Fréttablaðið - 11.06.2019, Page 6
Fljótshlíðarvegur
Þjóðvegur 1
Hvolsvöllur
n MarkarfljótSlysstaður Flugvöllur
✿ Flugslys í FljótshlíðFLUGSLYS Hjón fórust ásamt syni
sínum í f lugslysinu sem varð við
f lugvöllinn í Múlakoti í Fljótshlíð
á sunnudagskvöld. Annar sonur
hjónanna og tengdadóttir liggja
alvarlega slösuð á Landspítala
eftir slysið. Líðan þeirra er stöðug
að sögn lögreglu.
Á fimmta tug slökkviliðs-, lög-
reglu- og sjúkraf lutningamanna
komu að aðgerðum á slysstað. Tvær
þyrlur Landhelgisgæslunnar fóru
einnig á vettvang og f luttu hin slös-
uðu til Reykjavíkur. Þá veitti við-
bragðsteymi Rauða kross Íslands
vitnum að atvikinu og öðrum á
vettvangi sálrænan stuðning.
Eitt vitni varð að brotlendingu
vélarinnar rétt norðan við f lug-
völlinn í Múlakoti upp úr klukkan
20 en f lugmaður vélarinnar hafði
æft snertilendingar á f lugvellinum
skömmu fyrir slysið. Um æfingu er
að ræða þar sem f lugtaksbrun er
hafið án þess að vélin sé stöðvuð.
Þegar slökkviliðið kom á vett-
vang logaði eldur í vinstri væng
vélarinnar og beita þurfti klippum
til að komast að fólkinu sem var í
vélinni.
Tildrög slyssins eru í rannsókn
hjá rannsóknardeild lögreglu-
stjórans á Suðurlandi sem nýtur
aðstoðar bæði rannsóknarnefndar
samgönguslysa og tæknideildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
„Við tókum við vettvangnum
á sunnudagskvöldið og héldum
áfram fram á nótt. Þá voru allir
farnir nema við og við kláruðum
vettvangsrannsókn snemma á
mánudagsmorguninn. Svo fórum
við bara í það að ganga frá f lakinu.
Fengum bíl til að koma því í skýli
til okkar til frekari rannsóknar,“
segir Ragnar Guðmundsson hjá
rannsóknarnefnd samgönguslysa
í samtali við Fréttablaðið. Svo verði
rætt við vitni.
Búist er við að rannsókn taki ein-
hverjar vikur.
Um tveggja hreyf la fimm manna
Piper PA-23 vél er að ræða. Hún er
skráð í Georgíu í Bandaríkjunum.
Framleiðsluár hennar er skráð
1957 en hún hefur samkvæmt
skráningu verið endurnýjuð að
mjög miklu leyti. Þessi sama vél
lenti í ógöngum við f lugvöllurinn
í Múlakoti fyrir rúmum áratug.
Flugmaður vélarinnar var þá að
æfa snertilendingar. Honum urðu
á mistök sem leiddu til þess að f lug-
vélin hafnaði á f lugbrautinni með
nef og skrúfu á undan. Ekki urðu
slys á fólki.
sighvatur@frettabladid.is,
adalheidur@frettabladid.is
palmik@frettabladid.is
Hjón létust í slysinu ásamt syni sínum
Hjón fórust ásamt syni sínum í flugslysinu sem varð við Múlakot í Fljótshlíð á sunnudagskvöld. Annar sonur hjónanna og tengda-
dóttir liggja alvarlega slösuð á Landspítalanum. Líðan þeirra er stöðug að sögn lögreglu. Tildrög slyssins eru í rannsókn.
Á fimmta tug manna komu að björgunaraðgerðum á vettvangi slyssins við Múlakot í Fljótshlíð á sunnudagskvöld. Nota þurfti klippur til að komast að fólkinu í vélinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Tugir hafa farist í flugslysum á síðustu áratugum
5. ágúst 2013
TF-MYX, sjúkraflugvél Mýflugs, brotlenti á akstursíþróttabraut við
Hlíðarfjallsveg á Akureyri. Tveir létust.
7. ágúst 2000
TF-GTI, á vegum Leiguflugs Ísleifs Ottesen, með sex manns innan-
borðs hrapaði í sjóinn í Skerjafirði. Allir sex létust
14. september 1995
TF-ELS, vél flugskólans Flugtaks, brotlenti í Glerárdal. Þrír ungir menn
létust, allir frá Patreksfirði.
3. maí 1967
DC-3, flugvél Flugsýnar sem var í vöruflutningaflugi, fórst við lendingu
í Vestmannaeyjum. Þrír létust.
15. desember 1953
P2V Neptune herflugvél fórst á Mýrdalsjökli. Átta bandarískir her-
menn fórust.
29. maí 1947
TF-ISI Douglas DC-3 flugvél Flugfélags Íslands flaug á Hestfjall í
Héðinsfirði. Þetta er mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar. Allir 25
sem voru um borð létust.
Vélin sem brotlenti er
tveggja hreyfla fimm manna
vél af gerðinni Piper PA-23.
Vélin hafði áður lent í
óhappi við sama flugvöll.
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-E
F
B
C
2
3
3
0
-E
E
8
0
2
3
3
0
-E
D
4
4
2
3
3
0
-E
C
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K