Fréttablaðið - 11.06.2019, Síða 14
Mér líður mjög vel
hérna og kann vel
við það traust og þá virð-
ingu sem mér hefur verið
sýnd í störfum mínum.
Þorlákur Árnason
Ég finn það vel á
leikmönnum hvað
sigurinn gegn Albaníu gerði
mikið fyrir sjálfstraustið.
Við erum ferskir og spenntir
fyrir þessum leik.
Aron Einar Gunnarsson
FÓTBOLTI Ísland fær Tyrkland í
heimsókn á Laugardalsvöllinn í
undankeppni EM 2020 í knatt-
spyrnu karla í kvöld. Tyrkland
mætir til þessa leiks með mikið
sjálfstraust en liðið er taplaust eftir
fyrstu þrjár umferðir undankeppn-
innar og lagði ríkjandi heimsmeist-
ara Frakka að velli í Konya í síðustu
umferð undankeppninnar.
Íslenska liðið hefur einnig byrjað
undankeppnina vel en liðið vann
lífsnauðsynlegan sigur gegn Alban-
íu á laugardaginn og það mátti ber-
sýnilega merkja það á leikmönnum
liðsins og Erik Hamrén þjálfara, sem
mikil pressa hefur verið á, að sigur-
inn hafði mikla þýðingu. Hamrén
og Aron Einar Gunnarsson voru
sammála um það á blaðamanna-
fundi sem haldinn var í gær að
sigurinn gegn Albaníu hefði veitt
liðinu sjálfstraust.
Að sama skapi áréttuðu þeir að
fram undan væri erfiður leikur
og árangur Tyrklands í undan-
keppninni fram að þessu sýndi
fram á styrkleika liðsins. Ísland
hefur mætt Tyrklandi í síðustu
tveimur undankeppnum stórmóta
og íslenska liðið hefur haft gott tak
á því tyrkneska. Ísland hefur sigrað
í þremur af fjórum síðustu leikjum
liðanna. Hins vegar ber að nefna
að miklar breytingar hafa orðið á
tyrkneska liðinu undir stjórn Senol
Gunes og sem dæmi má nefna að
einungis þrír af þeim fjór tán leik-
mönnum sem tóku þátt í að leggja
Frakka að velli um helgina spiluðu
í fræknum sigri Íslands í Eskisehir
í undankeppni HM 2018 árið 2017.
Birkir og Jóhann Berg tæpir
„Við erum mjög spenntir fyrir þeirri
miklu áskorun að etja kappi við
sterkt lið Tyrklands hér á heima-
velli okkar. Við settum okkar það
markmið að fá sex stig út úr leikj-
unum við Albaníu og Tyrkland og
það hefur ekkert breyst. Við förum
í þennan leik til að bera sigur úr
býtum þrátt fyrir að við gerum
okkur grein fyrir að það verði
strembið. Tyrkir hafa haft betur
í fyrstu þremur leikjum undan-
keppninnar án þess að fá á sig mark
sem sýnir hversu öf lugt liðið er,“
sagði Hamrén um andstæðing
kvöldsins.
„Við erum hins vegar líka með
gott lið og sigurinn gegn Alban-
íu veitti liðinu mikið sjálfstraust.
Eftir erfiðan kaf la höfum við nú
sigrað í tveimur af síðustu þremur
leikjum okkar og það sést vel á leik-
mönnum liðsins að sjálfsöryggið
er að aukast. Nú er bara að halda
áfram á þessari braut,“ sagði Svíinn
en hann sagði alla leikmenn liðsins
leikfæra. Þar á meðal Jóhann Berg
Guðmundsson sem fór af velli eftir
tæpan klukkutíma í leiknum á móti
Albaníu vegna stífleika og eymsla í
kálfa. Jóhann Berg og Birkir Bjarna-
son, sem fékk högg á hnéð í leikn-
um gegn Albaníu, eru tæpir vegna
meiðsla sinna.
„Við spiluðum vel á móti Albaníu
og náðum að spila varnarleikinn
þannig að við værum með þá fyrir
framan okkur lungann úr leiknum.
Þannig líður okkur best og við
náum upp okkar besta leik. Tyrkir
spiluðu mjög vel á móti Frökkum,
voru þéttir til baka og sóttu hratt.
Ég held að við verðum meira í því
hlutverki að verjast aftarlega á
móti tyrkneska liðinu og það ætti að
henta okkur vel,“ sagði Aron Einar.
„Ég finn það vel á leikmönnum
liðsins hvað sigurinn gegn Alban-
íu gerði mikið fyrir sjálfstraustið.
Ég og aðrir leikmenn liðsins erum
ferskir og spenntir fyrir þessum
leik. Endurheimtin hefur gengið
vel og það er mikil orka í liðinu og
menn eru staðráðnir í að sækja þrjú
stig í þessum leik,“ sagði fyrirliðinn.
Hasar í aðdraganda leiksins
Nokkurt uppþot átti sér stað hjá
tyrkneska hópnum á ferðalaginu
frá Konya til Keflavíkur. Leikmenn
og forráðamenn liðsins voru ekki
sáttir við að þurfa að gangast undir
jafn umfangsmikið öryggiseftirlit
og raun bar vitni. Utanríkisráð-
herra Tyrklands tjáði sig um málið
og sendiráði Íslands hefur borist
kvörtun vegna málsins.
Belgískur ferðamaður reitti svo
tyrkneska knattspyrnuáhuga-
menn til reiði með því að beina
upp þvotta bursta að Emre fyrirliða
á meðan hann var í viðtali við tyrk-
neska fjölmiðla. Þá var þó nokkur
hiti í tyrkneskum fjölmiðlamönn-
um á blaðamannafundi íslenska
liðsins sem haldinn var í aðdrag-
anda leiksins þar sem þeir voru ekki
sáttir við að hann væri ekki þýddur
á tyrkneska tungu.
Um kvöldmatarleytið munu svo
leikmann takast á um þrjú mjög
mikilvæg stig í baráttunni um að
tryggja sér beint sæti á lokakeppni
EM 2020. Íslenskur sigur myndi
setja liðið í ansi góða stöðu í vegferð
sinni til að tryggja sér farseðilinn á
þriðja stórmótið í röð.
hjorvaro@frettabladid.is
Reyna að stöðva sigurgöngu Tyrkja
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu leikur í kvöld við Tyrkland í fjórðu umferð í undankeppni EM 2020 en leikurinn fer fram á
Laugardalsvellinum. Tyrkir eru taplausir á toppi riðilsins en Ísland og Frakkland fylgja fast á hæla tyrkneska liðinu með sex stig.
FÓTBOLTI Þorlákur Árnason hefur
verið yfirmaður knattspyrnumála
hjá knattspyrnusambandinu í Hong
Kong í fimm mánuði. Þetta fyrsta
misseri í starfi hefur verði við-
burðaríkt og Þorlákur hefur verið
önnum kafinn við hin ýmsu verk-
efni. Hann segir menningarmun-
inn á milli Íslands og Hong Kong
ekki ýkja mikinn en hins vegar séu
teknar ákvarðanir í knattspyrnu-
heiminum þar ytra sem veki furðu
hjá honum og hann hafi tamið sér
að hafa húmor fyrir því hvernig
menn hjá félagsliðum landsins og í
deildarkeppninni þar í landi vinna.
„Það hefur verið of boðslega
mikið að gera og eftir á að hyggja
er ég bara mjög ánægður með það.
Verkefnin sem ég hef tekið að mér
eru mörg og mismunandi og það
hefur hjálpað mér að aðlagast
f ljótt og vel að vera önnum kafinn í
starfi mínu. Hér hef ég fengið sterkt
bakland hjá knattspyrnusam-
bandinu til þess að innleiða mína
hugmyndafræði og koma mínum
stefnuatriðum á koppinn,“ segir
Þorlákur í samtali við Fréttablaðið
um fyrstu mánuði sína í fjarlægu
landi.
„Hér eru milljarðamæringar sem
standa að félagsliðunum í landinu
og stjórn knattspyrnusambandsins
er skipuð sterkum karakterum. Ég
hef fengið mikið traust til þess að
vinna hlutina eftir eigin höfði og ég
er mjög þakklátur fyrir það. Í Asíu
eru oft miklar breytingar gerðar á
skömmum tíma og meðallíftími
manna í starfinu sem ég sinni er
tæpt ár en ég gerði þriggja ára samn-
ing og ég býst við að klára þann
samning. Mér líður mjög vel hérna
og kann vel við það traust og þá
virðingu sem mér hefur verið sýnd
í störfum mínum. Ég er að umbylta
kerfinu hérna og það hefur verið
tekið vel í það,“ segir þessi reynslu-
mikli þjálfari og stjórnandi.
Byrjaði á því að breyta um
hugsunarhátt
„Þegar ég kom hingað var kúltúrinn
sá að draga leikmenn í dilka við
átta ára aldur og knattspyrnusam-
bandið bar hitann og þungann af
öllu akademíustarfi í landinu. Ég
hef breytt kerfinu á þann hátt að
fram að 13 ára aldri er áhersla lögð
á að leikmenn fái jöfn tækifæri og
akademíuhugsunin er í lágmarki. Þá
leggjum við meiri ábyrgð á félögin
sjálf, bæði í barna- og unglingastarf-
inu og þegar kemur að starfrækslu
akademía. Við 14 ára aldurinn
förum við hjá knattspyrnusam-
bandinu hins vegar að taka til okkar
leikmenn sem skara fram úr og þróa
þeirra leik,“ segir hann um þau
atriði sem hann hefur lagt áherslu
á fyrstu mánuðina.
„Ég tók eftir því þegar ég kom
hingað að leikmenn í deildinni og
í landsliðinu voru orðnir helst til
gamlir og það vantaði upp á fram-
tíðarsýn við að gefa ungum og efni-
legum leikmönnum tækifæri bæði
í deildinni og í landsliðinu. Eftir að
mér var falið að aðstoða við þjálfun
A-landsliðsins tókum við inn einn
16 ára leikmann og annan 18 ára
í hópinn til þess að búa þá undir
framtíðina og plægja akurinn fyrir
komandi tíma. Svo vantaði upp-
alda Hong Kong-búa í liðið og við
höfum gert bragarbót á því,“ segir
Þorlákur sem tók fljótlega við sem
aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins
eftir komu sína til Hong Kong.
„Við erum að fara inn í undan-
keppni HM 2022 og svo komumst
við í úrslitakeppni Austur-Asíubik-
arsins. Ég sé fyrir mér að klára þetta
ár í starfi í þjálfarateymi karlalands-
liðsins en einbeita mér svo að fullu
að starfi mínu sem yfirmaður knatt-
spyrnumála sem er mjög viðamikið
starf. Þar er ég sem dæmi að inn-
leiða UEFA Elite-menntunarkerfið
fyrir þjálfara hér í landi auk þess að
halda áfram að þróa og bæta leik-
menn landsins sem er spennandi
og skemmtilegt verkefni.
Það eru mikil sóknarfæri hér í
landi sem og annars staðar í Asíu
og ég er mjög spenntur fyrir næstu
árum hér,“ segir Skagamaðurinn um
framhaldið.
hjorvaro@frettabladid.is
Vikulega teknar mjög sérstakar ákvarðanir
Þorlákur Árnason hefur starfað í Hong Kong í tæpt hálft ár og líkar vel.
Aron Einar Gunnarsson og félagar hans í íslenska liðinu mæta Tyrkjum á Laugardalsvelli í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R14 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-D
2
1
C
2
3
3
0
-D
0
E
0
2
3
3
0
-C
F
A
4
2
3
3
0
-C
E
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K