
Orkupakkinn
aftast á dagskrá
Alþingis í dag
DÓMSMÁL Nara Walker, sem sakfelld
var fyrir að bíta hluta úr tungu fyrr-
verandi eiginmanns síns, hefur kært
íslenska ríkið til Mannréttindadóm-
stóls Evrópu. Þetta kemur fram í til-
kynningu sem Nara sendi frá sér í gær.
Nara hefur safnað yfir 43 þúsund
undirskriftum sér til stuðnings og
ætlar hún að afhenda forseta Alþing-
is undirskriftalistann í hádeginu á
morgun. Hún hefur ritað alþingis-
mönnum bréf og boðið þeim að vera
viðstaddir afhendinguna.
„Ég tel mál mitt endurspegla alvar-
legar brotalamir í íslensku réttarkerfi
þegar kemur að málum sem snúa að
of beldi gegn konum og heimilisof-
beldi,“ er haft eftir henni í tilkynn-
ingunni.
Hún telur að íslenskt réttarkerfi
hafi brugðist sér en hún var leyst úr
haldi í mars eftir um þriggja mánaða
dvöl í fangelsi. Þótt Nara sé laus úr
haldi sætir hún enn farbanni á meðan
hún lýkur skilorðsbundnum dómi.
– ilk
Nara kærir
ríkið til MDE
Fáir þingmenn hafa hlýtt á um-
ræður um þriðja orkupakkann.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Íbúar höfuðborgarsvæðisins nýttu blíðviðrið um hvítasunnuhelgina til
útiveru. Eins og sjá má var mikið fjör í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
og var mikill mannfjöldi þar samankominn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
FÓTBOLTI „Ég vissi ekki hvaðan á
mig stóð veðrið þegar ég fór allt í
einu að fá fullt af skilaboðum og við-
brögðum frá einhverjum Tyrkjum,“
segir borgarfulltrúinn Katrín Atla-
dóttir. Hún, eins og f leiri Íslend-
ingar, varð fyrir barðinu á reiðum
Tyrkjum í kjölfar þess að maður
sást ota uppþvottabursta að Emre,
fyrirliða tyrkneska liðsins, þar sem
hann ræddi við fjölmiðla.
Stuðningsmenn tyrkneska liðs-
ins móðguðust mjög vegna þessa
athæfis og héldu margir í fyrstu að
um íslenskan íþróttafréttamann
væri að ræða. Sú er þó ekki raunin
því sökudólgurinn virðist vera belg-
ískur ferðamaður.
Katrín komst að því að einhver
hafði tekið mynd af Twitter-reikn-
ingi hennar sem sýnir hana taka
mynd af syni sínum þar sem hann
er með höfuðið ofan í sjó og deilt.
Textinn sem fylgdi var samkvæmt
Google Translate eitthvað á þá leið
að íslenskar konur drekktu börnum
sínum og tækju af því mynd.
„Þá byrjaði ég að fá fullt af við-
brögðum og spurningum um hvort
ég þekkti burstamanninn. Ég fór og
horfði á myndbandið úr Leifsstöð.
Þetta er náttúrulega fáránlega fynd-
inn brandari, að taka viðtal við ein-
hvern með uppþvottabursta.“
Sjálf ætlar Katrín að mæta á leik-
inn sem hefst klukkan 18.45 í kvöld.
„Ég fer með syni mínum, við látum
okkur ekki vanta á landsleiki. Ég er
bjartsýn og held að þetta fari 2-0
fyrir Ísland.“
Tyrkneska liðið kvartaði einn-
ig undan slæmri meðferð á Kef la-
víkurflugvelli og því hversu langan
tíma öryggisleit stóð yfir. Í tilkynn-
ingu frá Isavia segir að ekkert óeðli-
legt hafi verið við verklagið.
Brottfararf lugvöllur liðsins sé
utan skilgreinds öryggissvæðis
fyrir ESB- og EES-ríki. Skylt sé að
gera öryggisleit á farþegum sem
koma frá slíkum f lugvöllum. Þá
segir að leitin hafi í heildina tekið
um 80 mínútur en leita hafi þurft
að raftækjum og vökva í óvanalega
mörgum töskum.
Guðlaugur Þór Þórðarson utan-
ríkisráðherra sendi í gær frá sér
yfirlýsingu vegna málsins. Þar segir
að beiðni um hraðmeðferð í gegnum
vegabréfaskoðun og öryggisleit hafi
einfaldlega borist of seint. Auk þess
sé slík þjónusta jafnan aðeins í boði
fyrir ráðamenn og háttsetta sendi-
erindreka. sighvatur@frettabladid.is
Tyrkir fóru mikinn á
samfélagsmiðlum
Uppþvottabursti í viðtali og langur tími í öryggisleit hafa verið áberandi í
aðdraganda leiks Íslands og Tyrklands í undankeppni EM karla í fótbolta.
Borgarfulltrúi var meðal þeirra sem urðu fyrir barðinu á reiðum Tyrkjum.
Emre, fyrirliði Tyrkja, og uppþvottaburstinn alræmdi. NORDICPHOTOS/GETTY
Þetta er náttúrulega
fáránlega fyndinn
brandari, að taka viðtal við
einhvern með uppþvotta
bursta.
Katrín Atladóttir,
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins
138
klukkustundir rúmar hefur
umræðan um þriðja orku
pakkann staðið.
Fleiri myndir frá blíðviðrinu er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-C
8
3
C
2
3
3
0
-C
7
0
0
2
3
3
0
-C
5
C
4
2
3
3
0
-C
4
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K