Fréttablaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Hér má sjá Tinnu Barkardóttur í sogæðameðferð í VacuMed heilsutækinu sem losar um bólgur og bjúg og örvar blóðflæði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Súrefnishjálmur og sogæðastígvél hafa góða og fjölþætta virkni á heilsuna. Ég átti eitt vafningsteppi þegar ég opnaði stofuna í 150 fer-metra húsnæði og það þótti stappa nærri brjálæði. Ég var hins vegar full sannfæringar, trúar og trausts á sjálfa mig og það sannaði sig fljótt að ég hafði gert rétt,“ segir Sandra Lárusdóttir sem sagði upp starfi sínu sem einkaþjálfari fyrir fimm árum til að stofna líkams- meðferðar- og snyrtistofuna Heilsu og útlit. „Mig langaði að helga krafta mína því að aðstoða fólk við að ná betri heilsu og sé ekki eftir því. Það er það besta sem fyrir mig hefur komið. Mér finnst yndislegt að geta hlúð að fólki og verða vitni að góðum árangri.“ Geimvísindi sem virka Sandra er umboðsmaður fyrir þýsku heilsutækin frá Weyergans hér á landi. Þau eiga yfir þrjátíu ára sögu og eru notuð með undra- verðum árangri á sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum í Þýskalandi. „Tækin Vacu Sport og Vacu Med voru upphaflega fundin upp fyrir Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA. Geimfarar voru settir í með- ferð í tækjunum þegar þeir komu úr geimferðum svo hægt væri að þrýstijafna þá en lofttæmisþrýst- ingurinn eykur súrefnis- og blóð- flæði um líkamann sem hraðar mjög bataferli og endurhæfingu eftir slys, aðgerðir og meiðsl,“ útskýrir Sandra um árangursrík og viðurkennd Weyergans-tækin. „Heilsutækin eru einnig mikið notuð af afreksfólki í íþróttum, eins og atvinnumönnum í fót- bolta, íshokkí og ruðningi. Sem dæmi eiga knattspyrnumennirnir Ronaldo og Nani slík tæki heima, sem og Pútín, forseti Rússlands. Þau losa fljótt um bólgur og bjúg og virka svo vel að maður er stundum hissa á þeim undraverða árangri sem tækin gefa,“ segir Sandra sem er einnig með umboð fyrir tækjunum í Færeyjum og á Græn- landi og senn bætast við Danmörk, Noregur og Svíþjóð. „Ég hef unnið til margra verð- launa hjá Weyergans og það þykir sýnt að ég hef gert vel, lagt hug og hjarta í þetta og árangur okkar á Íslandi er magnaður. Ég var því nýlega boðuð á fund hjá Weyer- gans í Þýskalandi þar sem óskað var eftir að ég tæki við umboði tækjanna á Norðurlöndunum. Það er mikil áskorun en vel þess virði að prófa,“ segir Sandra full tilhlökkunar. Fá loksins bót meina sinna Heilsutækin hjá Heilsu og útliti hafa hjálpað mörgum að ná bata. „Hér á landi hafa margir læknar opnað augun fyrir þessum mögu- leika í bataferli sjúklinga og eru farnir að benda fólki á þennan kost við verkjum, bólgum eða sogæðavandamálum. Við vinnum líka vel með sjúkraþjálfurum því meðferðin hjálpar sjúklingum með stoðkerfisvandamál, mikinn bjúg, lélegt blóðflæði eða fótapirring. Sömuleiðis þeim sem hafa farið í mjaðmakúluskipti eða hnjáliða- skipti. Þetta er góð meðferð eftir margs konar aðgerðir og við höfum séð undraverðan árangur. Í sumum tilfellum hefur fólk áður prófað öll möguleg úrræði án þess að fá hjálp og fæstir vilja taka inn bjúgtöflur í langan tíma,“ upplýsir Sandra um heilsufarslegan ávinning þess að njóta meðferðar í Weyergans-tækj- unum. „Þeir sem hafa prófað tækin einu sinni koma aftur og aftur. Reynslan hefur einungis verið frábær og meðferðin er algjörlega sársauka- laus. Hún hentar vel þeim sem hafa nýlega farið í aðgerðir vegna vandamála í liðum og þeim sem eru með bólgur í handleggjum, hnakka eða öxlum. Þá hefur með- ferðin verið mikið notuð á sjúkra- húsum í Þýskalandi við bólgum sem myndast eftir brjóstnám,“ útskýrir Sandra og meðferðin gagnast sömuleiðis mjög vel gegn krónískum verkjum. „Margir sem koma til okkar tala um að fá ekki bót meina sinna og fólk sem er orðið fullorðið segist þrá að líða betur. Það talar um að líf þeirra sé ekki búið þótt það sé komið á eftirlaunaaldurinn og að það langi að taka virkan þátt í lífinu. Þá skaðar ekki að láta reyna á þessa náttúrulegu og heilbrigðu leið til heilsubótar.“ Sogæðanudd góð forvörn Í boði eru mismunandi meðferðir sem henta ólíkum vandamálum og tekur hver meðferð frá 20 upp í 40 mínútur. Mælt er með tíu skiptum til að ná góðum árangri. „Fyrir utan sogæðastígvél og sogæðatækin VacuSport og VacuMed erum við með vafninga fyrir appelsínuhúð og bólgur. Þess má geta að sogæðanudd er einnig afar góð forvörn fyrir hjarta- og æðakerfi líkamans og mikið um að læknar sendi til okkar fólk í for- varnarskyni,“ upplýsir Sandra sem tvöfaldaði nýlega stærð stofunnar. „Það var þörf á fleiri meðferðar- herbergjum og vélum og einn daginn var ég hætt að geta snúið mér við. Eftirspurn eftir meðferð- um hefur stóraukist og nú getum við líka þjónustað enn betur fólk með hreyfihömlun því við höfum tekið í notkun VacuSport með sleða,“ segir Sandra sem uppsker daglega innileg faðmlög frá fólki sem upplifir mikla vellíðan eftir meðferðirnar. „Hingað sækir fólk með stoð- kerfisvandamál; flugfreyjur, íþróttafólk, fólk með slæmt æða- kerfi, fólk sem er að ná sér eftir aðgerðir eða hreinlega fólk sem þjáist af síþreytu. Það á sameigin- legt að finna á sér mikinn mun. Það á auðveldara með gang, líður betur í fótunum og losnar við fótapirring og bjúg. Við finnum því fyrir miklu þakklæti og ein var svo ánægð með þjónustuna að hún gaf stofunni nýja vél. Hún kom til okkar í hjóla- stól en spilar nú golf á Spáni.“ Tannhvíttun og fitufrysting Eiginmaður Söndru, Eyjólfur Krist- jánsson, er útlærður í tannhvíttun og hefur boðið upp á slíkt með góðum árangri hjá Heilsu og útliti. „Ég hef áhuga á að bjóða upp á heildrænar lausnir og ráðgjöf. Meðferðarúrræðin eru því marg- vísleg og alltaf bætist við nýtt,“ segir Sandra sem býður meðal annars upp á fitufrystingu með góðum árangri. „Fitufrysting er náttúruleg meðferð þar sem kuldi er notaður til að frysta og fjarlægja fitufrumur. Fitufrumurnar skolast síðan út með sogæðakerfinu og við getum flýtt fyrir ferlinu með því að tvinna saman sogæðameðferð við fitufrystinguna,“ útskýrir Sandra og tekur fram að alltaf sé passað að nota hæfilegan kulda sem valdi engum skaða. Þá er ótalinn súrefnishjálmur sem nýtur mikilla vinsælda á stofunni. „Súrefnishjálmurinn hefur vakið mikla athygli. Hann hentar fólki með kvíða, asma eða mígreni, en líka þeim sem eru með slæma húð. Nýjasti hjálmurinn er með innrauðum ljósum sem auka þétt- ingu húðar, draga úr rósroða og öramyndun og eykur kollagen í húð. Hann er góður gegn streitu og eflir ónæmiskerfið og oft brotnar fólk saman þegar það slakar á í súrefnishjálminum og fer í gegnum tilfinningalíf sitt,“ upplýsir Sandra og bætir við að sums staðar í heim- inum mæti fólk gagngert í súrefnis- stöðvar til að hlaða batteríin. „Það er æðislegt að geta loks boðið upp á þessa ljósa- og súr- efnismeðferð sem hefur yngjandi áhrif, rétt eins og Michael Jackson og Madonna reyndu á eigin skinni til að vera hvað unglegust. Þetta er því algjört töfratæki,“ segir Sandra. 24 karata gullmaski Meðal nýjunga hjá Heilsu og útliti er taílenskt nudd sem stundum er kallað jóganudd og veldur góðu orkuflæði um líkamann. Sandra er líka með umboð fyrir spænska hágæða húðvörumerkið Casmara, sem var fyrst til að framleiða gúmmímaska og á stofunni er meðal annars hægt að fá 24k gull- maska. „Nýlega fengum við umboð fyrir FitLine-vítamín sem eru viður- kennd af Evrópusambandinu og standast alþjóðlegar öryggiskröfur um gæði og hreinleika. Vítamínin eru orðin þau allra vinsælustu á Íslandi, með yfir þúsund áskrifend- ur,“ upplýsir Sandra um FitLine sem er 100 prósent náttúrulegt vítamín, unnið úr hreinni matvöru. „FitLine er bylting. Vítamínið kemur í duftformi sem er blandað í vatn og upptakan er því 100 pró- sent. Það samsvarar því að drekka eitt og hálft kíló af grænmeti á dag og hjálpar fólki með meltingu, orku og svefn,“ upplýsir Sandra og bendir á að hægt sé að fá kynn- ingarpakka. „Þá getur fólk leitað til okkar og bókað ráðgjöf bæði varðandi líkamlega heilsu og fæðu- bótarefnin.“ Allt starfsfólk Heilsu og útlits er faglært og hefur sótt námskeið til að mega stjórna tækjunum. Sjálf er Sandra með leyfi til að kenna á tækin og útskrifast senn sem meistari. „Við fögnum nú fimm ára afmæli og því að í dag hafa tíu útibú orðið sér úti um Weyergans-tæki hjá okkur og ekkert lát er á því. Það er ánægjulegt að hægt sé að þjónusta fólk í sinni heimabyggð með bestu heilsutækjum heims,“ segir Sandra sem býður gestum og gangandi í afmæli föstudaginn 14. júní. „Við ætlum að gleðjast og vera með opið hús á milli klukkan 17 og 19, þar sem allir eru hjartanlega velkomnir að fá sér léttar veitingar, skoða stofuna og tækin og njóta glæsilegra afmælistilboða í tilefni dagsins. Sjón er sögu ríkari.“ Stofur sem bjóða upp á sogæða- nudd með Weyergans-tækjum eru: Heilsustofan Eygló á Sel- fossi, Heilsu- og fegrunarstofa Huldu í Borgartúni, Weyergans Stúdíó á Siglufirði, Gallery 730 á Reyðarfirði, Nuddstofa Margrétar í Borgarnesi, Heilsa og Líðan á Akureyri, Heilsueyjan Spa í Vest- mannaeyjum, Táin og Strata á Sauðárkróki og Guðbjörg Bowen- tæknir í Njarðvík. Heilsa og útlit er í Hlíðar smára 17. Hafið samband í síma 562 6969 til að bóka tíma, fá fría ráðgjöf um meðferðir eða kynna sér vítamín- in. Nánar á heilsaogutlit.is 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 1 1 -0 6 -2 0 1 9 0 8 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 3 0 -E 5 D C 2 3 3 0 -E 4 A 0 2 3 3 0 -E 3 6 4 2 3 3 0 -E 2 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.