Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 19.11.2015, Blaðsíða 3

Fjarðarpósturinn - 19.11.2015, Blaðsíða 3
www.fjardarposturinn.is 3FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. NÓVEMBER 2015 STEIKARTILBOÐ VIKUNNAR Kíktu á matseðilinn á www.burgerinn.is © F ja rð ar pó st ur in n 20 15 -1 1 Flatahrauni 5a Hfj. • 555 7030 Opið alla daga kl. 11-22 Munið krakka matseðilinn ELBAKAÐAR PIZZUR FLOTTIR HAMBORGARAR TERIYAKI KJÚKLINGUR QUESADILLA GRILLAÐAR LAMBAKÓTILETTUR Borðað í sal eða sótt í lúgu Lambagrillsteik m/sveppum, bearnise sósu, smjörst,parísar kartöflum og salati. Aðeins kr. 2.490,- Hinn 16. júlí 1964 flutti Bjarni Snæbjörnsson ræðu á fundi Rótarýklúbb Hafnarfjarðar um Hús Bjarna riddara. Lýsti hann gjörla hvað húsið væri illa farið og ekki mætti dragast úr hömlu að taka ákvörðun um hvort endurreisa ætti það eða rífa. Hann rakti fyrri umræður um hús ið á öðrum vettvöngum. Kom hann þar máli sínu að hann lagði eindregið til að rótarý­ klúbburinn beitti sér fyrir varð­ veislu og endurreisn hússins. Mál ið var rætt lítillega á næstu fundum og 24. september var boðað til kvöldfundar til umræðu um Hús Bjarna riddara. Þar flutti Bjarni Snæbjörnsson svohljóð­ andi tillögu: „Klúbburinn samþykkir að beita sér fyrir því að varðveita og endurbyggja hús Bjarna riddara Sívertsen að fengnu leyfi bæjar­ stjórnar Hafnarfjarðar. Til þess að hrinda þessu í framkvæmd skal kosin nefnd 5 manna sem í samráði við stjórn klúbbsins kveði á um hvar húsið verði endurreist, hve mikið fjármagn þurfi til verksins og hvernig heppilegast væri að afla fjárins og standa fyrir framkvænd verksins.“ Tillagan var samþykkt og nefndin kosin. Í henni voru: Bjarni Snæbjörnsson, Stefán Jónsson, Jón Bergsson, Sigurður Kristinsson og Stefán G. Sig­ urðsson. Nefndin skrifaði öðrum félögum í bænum um málið og varð niðurstaðan sú að stofnað var félagið „Hús Bjarna riddara“. Í febrúarmánuði 1965 heimilaði bæjarstjórn Rótarýklúbbi Hafn­ ar fjarðar að endurbyggja húsið og ákvað að greiða allt að 1/4 af kostnaði við endur bygginguna, enda yrðu allar framkvæmdir við húsið og verndun þess gerðar í samráði við þjóðminjavörð og bæjarverkfræðing.” Á þennan hátt komst málið í ákveðinn farveg og þótt áratugur liði þar til húsið var tilbúið til vígslu sem minjasafn voru framkvæmdir í réttu horfi. Eins og vænta mátti var þetta harla dýrt fyrirtæki og fengust fjár­ framlög úr ríkissjóði, bæjarsjóði og víðar að. Rótarýfélaginn Gunn ar H. Ágústsson hafnar­ stjóri sá að mestu um fram­ kvæmdir af bæjarins hálfu en til ráðgjafar var þjóðminjavörður, í fyrstu dr. Kristján Eldjárn og síðar Þór Magnússon. Í ársbyrjun 1966 var fenginn til landsins danskur sérfræðingur í gerð slíkra húsa. Karsten Rönner. Bæjarstjórn tók Hús Bjarna riddara algerlega upp á sína arma árið 1973 og á þjóðhátíð til minningar um ellefu hundruð ára byggð í landinu árið 1974 var það vígt sem byggðasafn. Hús Bjarna riddara Sívertsen – elsta hús í Hafnarfirði Minnisvarði um merkan einstakling og gott dæmi um varðsveislu og endurreisn húss Húsið er múrað bindingsverkshús byggt á árunum 1803-1805. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Tryggðu þér auglýsingapláss .. kemur út 3. desember

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.