Fréttablaðið - 11.06.2019, Side 8
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar:
Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17
og laugardaga kl. 12-16
24.624 kr.
• Miðað við 90% Lyk
illán
• Kaupverð 1.690.00
0 kr.
• Útborgun 169.000
kr.
• Vextir 8%
• Lánstími 84 mánuð
ir
• Árleg hlutfallstala k
ostnaðar 9,60%
Mánaðargreiðsla:
SUMARTILBOÐ:
KR.
Komdu, reynsluaktu og upplifðu Ford KA+
1.690.000
ford.is
GEGGJUÐ TILBOÐ!
FORD KA+
ULTIMATE SPORT 1.2i bensín, 85 hö, beinskiptur
SUMARTILBOÐ!
BRIMBORGAR -365.000 kr.
Verð með málmlit:
2.055.000 kr.
Ford_KA+_SUMARTILBOÐ_5x15_20190607_END.indd 1 07/06/2019 15:44
UMHVERFISMÁL Eyðilegging líf
ríkis af mannavöldum hefur valdið
því að „ógnvekjandi“ fjöldi plöntu
tegunda er nú útdauður samkvæmt
vísindamönnum sem hafa lokið
fyrstu alþjóðlegu greiningunni á
viðfangsefninu. Breski miðillinn
The Guardian greinir frá.
Samkvæmt rannsókninni hefur
571 tegund örugglega orðið útdauð
síðan 1750 en þar sem þekking
okkar á mörgum plöntutegundum
er enn mjög takmörkuð er raunin
líklega að fjöldinn sé töluvert meiri.
Rannsóknin segir líka útrýmingar
hraða plöntulífs hafa fimmhund
ruðfaldast síðan fyrir iðnbyltinguna
á Vesturlöndum en talið er líklegt
að sú tala sé einnig of lág.
„Plöntur eru undirstaða alls lífs
á plánetunni,“ segir doktor Eimear
Nic Lughadha, sem starfar hjá
Konunglega grasagarðinum í Kew
í London og var í rannsóknarteym
inu. „Þær eru okkur lífsnauðsyn
legar, sjá okkur meðal annars fyrir
súrefni sem við öndum að okkur og
mat sem við borðum og eru einnig
burðarás vistkerfa jarðar – þann
ig að útrýming plöntutegunda eru
vondar fréttir fyrir alla.“
Fjöldi plöntutegunda sem hafa
horfið úr náttúrunni er rúmlega
tvöfaldur fjöldi útdauðra fugla,
spendýra og froskdýra saman
lagður. Nýja talan er að auki fjór
faldur fjöldi útdauðra plantna á
skrá á rauða lista alþjóðlegu nátt
úruverndarsamtakanna IUCN (The
International Union for Conserva
tion of Nature).
„Þetta er miklu meira en við áður
vissum og miklu meira en hefði
átt að verða útdautt,“ sagði doktor
Maria Vorontsova, sem vinnur líka
í grasagarðinum. „Þetta er ógnvekj
andi, ekki bara vegna tölunnar 571,
heldur vegna þess að ég tel sönnu
töluna vera miklu hærri.“
Hún sagði raunina vera að sanni
útrýmingarhraðinn gæti auðveld
lega verið margfalt meiri en sá sem
greint er frá í könnuninni sem birt
var í tímaritinu Nature Ecology and
Evolution. Sem dæmi mætti nefna
þúsundir plöntutegunda sem eru
„lifandi dauðar“ þar sem síðustu
lifandi eintökin eiga engan mögu
leika á að fjölga sér vegna þess að
til dæmis aðeins eitt kyn er enn lif
andi eða að dýrin sem áður dreifðu
fræjum plöntunnar eru útdauð.
„Við þjáumst af plöntublindni.
Dýr eru sæt, mikilvæg og fjölbreytt
en ég er í algjöru losti yfir áhuga
leysinu og skorti á meðvitund um
mikilvægi plantna. Við tökum þeim
sem gefnum, og mér finnst ekki að
við ættum að gera það,“ bætti Vor
ontsova við.
palmik@frettabladid.is
Ógnvekjandi fjöldi plantna
útdauður af mannavöldum
Ný alþjóðleg rannsókn staðfestir að tæplega sex hundruð plöntutegundir hafa orðið útdauðar frá því um
miðja 18. öld. Sú tala er að öllum líkindum of lág að mati vísindamanna sem hafa áhyggjur af áhugaleysi
þegar kemur að mikilvægi plantna. Þær séu burðarás vistkerfa jarðar og undirstaða lífs á plánetunni.
Frá Konunglega grasagarðinum í Kew í London þar sem rannsakendurnir starfa.NORDICPHOTOS/GETTY
Þetta er miklu
meira en við áður
vissum og miklu meira en
hefði átt að verða útdautt.
Dr. Maria Vorontsova
ERLENT Í gærkvöldi kom í ljós að tíu
manns bjóða sig fram til formanns
breska Íhaldsflokksins og þar með
til forsætisráðherraembættis Bret
lands.
Þingmenn Íhaldsflokksins, sem
eru 313 talsins, greiða atkvæði á
fimmtudaginn og ef frambjóðend
um tekst ekki að fá sautján atkvæði
eru þeir útilokaðir úr næstu umferð
kosninganna.
Í hópnum eru tvær konur og átta
karlar, fimm þeirra eru núverandi
ráðherrar í ríkisstjórn Theresu May
og fimm eru fyrrverandi ráðherrar.
Meðal ráðherranna fyrrverandi
sem bjóða sig fram til formanns eru
Andrea Leadsom, sem tapaði fyrir
May í síðustu formannskosningum,
og Boris Johnson, sem er af mörgum
talinn líklegastur til sigurs. – pk
Tíu vilja taka
við af May
MENNTAMÁL Brotthvarf nýnema
úr framhaldsskólum stendur í stað
milli ára. Þetta kemur fram í svari
menntamálaráðherra við fyrirspurn
Ingu Sæland, þingmanns Flokks
fólksins. Inga óskaði eftir tölum frá
aldamótum, en ekki eru til tölur frá
því fyrir 2010 og engin kyngreind
gögn nema þrjú ár aftur í tímann.
Árlegt brotthvarf nýnema hefur
staðið í stað frá 2010, eða á bilinu 6
til 8 prósent af nýnemahópum sem
telja iðulega í kringum rúmlega 4
þúsund nemendur.
Brotthvarf er meira meðal karl
kyns nemenda en kvenkyns. Á
skólaárinu 2017 til 2018 var brott
hvarfið 6,4 prósent af 3.980 nem
endur, eða 258 nemendur. Þar af
voru 153 karlkyns nemendur. – ab
Brotthvarf
stendur í stað
Theresa May. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-E
A
C
C
2
3
3
0
-E
9
9
0
2
3
3
0
-E
8
5
4
2
3
3
0
-E
7
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K