Fréttablaðið - 11.06.2019, Qupperneq 4
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
LOKAÐ LAUGARDAGA FRÁ 8. JÚNÍ TIL OG MEÐ 3. ÁGÚST
jeep.is
JEEP ® CHEROKEE
SUMARTILBOÐ
SUMARPAKKI 1: Málmlitur
TILBOÐSVERÐ MEÐ AUKAHLUTUM: 7.390.000 KR. - LISTAVERÐ 8.110.000 KR.
Helsti staðalbúnaður Jeep® Cherokee Longitude Luxury*:
• 2.2 lítra 195 hestafla díselvél, 9 gíra sjálfskipting
• Jeep Active Drive I Select Terrain
með 4 drifstillingum,
• Rafdrifin snertilaus opnun á afturhlera
• Leðurinnrétting
• 8,4” upplýsinga- og snertiskjár
• Íslenskt leiðsögukerfi
• Bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð
• Hágæða Alpine hljómflutningskerfi
með bassaboxi
• Apple & Android Car Play
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
*Aukahlutir ekki í tilboði: Hjól og hjólafestingar.
SUMARPAKKI 2: Málmlitur, borgarpakki, þægindapakki og glerþak (panorama).
TILBOÐSVERÐ MEÐ AUKAHLUTUM: 8.090.000 KR. - LISTAVERÐ 8.860.000 KR.
DÓMSMÁL Ekkert útlit virðist vera
fyrir að Airbus-þota bandaríska
flugvélaleigufyrirtækisins ALC, sem
Isavia kyrrsetti á Keflavíkurflugvelli
í lok mars fyrir ríflega tveggja millj-
arða króna skuld WOW air, losni
þaðan í bráð.
Landsréttur úrskurðaði 24. maí
síðastliðinn að Isavia hefði verið
heimilt að kyrrsetja þotu ALC sem
leigð var til WOW air. Oddur Ást-
ráðsson, lögmaður ALC, sótti í kjöl-
farið um leyfi Hæstaréttar til að fá
málið tekið fyrir þar. Oddur kveðst
eiga von á því að ákvörðun Hæsta-
réttar um hvort ALC fái kæruleyfi
eða ekki liggi fyrir á næstu tveimur
vikum.
„Það er ekki skorið að neinu leyti
úr því í niðurstöðu Landsréttar
hver beri greiðsluskylduna – hvort
ALC eigi yfirhöfuð að borga þessa
summu – heldur bara að Isavia hafi
mátt kyrrsetja vélina fyrir allri fjár-
hæðinni: Þeir mega stoppa það að
vélin fari en hvort þeir geti sent ALC
reikning er ennþá óleyst. Þetta er eitt
af þeim atriðum sem við erum að
reyna að segja Hæstarétti að þurfi
að leysa úr,“ segir Oddur.
Fáist kæruleyfi mun enn líða tími
þar til Isavia skilar sinni greinargerð
til Hæstaréttar. Oddur segir að á
meðan beðið sé ákvörðunar Hæsta-
réttar skoði ALC hvaða leiðir verði
skynsamlegast að fara.
„Boltinn er hjá Hæstarétti og við
notum tímann á meðan til þess að
velta fyrir okkur öllum þeim mögu-
legu sviðsmyndum sem geta komið
upp miðað við ólíkar niðurstöður
Hæstaréttar um þessa kæru og hvað
við gerum þá næst,“ segir hann.
Sjö þotur í eigu ALC voru í þjón-
ustu hjá WOW þegar rekstur flug-
félagsins stöðvaðist í lok mars. Tvær
þeirra voru á Keflavíkurflugvelli en
hinar fimm á ýmsum flugvöllum
erlendis. Engin fyrirstaða virðist
hafa verið á flugvöllunum ytra fyrir
ALC að endurheimta þotur sínar
þaðan enda ólíklegt að WOW hafi
þar fengið að safna skuldum vegna
þjónustugjalda líkt og reyndin var
á Íslandi. Aðspurður kveðst Oddur
ekki hafa upplýsingar um það. – gar
Skoða ólíkar sviðsmyndir í kyrrsetningarmáli ALC
Það er ekki skorið
að neinu leyti úr því
í niðurstöðu Landsréttar
hver beri greiðsluskylduna
Oddur Ástráðsson, lögmaður ALC.
STJÓRNSÝSLA Lögfesta á f imm
mánaða hámarks málsmeðferðar-
tíma hjá úrskurðarnefnd um upp-
lýsingamál, samkvæmt frumvarpi
forsætisráðherra um breytingar á
upplýsingalögum. Þriðja umræða
um f r umvar pið er á dagsk rá
Alþingis í dag.
Samkvæmt frumvarpinu er fellt
brott skilyrði um að úrskurð skuli
kveða upp svo f ljótt sem verða má
en í stað þess áskilið að úrskurð
skuli kveða upp innan 150 daga frá
því kæra berst nefndinni.
„Okkur yfirsást að frumvarpið
geri ráð fyrir því að orðin „svo
f ljótt sem verða má“ falli brott
úr lögunum með því að 150 daga
hámarkstíminn komi inn. Það var
ekki markmiðið og ég hef óskað
eftir því við nefndina að orðin
fari aftur inn áður en frumvarpið
verður samþykkt,“ segir Jón Þór
Ólafsson, framsögumaður málsins
í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
L a ng u r má lsmeðferða r t ími
nef ndar innar hef ur ver ið til
umfjöllunar í fjölmiðlum og hjá
stjórnvöldum um árabil og hefur
styst nokkuð á síðustu tveimur
árum. Meðal afgreiðslutími nefnd-
arinnar á síðasta ári var 212 dagar
frá því kæra barst nefndinni.
„Eðli máls samkvæmt geta upp-
lýsingar og gögn sem kallað er eftir
misst gildi sitt þegar margar vikur
líða frá því óskað var eftir þeim. Þá
breytir engu hvort liðið hafa 150
dagar eða 200 dagar,“ segir Jóhann
Páll Jóhannsson blaðamaður sem
hefur þurft að leita til úrskurðar-
nefndarinnar við vinnslu frétta.
Frumvarpið festi í sessi allt of langa
bið almennings eftir upplýsingum
Frumvarp forsætisráðherra leysir ekki of langan málsmeðferðartíma úrskurðarnefndar um upplýsingamál heldur festir vanda-
málið í sessi, að mati blaðamanns. Meðalbiðtími eftir úrskurði var 212 dagar á síðasta ári. Frumvarpið mælir fyrir um 150 daga
málsmeðferðartíma að hámarki. Enginn hámarksfrestur er í gildandi lögum. Þriðja umræða um málið fer fram á Alþingi í dag.
Katrín Jakobsdóttir mælti fyrir frumvarpinu í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ef það væri pólitísk-
ur vilji fyrir því að
stórefla upplýsingarétt væri
auðvitað lögfestur miklu
styttri málsmeðferðartími
og stöðugildum fjölgað hjá
úrskurðarnefndinni.
Jóhann Páll
Jóhannsson,
blaðamaður
„Í greinargerð frumvarpsins
kemur fram að „æskilegur máls-
meðferðartími“ hjá nefndinni séu
90 dagar. Allt yfir það hlýtur þá
að teljast óæskilega langur máls-
meðferðartími. Þrátt fyrir það vill
ríkisstjórnin lögfesta 150 daga sem
háma rk smá lsmeðferða r t íma,“
segir hann.
„Ef það væri pólitískur vilji fyrir
því að stóref la upplýsingarétt væri
auðvitað lögfestur miklu styttri
málsmeðferðartími og stöðugild-
um fjölgað hjá úrskurðarnefnd-
inni til að hún gæti staðið undir
því. Hér er ekki verið að gera það
heldur í staðinn bara verið að festa
í sessi fyrirkomulag þar sem lands-
menn þurfa oft að bíða í f leiri mán-
uði eftir því að fá upplýsingar sem
þeir eiga rétt á og varða almanna-
hag.“
Samkvæmt frumvarpinu verður
nýju starfi ráðgjafa um upplýsinga-
mál komið á fót. Honum er ætlað að
leiðbeina borgurum um framsetn-
ingu beiðna um aðgang að gögnum
og vera stjórnvöldum og öðrum
aðilum til ráðgjafar um meðferð
beiðna um aðgang að gögnum og
töku ákvörðunar um rétt beiðanda
til aðgangs.
Hvorki er hins vegar í lögunum
né frumvarpinu kveðið sérstak-
lega á um starfslið fyrir úrskurð-
arnefndina en hún hefur aldrei
haft fastráðinn starfsmann í fullu
starfi. Þau svör fengust í forsætis-
ráðuneytinu að auglýst yrði fullt
starf ritara fyrir nefndina á næstu
misserum.
adalheidur@frettabladid.is
Efni nokkurra úrskurða frá 2018 og fjöldi daga sem liðu frá kæru úrskurðar
• Úrskurður um aðgang blaðamanns að sátt sem
RÚV gerði um bætur til einstaklings sem höfðað
hafði meiðyrðamál við stofnunina. Í úrskurðinum
er vísað til þess að um sé að ræða upplýsingar
um ráðstöfun opinbers fjár sem almenningur eigi
ríkan rétt til að kynna sér. 193 dagar.
• Úrskurður um aðgang blaðamanns að upplýs-
ingum um styrktarsamning milli Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands og Gamma Capital Management hf.
161 dagur.
• Úrskurður sem staðfesti synjun um aðgang að
gögnum hjá Samgöngustofu um hergagnaflutn-
inga á tilteknu tímabili. 217 dagar.
• Úrskurður um aðgang blaðamanns Fréttablaðsins
að fundargerðum kjararáðs. 104 dagar.
• Úrskurður um aðgang blaðamanns að minnis-
blöðum í velferðarráðuneytinu tengdum sam-
skiptum barnaverndarnefnda við Barnaverndar-
stofu. 184 dagar.
• Úrskurður um aðgang
erlends blaðamanns
að trúnaðarbréfi
sendiherra Íslands
í Palestínu.
155 dagar.
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-D
B
F
C
2
3
3
0
-D
A
C
0
2
3
3
0
-D
9
8
4
2
3
3
0
-D
8
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K