Fréttablaðið - 11.06.2019, Qupperneq 16
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764
| Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen,
solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Hér má sjá Tinnu Barkardóttur í sogæðameðferð í VacuMed heilsutækinu sem losar um bólgur og bjúg og örvar blóðflæði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Súrefnishjálmur og sogæðastígvél hafa góða og fjölþætta virkni á heilsuna.
Ég átti eitt vafningsteppi þegar ég opnaði stofuna í 150 fer-metra húsnæði og það þótti
stappa nærri brjálæði. Ég var hins
vegar full sannfæringar, trúar og
trausts á sjálfa mig og það sannaði
sig fljótt að ég hafði gert rétt,“ segir
Sandra Lárusdóttir sem sagði upp
starfi sínu sem einkaþjálfari fyrir
fimm árum til að stofna líkams-
meðferðar- og snyrtistofuna Heilsu
og útlit.
„Mig langaði að helga krafta
mína því að aðstoða fólk við að ná
betri heilsu og sé ekki eftir því. Það
er það besta sem fyrir mig hefur
komið. Mér finnst yndislegt að
geta hlúð að fólki og verða vitni að
góðum árangri.“
Geimvísindi sem virka
Sandra er umboðsmaður fyrir
þýsku heilsutækin frá Weyergans
hér á landi. Þau eiga yfir þrjátíu
ára sögu og eru notuð með undra-
verðum árangri á sjúkrahúsum og
heilbrigðisstofnunum í Þýskalandi.
„Tækin Vacu Sport og Vacu Med
voru upphaflega fundin upp fyrir
Geimferðastofnun Bandaríkjanna,
NASA. Geimfarar voru settir í með-
ferð í tækjunum þegar þeir komu
úr geimferðum svo hægt væri að
þrýstijafna þá en lofttæmisþrýst-
ingurinn eykur súrefnis- og blóð-
flæði um líkamann sem hraðar
mjög bataferli og endurhæfingu
eftir slys, aðgerðir og meiðsl,“
útskýrir Sandra um árangursrík og
viðurkennd Weyergans-tækin.
„Heilsutækin eru einnig mikið
notuð af afreksfólki í íþróttum,
eins og atvinnumönnum í fót-
bolta, íshokkí og ruðningi. Sem
dæmi eiga knattspyrnumennirnir
Ronaldo og Nani slík tæki heima,
sem og Pútín, forseti Rússlands.
Þau losa fljótt um bólgur og bjúg og
virka svo vel að maður er stundum
hissa á þeim undraverða árangri
sem tækin gefa,“ segir Sandra
sem er einnig með umboð fyrir
tækjunum í Færeyjum og á Græn-
landi og senn bætast við Danmörk,
Noregur og Svíþjóð.
„Ég hef unnið til margra verð-
launa hjá Weyergans og það þykir
sýnt að ég hef gert vel, lagt hug og
hjarta í þetta og árangur okkar á
Íslandi er magnaður. Ég var því
nýlega boðuð á fund hjá Weyer-
gans í Þýskalandi þar sem óskað
var eftir að ég tæki við umboði
tækjanna á Norðurlöndunum.
Það er mikil áskorun en vel þess
virði að prófa,“ segir Sandra full
tilhlökkunar.
Fá loksins bót meina sinna
Heilsutækin hjá Heilsu og útliti
hafa hjálpað mörgum að ná bata.
„Hér á landi hafa margir læknar
opnað augun fyrir þessum mögu-
leika í bataferli sjúklinga og eru
farnir að benda fólki á þennan
kost við verkjum, bólgum eða
sogæðavandamálum. Við vinnum
líka vel með sjúkraþjálfurum því
meðferðin hjálpar sjúklingum með
stoðkerfisvandamál, mikinn bjúg,
lélegt blóðflæði eða fótapirring.
Sömuleiðis þeim sem hafa farið í
mjaðmakúluskipti eða hnjáliða-
skipti. Þetta er góð meðferð eftir
margs konar aðgerðir og við höfum
séð undraverðan árangur. Í sumum
tilfellum hefur fólk áður prófað öll
möguleg úrræði án þess að fá hjálp
og fæstir vilja taka inn bjúgtöflur í
langan tíma,“ upplýsir Sandra um
heilsufarslegan ávinning þess að
njóta meðferðar í Weyergans-tækj-
unum.
„Þeir sem hafa prófað tækin einu
sinni koma aftur og aftur. Reynslan
hefur einungis verið frábær og
meðferðin er algjörlega sársauka-
laus. Hún hentar vel þeim sem
hafa nýlega farið í aðgerðir vegna
vandamála í liðum og þeim sem
eru með bólgur í handleggjum,
hnakka eða öxlum. Þá hefur með-
ferðin verið mikið notuð á sjúkra-
húsum í Þýskalandi við bólgum
sem myndast eftir brjóstnám,“
útskýrir Sandra og meðferðin
gagnast sömuleiðis mjög vel gegn
krónískum verkjum.
„Margir sem koma til okkar tala
um að fá ekki bót meina sinna og
fólk sem er orðið fullorðið segist
þrá að líða betur. Það talar um að
líf þeirra sé ekki búið þótt það sé
komið á eftirlaunaaldurinn og
að það langi að taka virkan þátt í
lífinu. Þá skaðar ekki að láta reyna
á þessa náttúrulegu og heilbrigðu
leið til heilsubótar.“
Sogæðanudd góð forvörn
Í boði eru mismunandi meðferðir
sem henta ólíkum vandamálum og
tekur hver meðferð frá 20 upp í 40
mínútur. Mælt er með tíu skiptum
til að ná góðum árangri.
„Fyrir utan sogæðastígvél
og sogæðatækin VacuSport og
VacuMed erum við með vafninga
fyrir appelsínuhúð og bólgur. Þess
má geta að sogæðanudd er einnig
afar góð forvörn fyrir hjarta- og
æðakerfi líkamans og mikið um
að læknar sendi til okkar fólk í for-
varnarskyni,“ upplýsir Sandra sem
tvöfaldaði nýlega stærð stofunnar.
„Það var þörf á fleiri meðferðar-
herbergjum og vélum og einn
daginn var ég hætt að geta snúið
mér við. Eftirspurn eftir meðferð-
um hefur stóraukist og nú getum
við líka þjónustað enn betur fólk
með hreyfihömlun því við höfum
tekið í notkun VacuSport með
sleða,“ segir Sandra sem uppsker
daglega innileg faðmlög frá fólki
sem upplifir mikla vellíðan eftir
meðferðirnar.
„Hingað sækir fólk með stoð-
kerfisvandamál; flugfreyjur,
íþróttafólk, fólk með slæmt æða-
kerfi, fólk sem er að ná sér eftir
aðgerðir eða hreinlega fólk sem
þjáist af síþreytu. Það á sameigin-
legt að finna á sér mikinn mun. Það
á auðveldara með gang, líður betur
í fótunum og losnar við fótapirring
og bjúg. Við finnum því fyrir miklu
þakklæti og ein var svo ánægð með
þjónustuna að hún gaf stofunni
nýja vél. Hún kom til okkar í hjóla-
stól en spilar nú golf á Spáni.“
Tannhvíttun og fitufrysting
Eiginmaður Söndru, Eyjólfur Krist-
jánsson, er útlærður í tannhvíttun
og hefur boðið upp á slíkt með
góðum árangri hjá Heilsu og útliti.
„Ég hef áhuga á að bjóða upp
á heildrænar lausnir og ráðgjöf.
Meðferðarúrræðin eru því marg-
vísleg og alltaf bætist við nýtt,“
segir Sandra sem býður meðal
annars upp á fitufrystingu með
góðum árangri. „Fitufrysting er
náttúruleg meðferð þar sem kuldi
er notaður til að frysta og fjarlægja
fitufrumur. Fitufrumurnar skolast
síðan út með sogæðakerfinu og við
getum flýtt fyrir ferlinu með því að
tvinna saman sogæðameðferð við
fitufrystinguna,“ útskýrir Sandra
og tekur fram að alltaf sé passað
að nota hæfilegan kulda sem valdi
engum skaða.
Þá er ótalinn súrefnishjálmur
sem nýtur mikilla vinsælda á
stofunni.
„Súrefnishjálmurinn hefur vakið
mikla athygli. Hann hentar fólki
með kvíða, asma eða mígreni,
en líka þeim sem eru með slæma
húð. Nýjasti hjálmurinn er með
innrauðum ljósum sem auka þétt-
ingu húðar, draga úr rósroða og
öramyndun og eykur kollagen í
húð. Hann er góður gegn streitu og
eflir ónæmiskerfið og oft brotnar
fólk saman þegar það slakar á í
súrefnishjálminum og fer í gegnum
tilfinningalíf sitt,“ upplýsir Sandra
og bætir við að sums staðar í heim-
inum mæti fólk gagngert í súrefnis-
stöðvar til að hlaða batteríin.
„Það er æðislegt að geta loks
boðið upp á þessa ljósa- og súr-
efnismeðferð sem hefur yngjandi
áhrif, rétt eins og Michael Jackson
og Madonna reyndu á eigin skinni
til að vera hvað unglegust. Þetta er
því algjört töfratæki,“ segir Sandra.
24 karata gullmaski
Meðal nýjunga hjá Heilsu og útliti
er taílenskt nudd sem stundum er
kallað jóganudd og veldur góðu
orkuflæði um líkamann. Sandra
er líka með umboð fyrir spænska
hágæða húðvörumerkið Casmara,
sem var fyrst til að framleiða
gúmmímaska og á stofunni er
meðal annars hægt að fá 24k gull-
maska.
„Nýlega fengum við umboð fyrir
FitLine-vítamín sem eru viður-
kennd af Evrópusambandinu og
standast alþjóðlegar öryggiskröfur
um gæði og hreinleika. Vítamínin
eru orðin þau allra vinsælustu á
Íslandi, með yfir þúsund áskrifend-
ur,“ upplýsir Sandra um FitLine sem
er 100 prósent náttúrulegt vítamín,
unnið úr hreinni matvöru.
„FitLine er bylting. Vítamínið
kemur í duftformi sem er blandað
í vatn og upptakan er því 100 pró-
sent. Það samsvarar því að drekka
eitt og hálft kíló af grænmeti á dag
og hjálpar fólki með meltingu,
orku og svefn,“ upplýsir Sandra og
bendir á að hægt sé að fá kynn-
ingarpakka. „Þá getur fólk leitað
til okkar og bókað ráðgjöf bæði
varðandi líkamlega heilsu og fæðu-
bótarefnin.“
Allt starfsfólk Heilsu og útlits er
faglært og hefur sótt námskeið til
að mega stjórna tækjunum. Sjálf
er Sandra með leyfi til að kenna
á tækin og útskrifast senn sem
meistari.
„Við fögnum nú fimm ára afmæli
og því að í dag hafa tíu útibú orðið
sér úti um Weyergans-tæki hjá
okkur og ekkert lát er á því. Það er
ánægjulegt að hægt sé að þjónusta
fólk í sinni heimabyggð með bestu
heilsutækjum heims,“ segir Sandra
sem býður gestum og gangandi í
afmæli föstudaginn 14. júní.
„Við ætlum að gleðjast og vera
með opið hús á milli klukkan 17
og 19, þar sem allir eru hjartanlega
velkomnir að fá sér léttar veitingar,
skoða stofuna og tækin og njóta
glæsilegra afmælistilboða í tilefni
dagsins. Sjón er sögu ríkari.“
Stofur sem bjóða upp á sogæða-
nudd með Weyergans-tækjum
eru: Heilsustofan Eygló á Sel-
fossi, Heilsu- og fegrunarstofa
Huldu í Borgartúni, Weyergans
Stúdíó á Siglufirði, Gallery 730 á
Reyðarfirði, Nuddstofa Margrétar
í Borgarnesi, Heilsa og Líðan á
Akureyri, Heilsueyjan Spa í Vest-
mannaeyjum, Táin og Strata á
Sauðárkróki og Guðbjörg Bowen-
tæknir í Njarðvík.
Heilsa og útlit er í Hlíðar smára 17.
Hafið samband í síma 562 6969 til
að bóka tíma, fá fría ráðgjöf um
meðferðir eða kynna sér vítamín-
in. Nánar á heilsaogutlit.is
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-E
5
D
C
2
3
3
0
-E
4
A
0
2
3
3
0
-E
3
6
4
2
3
3
0
-E
2
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K