Fréttablaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 36
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
Bára Jónsdóttir
frá Hafnarnesi,
lést þriðjudaginn 4. júní á
hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í
Hafnarfirði. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju, föstudaginn
14. júní kl. 13.00.
Katrín Sigurðardóttir Þorgils Þorgilsson
Þóra Sigurðardóttir Einar Gunnlaugsson
Jóna Sigurðardóttir Kristján Ólafsson
Sigurður Sigurðsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, bróðir,
barnabarn og barnabarnabarn,
Baldvin Rúnarsson
Háhlíð 10,
Akureyri,
lést föstudaginn 31. maí.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 12. júní kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarsjóð sem stofnaður verður í hans
nafni, reikn.nr. 565-14-605, kt. 020800-2910.
Ragnheiður Jakobsdóttir Rúnar Hermannsson
Hermann Helgi Rúnarsson
Jóhanna Maríanna Antonsdóttir
Hermann Jónsson
Áslaug Þorleifsdóttir
1509 Hinrik VII Englandskonungur kvænist fyrsta sinni.
Það gerði hann fimm sinnum í viðbót á ævinni.
1535 Greifastríðinu í Danmörku lýkur með sigri Kristjáns
3. í orrustunni við Øksnebjerg.
1870 Bruggverksmiðjan Amstel er stofnuð í Hollandi.
1910 Gasstöð Reykjavíkur tekur til starfa.
1911 Melavöllurinn í Reykjavík er vígður.
1957 Handknattleikssamband Íslands er
stofnað.
1975 Lög um fóstureyðingar við sér-
stakar aðstæður taka gildi á Íslandi.
1982 Orrustan um Stanley, lokaorr-
usta Falklandseyjastríðsins, hefst.
1987 Margaret Thatcher verður
fyrsti breski forsætisráðherrann til
að vinna kosningar þrisvar í röð á
síðustu 160 árum.
1994 Íslandssíld er landað í fyrsta
skipti í 27 ár.
1994 Sveitarfélögum á Íslandi
fækkar um 18.
2000 Hafez Assad Sýrlandsfor-
seti deyr, 69 ára að aldri.
2001 Konunglegu fjöldamorðin í
Nepal eiga sér stað. Dipendra prins
myrðir 10 meðlimi konungsfjölskyld-
unnar og sviptir sig lífi.
2004 Ronald Reagan er borinn til
grafar.
Merkisatburðir
Margaret
Thatcher
„Með því að endurvinna ljósmyndir sem ég tók öðluðust þær sjálfstætt líf.“
Sýningin ber yfirskriftina Man ég fjallið.
Ljósmyndasýningin Man ég fjallið eftir Lauru Valentino verður opnuð á f immtu-dag í Skoti Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Valentino flutti til Íslands árið 1988 og hefur
tekið þátt í mörgum sýningum hér á
landi og erlendis sem málari og grafík-
listamaður.
Í sýningunni sem nú stendur fyrir
dyrum kannar listamaðurinn fegurð og
munúð í sígildu myndefni eins og fólki
og landslagi. Sjálf lýsir hún sýningunni
sem framhaldi af verki sínu Andlit jarð-
ar. „Eða öllu heldur er hún minning mín
af vinnslu þess verkefnis. Með því að
endurvinna ljósmyndir sem ég tók fyrir
nokkrum árum öðluðust þær sjálfstætt
líf og fengu á sig draumkenndan blæ,“
segir Valentino og segir landslag, líkt og
manneskjur, síbreytilegt. „Það er erfitt
að staðsetja hvort tveggja í ákveðnu
augnabliki. Þættir eins og veðurfar, árs-
tíðir, birta, náttúruöfl og athafnir mann-
eskjunnar hafa áhrif á skynjun okkar á
því sem fyrir augu ber.“
Valentino lýsir því að hún noti hefð-
bundnar ljósmyndunaraðferðir til að
fanga hið „eilífa og almenna“ í hvers-
dagslegum viðfangsefnum.
Valentino f lutti til Íslands, líkt og
áður segir, fyrir rúmum þremur áratug-
um. Hún lítur fyrst og fremst á sig sem
grafíklistamann en hefur unnið með
ljósmyndir frá því á tíunda áratugnum.
Hún er meðal stofnenda Félags filmu-
ljósmyndara á Íslandi.
Sýning Valentino stendur til 21. ágúst.
olof@frettabladid.is.
Laura fangar hið eilífa og
almenna í hversdeginum
Laura Valentino opnar
sýningu í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur á fimmtudag.
Hún endurvinnur ljós-
myndir sem eru nokkurra
ára gamlar og fengu á sig
draumkenndan blæ.
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Helga Guðmundsdóttir,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
0
-C
D
2
C
2
3
3
0
-C
B
F
0
2
3
3
0
-C
A
B
4
2
3
3
0
-C
9
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K