Fréttablaðið - 11.06.2019, Qupperneq 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sighvatur
Arnmundsson
sighvatur@frettabladid.is
Ef þeirri
kynslóð sem
nú er við
stjórnvölinn
tekst ekki að
leysa lofts-
lagsvandann
verður hún
að sjá til þess
að það verði
ekki of seint
fyrir þá
næstu.
Í dag – á
þjóðhátíðar-
degi Rúss-
lands – er
því gott að
muna að
þrátt fyrir
allt eiga
Rússland og
Ísland langa
sögu góðra
samskipta á
mörgum
sviðum,
ekki síst
milliríkja-
viðskipta.
Umhverfissjóður sjókvíaelds auglýsir styrki til
rannsókna vegna burðarþolsmats, vöktunar o. fl.
Markmið Umhverfissjóðs sjókvíaeldis er að lágmarka umhverfisáhrif
af völdum sjókvíaeldis.
Sjóðurinn greiðir kostnað við rannsóknir vegna burðarþolsmats,
vöktunar og annarra verkefna. Við mat á umsóknum við úthlutun 2019
munu framhaldsverkefni njóta forgangs.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á vefslóð
sjóðsins www.umsj.is.
Umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið postur@anr.is eigi síðar en
5. júlí 2019.
Frekari upplýsingar veitir Ása María H. Guðmundsdóttir,
asa.maria@anr.is
Brátt verða fjögur ár liðin frá því að stjórnvöld í Rússlandi settu innflutningsbann á íslenska mat-vöru út af þátttöku í afmörkuðum þvingunarað-
gerðum vegna Úkraínudeilunnar og brota á alþjóðalög-
um sem skipta okkur miklu. Bannið hafði í för með sér
mikinn samdrátt á útflutningi til Rússlands enda mun
umfangsmeira en aðgerðirnar sem Ísland tekur þátt í.
Stundum er sagt að þegar einar dyr lokist opnist
aðrar. Þannig hafa ný markaðstækifæri opnast í Rúss-
landi, ekki síst vegna sívaxandi fjárfestinga Rússa í
landbúnaði og sjávarútvegi – meðal annars vegna þess
að lokað var fyrir innflutning á vestrænum matvælum!
Það er ánægjulegt að tækifærin eru á sviði nýsköp-
unar og hátækni, atvinnuvega sem íslensk stjórnvöld
leggja áherslu á að byggja upp til framtíðar. Íslensk
þekkingarfyrirtæki sem framleiða búnað fyrir mat-
vælavinnslu og fiskveiðar hasla sér nú völl í Rússlandi.
Nú þegar hafa nokkur gert eða eru við það að ganga
frá milljarðasamningum um sölu á tækni og búnaði til
nýrra skipa eða vinnslu í landi.
Tækifæri eru líka á sviði landbúnaðar. Þótt íslensk
mjólk komi reyndar hvergi nærri hófu íslenskir aðilar
nýverið í gegnum samstarfssamning við rússnesk
mjólkurbú skyrframleiðslu eftir íslenskri uppskrift.
Til marks um gagnkvæman áhuga á viðskiptum
þjóðanna má svo nefna að nýverið fóru annars vegar
fram stofnfundur Rússnesks-íslensks viðskiptaráðs
og hins vegar fundur Íslandsstofu með rússneskum
og íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum. Rússneskt
flugfélag býður nú upp á beint flug á milli landanna yfir
sumarmánuðina.
Síðast en ekki síst skiptir miklu að þótt íslensk og rúss-
nesk stjórnvöld greini á um ýmislegt fara samskiptin
batnandi. Forsetar landanna hittust fyrr á árinu og í maí,
þegar Ísland tók við formennsku í Norðurskautsráðinu,
átti ég fund með utanríkisráðherra Rússlands, þar sem
gott samstarf á vettvangi norðurslóða var undirstrikað.
Í dag – á þjóðhátíðardegi Rússlands – er því gott að
muna að þrátt fyrir allt eiga Rússland og Ísland langa
sögu góðra samskipta á mörgum sviðum, ekki síst milli-
ríkjaviðskipta. Að þessu sambandi vil ég áfram hlúa.
Birtir til
Guðlaugur Þór
Þórðarson,
utanríkisráð-
herra.
Það eru stjórnendur sem standa í vegi fyrir því að takast á við loftslagsvandann því þeir eru bundnir við gamla tíma, börnin eru það ekki,“ sagði Páll Bergþórsson, fyrr-verandi veðurstofustjóri, í helgarviðtali í Fréttablaðinu. Páll, sem verður 96 ára í
sumar, hrósar ungu kynslóðinni sem meðal annars
hefur staðið fyrir vikulegum loftslagsmótmælum til að
krefja stjórnvöld um frekari aðgerðir. Landvernd tekur
undir með þessum kröfum en á aðalfundi samtakanna
í síðasta mánuði var samþykkt ályktun þar sem skorað
er á íslensk stjórnvöld að lýsa yfir neyðarástandi vegna
loftslagsbreytinga. Loftslagsmálin eru loksins að fá þá
athygli sem þau eiga skilið og ljóst að umræðan mun
ekki hverfa.
Þessa þróun má líka sjá með greinilegum hætti í
löndunum í kringum okkur. Þannig unnu Græningjar
og samstarfsflokkar þeirra mikinn sigur í Evrópu-
þings kosningum í lok síðasta mánaðar. Grænir flokkar
eru ekki lengur á jaðrinum í stjórnmálunum heldur
áhrifamikið afl sem taka verður mark á.
Umhverfismál og þá sérstaklega loftslagsmál voru
líka áberandi í nýafstöðnum þingkosningum í Dan-
mörku. Í könnun sem gerð var í aðdraganda kosn-
inganna töldu raunar flestir að umhverfis- og lofts-
lagsmál væru mikilvægasta málefnið, eða 22 prósent
kjósenda. Tveir af þremur helstu stuðningsflokkum
Jafnaðarmanna í rauðu blokkinni bættu miklu fylgi
við sig í kosningunum. Þessir flokkar lögðu einmitt
mjög mikla áherslu á aðgerðir í loftslagsmálum. Það
verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr stjórnar-
myndunarviðræðunum en gera má ráð fyrir afar
metnaðarfullum markmiðum þegar kemur að losun
gróðurhúsalofttegunda. Þannig hafa Jafnaðarmenn
talað fyrir því að losunin verði 60 prósentum minni
árið 2030 en hún var 1990. Samstarfsflokkarnir í rauðu
blokkinni vilja ganga enn lengra og ná 70 prósenta
minni losun. Til samanburðar hafa íslensk stjórnvöld
skuldbundið sig á grundvelli Parísarsamkomulagsins
til að hafa minnkað losun um 40 prósent árið 2030
miðað við 1990.
Ríkisstjórnin setti fram aðgerðaáætlun í loftslags-
málum síðastliðið haust þar sem meðal annars er
stefnt að kolefnishlutleysi landsins árið 2040. Nú þegar
samdráttur er í efnahagskerfinu og endurskoða þarf
ríkisfjármálin er mikilvægt að stjórnvöld sýni þá fram-
sýni að draga ekki úr fjárveitingum til málaflokksins.
Fréttir hafa borist af því að meðal breytingatillagna
við fjármálaáætlun næstu fimm ára sé niðurskurður
til umhverfismála upp á 1.400 milljónir króna miðað
við upphaflegar tillögur. Þótt það séu kannski ekki
miklir fjármunir í stóra samhenginu myndi það senda
röng skilaboð inn í framtíðina.
Páll Bergþórsson hefur trú á því að ungu kynslóð-
inni takist að leysa vandann á heiðarlegan og snjallan
hátt en mikilvægt sé að skipta um orkugjafa sem allra
fyrst. Ef þeirri kynslóð sem nú er við stjórnvölinn tekst
ekki að leysa loftslagsvandann verður hún að sjá til
þess að það verði ekki of seint fyrir þá næstu.
Röng skilaboð
Háværi minnihlutinn
Óþekktur bréfritari næst-
stærsta dagblaðs landsins fór
mikinn gegn forystu Sjálf-
stæðisf lokksins um helgina.
Þeir sem enn lesa Reykjavíkur-
bréf hafa fyrir löngu áttað sig
á að viðkomandi á lítið erindi í
Sjálfstæðisf lokkinn. Bréfritari
á augljóslega betur heima í Mið-
f lokknum en öðrum f lokkum.
Tilgangur skammanna á líkleg-
ast að vera að hræða forystuna
til að fara aftur í tímann. Það
getur ekki verið auðvelt fyrir
mann sem áður leiddi þögla
meirihlutann að átta sig á
að gamlir viðhlæjendur hans
eru það svo sannarlega ekki í
dag.
Þvottaburstinn
Óvæntasta drama hvítasunnu-
helgarinnar var óneitanlega
Belginn sem móðgaði tyrk-
nesku þjóðina fyrir hönd
Íslands með því að reka upp-
þvottabursta framan í leik-
mann Tyrklands. Þetta furðu-
lega grín var kornið sem fyllti
mælið hjá gestum okkar sem
höfðu þurft að bíða í þrjá tíma á
Kef lavíkurf lugvelli af öryggis-
ástæðum. Tyrkneski utanríkis-
ráðherrann hefur beðið þann
íslenska um afsökunarbeiðni.
Er þá ekki komið að okkur að
krefja utanríkisráðherra Belga
um afsökunarbeiðni?
arib@frettabladid.is
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-D
7
0
C
2
3
3
0
-D
5
D
0
2
3
3
0
-D
4
9
4
2
3
3
0
-D
3
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K