Fréttablaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 40
Sýningin Talaðu við mig! Runā ar mani! Talk to Me! stendur yfir í Listasafninu á Akureyri til 22. septem-ber. Þar eru sýnd verk nítj-án lettneskra listamanna. Sýningarstjórar eru Astrida Rogule, safnafræðingur og Æsa Sigurjóns- dóttir, listfræðingur og dósent við Háskóla Íslands. Yfirskrift sýning- arinnar gefur til kynna þverstæðu- kenndar aðstæður: Á sama tíma og samskipti verða tíðari gerist það æ sjaldnar að fólk tali saman augliti til auglitis. Þessi staða getur þó orðið tilefni til þess að einstaklingar og menningarheimar mætast í fyrsta sinn. Jafnframt er gefið í skyn að samtímalistasafnið geti verið mikil- vægur vettvangur samskipta. Sýn- ingin er hluti af fullveldisdagskrá Lettlands og í tengslum við hana kemur út vönduð sýningarskrá á þremur tungumálum. „Verkin koma öll frá Þjóðlista- safninu í Ríga sem er samstarfsaðili að þessu verkefni. Sýningin mun fara víðar en hefur ferðalagið hér á landi. Ástæðan er sú að Lettum finnst að þeir standi í ákveðinni þakkarskuld við íslensku þjóðina því Ísland var fyrsta landið til að viðurkenna þá sem fullvalda ríki eftir fall Sovétríkjanna. Þannig má líta á sýninguna sem afmælisgjöf til Íslendinga,“ segir Æsa Sigurjóns- dóttir. „Við Astrida Rogule, safnvörður samtímalista á Þjóðlistasafninu í Ríga, völdum verkin og fundum þennan titil, Talaðu við mig! Hann er tekinn úr samnefndu verki á sýn- ingunni sem er margmiðlunarverk sem fjallar um samskipti manna og plantna eftir listhópinn RIXC, þau Raitis Šmits, Rasa Šmite og Mārtiņš Ratniks. Þetta er tæknilega séð flóknasta verkið á sýningunni, eins konar viðmót og gagnagrunnur um hvernig fólk talar við plöntur og hægt er að eiga bein samskipti við verkið á Akureyri í gegnum netið á slóðinni: talktome.rixc.lv. RIXC listhópurinn er margverð- launaður fyrir rannsóknir sínar í netlist og mikill fengur að fá þau hingað,“ segir Æsa. Löngun til frásagnar Spurð hvernig þær Astrida Rogule hafi staðið að valinu á verkunum segir Æsa: „Við völdum verk sem hafa djúpa sögu að segja og tala á mjög afgerandi hátt við áhorf- andann. Við getum sagt að sterk löngun til frásagnar og samskipta við áhorfandann einkenni sýn- inguna. Eystrasaltsþjóðirnar hafa mikla þörf til að segja frá fortíð sinni og frelsisbaráttu. Lettar eru komnir inn í Evrópusambandið og hafa tekið upp evruna, en staðsetja sig að mörgu leyti í samhengi við Norðurlöndin. Þeir tala einnig mjög sérstakt tungumál sem sker sig frá helstu Evróputungumálum.“ Nýmiðlar og vídeólist Á sýningunni eru málverk, prent, innsetningar, vídeóverk, skúlptúrar og ljósmyndir. „Þetta er að hluta til pólitísk sýning. Annars vegar vísa verkin til sögulegra atburða, hins vegar til samtímamála eins og umhverfis- og loftslagsmála,“ segir Æsa. „Þarna eru einnig verk sem vísa beint í efnismenningu nálægðrar fortíðar. Sem dæmi má nefna verk Andris Breže sem eru unnin úr fundnu, einnota og hvers- dagslegu hráefni eins og eldspýtna- stokkum, strætómiðum, tvinna og ýmiss konar rifrildi, sem er öllu fín- lega raðað saman í brothætta skúlp- túra. Þau vísa til þess sem kallað er „post Soviet nostalgia“, sem er ákveðin fagurfræðileg eftirsjá til tíunda áratugarins og því brothætta frelsi sem þá varð til. „Öll baltnesku löndin og Lettland sérstaklega eiga mjög sterka ljósmynda- og prent- miðlahefð. VIÐ GETUM SAGT AÐ STERK LÖNGUN TIL FRÁSAGNAR OG SAMSKIPTA VIÐ ÁHORFANDANN EINKENNI SÝNINGUNA. Afmælisgjöf til Íslendinga Á Listasafninu á Akureyri eru sýnd verk nítján lettneskra listamanna. Nýmiðlar og vídeólist eru áberandi á sýningunni. „Við völdum verk sem hafa djúpa sögu að segja,“ segir Æsa Sigurjónsdóttir. Hún er annar sýningarstjóri Talaðu við mig! sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Raitis Šmits, Rasa Šmite og Mārtiņš Rat- niks, Talaðu við mig! Tjáskipti manna og plantna. Ljósmynd: Raitis Šmits Ieva Epnere, Grænn skóli. Ljósmynd: Ieva Epnere. Frægasti listamaðurinn á sýn- ingunni er Vija Celmiņš. Hún kom sem flóttamaður til Bandaríkjanna átta ára gömul og þrátt fyrir að hún hafi unnið í Bandaríkjunum allan þennan tíma þá finnst henni upp- runi sinn vera í Lettlandi. Hún á tvö verk á sýningunni sem sýna yfir- burði hennar á sviði grafíktækni, en Celmiņš er þekkt sem einn helsti konseptlistamaður sinnar kynslóð- ar og á að baki fjölda einkasýninga í Bandaríkjunum. Verk hennar eru meðal annars í MoMA. Nýmiðlar og vídeólist eru því áberandi á sýningunni í bland við hefðbundna miðla. Benda mætti á vídeóverk þriggja ungra kvenna, þeirra Dace Džeriņa, Ieva Epnere, og Katrīna Neiburga, en sú síðast- nefnda var fulltrúi síns lands á Fen- eyjatvíæringnum 2015,“ segir Æsa. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is 1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 1 1 -0 6 -2 0 1 9 0 8 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 3 0 -D B F C 2 3 3 0 -D A C 0 2 3 3 0 -D 9 8 4 2 3 3 0 -D 8 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.