Fréttablaðið - 11.06.2019, Page 40
Sýningin Talaðu við mig! Runā ar mani! Talk to Me! stendur yfir í Listasafninu á Akureyri til 22. septem-ber. Þar eru sýnd verk nítj-án lettneskra listamanna.
Sýningarstjórar eru Astrida Rogule,
safnafræðingur og Æsa Sigurjóns-
dóttir, listfræðingur og dósent við
Háskóla Íslands. Yfirskrift sýning-
arinnar gefur til kynna þverstæðu-
kenndar aðstæður: Á sama tíma og
samskipti verða tíðari gerist það æ
sjaldnar að fólk tali saman augliti til
auglitis. Þessi staða getur þó orðið
tilefni til þess að einstaklingar og
menningarheimar mætast í fyrsta
sinn. Jafnframt er gefið í skyn að
samtímalistasafnið geti verið mikil-
vægur vettvangur samskipta. Sýn-
ingin er hluti af fullveldisdagskrá
Lettlands og í tengslum við hana
kemur út vönduð sýningarskrá á
þremur tungumálum.
„Verkin koma öll frá Þjóðlista-
safninu í Ríga sem er samstarfsaðili
að þessu verkefni. Sýningin mun
fara víðar en hefur ferðalagið hér
á landi. Ástæðan er sú að Lettum
finnst að þeir standi í ákveðinni
þakkarskuld við íslensku þjóðina
því Ísland var fyrsta landið til að
viðurkenna þá sem fullvalda ríki
eftir fall Sovétríkjanna. Þannig má
líta á sýninguna sem afmælisgjöf
til Íslendinga,“ segir Æsa Sigurjóns-
dóttir.
„Við Astrida Rogule, safnvörður
samtímalista á Þjóðlistasafninu
í Ríga, völdum verkin og fundum
þennan titil, Talaðu við mig! Hann
er tekinn úr samnefndu verki á sýn-
ingunni sem er margmiðlunarverk
sem fjallar um samskipti manna og
plantna eftir listhópinn RIXC, þau
Raitis Šmits, Rasa Šmite og Mārtiņš
Ratniks. Þetta er tæknilega séð
flóknasta verkið á sýningunni, eins
konar viðmót og gagnagrunnur um
hvernig fólk talar við plöntur og
hægt er að eiga bein samskipti við
verkið á Akureyri í gegnum netið á
slóðinni: talktome.rixc.lv.
RIXC listhópurinn er margverð-
launaður fyrir rannsóknir sínar
í netlist og mikill fengur að fá þau
hingað,“ segir Æsa.
Löngun til frásagnar
Spurð hvernig þær Astrida Rogule
hafi staðið að valinu á verkunum
segir Æsa: „Við völdum verk sem
hafa djúpa sögu að segja og tala
á mjög afgerandi hátt við áhorf-
andann. Við getum sagt að sterk
löngun til frásagnar og samskipta
við áhorfandann einkenni sýn-
inguna. Eystrasaltsþjóðirnar hafa
mikla þörf til að segja frá fortíð
sinni og frelsisbaráttu. Lettar eru
komnir inn í Evrópusambandið og
hafa tekið upp evruna, en staðsetja
sig að mörgu leyti í samhengi við
Norðurlöndin. Þeir tala einnig mjög
sérstakt tungumál sem sker sig frá
helstu Evróputungumálum.“
Nýmiðlar og vídeólist
Á sýningunni eru málverk, prent,
innsetningar, vídeóverk, skúlptúrar
og ljósmyndir. „Þetta er að hluta
til pólitísk sýning. Annars vegar
vísa verkin til sögulegra atburða,
hins vegar til samtímamála eins
og umhverfis- og loftslagsmála,“
segir Æsa. „Þarna eru einnig verk
sem vísa beint í efnismenningu
nálægðrar fortíðar. Sem dæmi má
nefna verk Andris Breže sem eru
unnin úr fundnu, einnota og hvers-
dagslegu hráefni eins og eldspýtna-
stokkum, strætómiðum, tvinna og
ýmiss konar rifrildi, sem er öllu fín-
lega raðað saman í brothætta skúlp-
túra. Þau vísa til þess sem kallað
er „post Soviet nostalgia“, sem er
ákveðin fagurfræðileg eftirsjá til
tíunda áratugarins og því brothætta
frelsi sem þá varð til. „Öll baltnesku
löndin og Lettland sérstaklega eiga
mjög sterka ljósmynda- og prent-
miðlahefð.
VIÐ GETUM SAGT AÐ
STERK LÖNGUN TIL
FRÁSAGNAR OG SAMSKIPTA VIÐ
ÁHORFANDANN EINKENNI
SÝNINGUNA.
Afmælisgjöf til Íslendinga
Á Listasafninu á Akureyri eru sýnd verk nítján lettneskra
listamanna. Nýmiðlar og vídeólist eru áberandi á sýningunni.
„Við völdum verk sem hafa djúpa sögu að segja,“ segir Æsa Sigurjónsdóttir. Hún er annar sýningarstjóri Talaðu við mig! sem nú stendur yfir í Listasafninu á Akureyri. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Raitis Šmits,
Rasa Šmite og
Mārtiņš Rat-
niks, Talaðu við
mig! Tjáskipti
manna og
plantna.
Ljósmynd:
Raitis Šmits
Ieva Epnere, Grænn skóli. Ljósmynd: Ieva Epnere.
Frægasti listamaðurinn á sýn-
ingunni er Vija Celmiņš. Hún kom
sem flóttamaður til Bandaríkjanna
átta ára gömul og þrátt fyrir að hún
hafi unnið í Bandaríkjunum allan
þennan tíma þá finnst henni upp-
runi sinn vera í Lettlandi. Hún á tvö
verk á sýningunni sem sýna yfir-
burði hennar á sviði grafíktækni,
en Celmiņš er þekkt sem einn helsti
konseptlistamaður sinnar kynslóð-
ar og á að baki fjölda einkasýninga
í Bandaríkjunum. Verk hennar eru
meðal annars í MoMA.
Nýmiðlar og vídeólist eru því
áberandi á sýningunni í bland við
hefðbundna miðla. Benda mætti á
vídeóverk þriggja ungra kvenna,
þeirra Dace Džeriņa, Ieva Epnere,
og Katrīna Neiburga, en sú síðast-
nefnda var fulltrúi síns lands á Fen-
eyjatvíæringnum 2015,“ segir Æsa.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R20 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
0
-D
B
F
C
2
3
3
0
-D
A
C
0
2
3
3
0
-D
9
8
4
2
3
3
0
-D
8
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K