Fréttablaðið - 11.06.2019, Blaðsíða 48
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
Teriyaki-gljáðir
kjúklingastrimlar
og sætlaukssósa.
TERIYAKI
Hauks Arnar
Birgissonar
BAKÞANKAR
Erlendir vinir spurðu eitt sinn hvort við færum líka í útilegur á veturna eins og þeir. Þeir
voru að fletta í gegnum mynda
albúm og sáu vinafólk okkar dúðað
í teppi og ullarklæði fyrir framan
kúlutjald. „Alls ekki, þessi mynd
var tekin í byrjun júlí,“ var svarið.
Útilegur á Íslandi eru furðulegt
fyrirbæri. Jafnvel óskiljanlegt. Að
fólk skuli velja að gista utandyra
í sjö gráðu hita (kulda), roki og
yfirleitt einhvers konar úrkomu
hlýtur að vera einhver tegund
masókisma. Álíka rómantískt og
hópefli í frystiklefa. Ísland er ekki
hannað fyrir útilegur. Okkur er
ætlað að gera annað utandyra en að
sofa þar.
Fyrir hverja útilegu ríkir mikil
spenna og við liggjum yfir veður
spánni. Það versta er hins var að á
Íslandi er ekki hægt að spá fyrir um
veðrið, einungis segja af því fréttir.
Ef þið hugsið út í það, þá heitir
dagskrárliðurinn í fjölmiðlunum
„veðurfréttir“ en ekki „veðurspá“.
Það er engin tilviljun. Íslenskir
veðurfræðingar vita bara hvernig
veðrið var áðan. Það er útilokað
að segja til um hvernig það verður
á eftir.
Í útilegunni sjálfri er svo ekki
rætt um neitt annað en veðrið.
Stundum er það geggjað og það
eru augnablikin sem við leggjum
á minnið. En geggjaða veðrið varir
skammt. „Hann er að fara að snúa
sér,“ heyrist brátt í einhverjum
stuttbuxnaklæddum manni í
dúnúlpu og sandölum. Svo breytist
vindáttin og pappadiskarnir fjúka
af borðinu. Pikknikkið dreifist
um grasið og við leitum skjóls í
fortjaldinu.
Það er yfirleitt ekki langt liðið
á sunnudagsmorguninn þegar
klassískasta setning íslenskrar
útilegumenningar fer að óma um
tjaldsvæðið: „Jæja, eigum við ekki
að fara að bruna í bæinn?“
Inni í tjaldi
1
1
-0
6
-2
0
1
9
0
8
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
0
-C
3
4
C
2
3
3
0
-C
2
1
0
2
3
3
0
-C
0
D
4
2
3
3
0
-B
F
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K