Fréttablaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 44
Rennihurðabraut
svört (Barnyard)
Fyrir rennihurð allt að 100 kg.
Stílhrein og auðveld í uppsetningu.
Braut fest á vegg.
Fyrir hurðarbreidd allt að 1000mm.
Hægt er að fá framlengingar
í 45 cm og 90cm.
Verð :
19.950 m/vsk.
匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㈀ ∠ 刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㔀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀
SANDBLÁSTURSFILMUR
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
Ráðgjöf
Tilboð
Hönnun
Uppsetning
HVAÐ ER AÐ
FRÉTTA?
Frettabladid.is færir þér nýjustu
fréttir dagsins og ítarlega umöllun
um málefni líðandi stundar.
Ekki missa af neinu, fylgdu
Fréttablaðinu á Facebook
Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari heldur útgáfutónleika í Hofi á Akureyri í dag og Hörpu á fimmtudag. Þar f lytur hann lög
af fyrstu sóló-geislaplötu sinni,
Drang in die Ferne, sem kom út hjá
þýska plötufyrirtækinu Genuin í
apríl síðastliðnum en platan hefur
hlotið mikið lof gagnrýnenda í
Þýskalandi.
Benedikt býr í Berlín en hefur
skipulagt tónleikana með hjálp
internetsins. „Þökk sé internetinu
er það frekar einfalt að skipuleggja
tónleika á Íslandi og vera búandi í
Berlín. En það er líka gott að eiga
góða að sem hjálpa að dreifa plagg-
ötum,“ segir Benedikt en hann mun
stoppa nokkrar vikur á Íslandi.
„Fyrst syng ég á Kirkjulistahátíð
í Hallgrímskirkju og svo eru þessir
tónleikar mínir í Hofi og í Hörpu.
Þar á eftir get ég notið þess að vera í
fríi með fjölskyldunni og sýna börn-
unum mínum nokkra fossa og fara
með þau í sund.“
Benedikt mun, eðli málsins sam-
kvæmt, syngja lögin af diskinum en
með honum verða píanóleikarinn
Alexander Schmalcz og Stefán Jón
Bernharðsson sem leikur á horn.
Lögin eru íslensk þjóðlög, sungin
án undirleiks, og sönglög eftir Franz
Schubert.
Hann segist heppinn að hafa
svo góðan mann á f lyglinum. „Ég
er mjög heppinn að hafa Alexand-
er með mér. Hann hefur spilað
með mörgum af frægustu söngv-
urum heims, eins og Peter Schreier,
Mattias Goerne og Edita Gruberova.
Það var sameiginlegur vinur okkur,
Robert hinn „brjálaði bókasali“, sem
kynnti okkur,“ segir hann án þess
að fara nánar út í þau kynni.
Benedikt segir það hafi verið
um tveggja ára ferli að láta allt það
smella saman sem nú er að verða að
veruleika, frá því að hann byrjaði að
setja saman prógrammið til dagsins
í dag. „Þetta hefur verið ótrúlega
mikil vinna, sem hefur samt marg-
borgað sig. Diskurinn hefur fengið
mikla athygli í Þýskalandi og í kjöl-
farið koma f leiri fyrirspurnir um
ljóðatónleika.
Fram undan eru fleiri geisladiska-
upptökur, til dæmis á Messias eftir
Händel, Les Boréades eftir Rameau
og kantötum eftir Bach. Svo einn-
ig tónleikar í Lissabon, Stuttgart,
Berlín, Frankfurt og Los Angeles.
En fyrst fer ég samt í nokkrar ferðir í
rennibrautum landsins með krökk-
unum.“ benediktboas@frettabladid.is
Fyrst í sund með
krakkana áður
en haldið er til
Los Angeles
Benedikt Kristjánsson tenórsöngvari heldur útgáfutónleika sína í
Hofi í dag og í Hörpu á fimmtudag. Fram undan er þéttskipuð dag-
skrá en fyrst ætlar hann að sýna börnunum sínum fossa og sund-
laugar landsins og fara nokkrar salíbunur í rennibrautunum.
Benedikt mun á útgáfutónleikum sínum, eðli máli samkvæmt, syngja lögin af diskinum en með honum verða
píanóleikarinn Alexander Schmalcz og Stefán Jón Bernharðsson sem leikur á horn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Benedikt Kristjánsson
Benedikt hefur getið sér gott
orð hér heima og erlendis sem
ljóða- og óratoríusöngvari.
Hann hefur einnig verið út-
nefndur „Bjartasta vonin“ og
„Söngvari ársins“ á Íslensku tón-
listarverðlaununum.
Þá hefur hann unnið til verð-
launa í alþjóðlegum keppnum
og komið fram í þekktustu tón-
listarhúsum Evrópu.
1 1 . J Ú N Í 2 0 1 9 Þ R I Ð J U D A G U R24 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
0
-E
A
C
C
2
3
3
0
-E
9
9
0
2
3
3
0
-E
8
5
4
2
3
3
0
-E
7
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K