Fréttablaðið - 26.06.2019, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 4 6 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M I Ð V I K U D A G U R 2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Allt fyrir
gæsa/steggjapartýið
Finndu okkur á
www.kronan.is
399 kr.pk.
Jiffy pop
Hri
sta
hristahrista
Tekjur Bókabúðar Forlagsins hafa
vaxið um 15-30 prósent á ári í sjö
ár á meðan bóksala hefur dreg-
ist saman. Þetta segir Egill Örn
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Forlagsins. „Fólk vill koma í bóka-
búðir þar sem er úrval og gefa sér
góðan tíma til að skoða,“ segir hann.
Vo g u n a r s j ó ð u r i n n E l l iot t
Management, sem þekktur er fyrir
að þjarma að þjóðríkjum, keypti
nýverið bandarísku
bókabúðakeðjuna
Barnes & Nobles
og fyrir rúmlega
ári bresku keðj-
una Waterstone.
Höfða á til þeirra
sem vilja versla í
búðum en ekki á
netinu.
– hvj / sjá Markaðinn
Bókabúðir fá
byr í seglin
STJÓRNMÁL Forsætisnefnd Alþingis
hefur fallist á niðurstöður siða-
nefndar þingsins þess efnis að
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hafi
brotið siðareglur fyrir alþingis-
menn með ummælum sínum um
Ásmund Friðriksson, þingmann
Sjálfstæðisflokksins. Álit forsætis-
nefndar þessa efnis verður birt á vef
Alþingis í dag en það var afgreitt á
fundi nefndarinnar á föstudag, degi
eftir að þingstörfum lauk.
Umrædd ummæli Þórhildar
Sunnu þess efnis að rökstuddur
grunur væri um að Ásmundur hefði
dregið sér fé í tengslum við endur-
greiðslur sem hann þáði frá þing-
inu á grundvelli akstursdagbókar
hans féllu í Silfrinu á RÚV í febrúar
í fyrra.
Í áliti forsætisnefndar segir að
það sé ekki tilgangur siðaregln-
anna að takmarka tjáningarfrelsi
þingmanna. Af siðareglunum leiði
að það geti haft þýðingu hvernig
tjáningu er komið á framfæri og
við hvaða aðstæður. Skorður sem
siðareglurnar setji lúti þannig ekki
að efni tjáningar heldur að ytra
búningi hennar, til að mynda um
háttvísi og aðferð.
Forsætisnefnd hafnar þeim
athugasemdum Þórhildar Sunnu að
rétt hefði verið að siðanefndin legði
mat á sannleiksgildi ummælanna
og því bæri að vísa málinu aftur til
siðanefndar til nýrrar meðferðar.
Að mati forsætisnefndar geri siða-
reglurnar ekki ráð fyrir því að for-
sætisnefnd fari með úrskurðarvald
um sannleiksgildi ummæla sem
koma til skoðunar vegna siðareglna.
Þrír nefndarmenn í forsætisnefnd
skiluðu sérstakri bókun um niður-
stöðurnar. Nánar er fjallað um þær
á vef Fréttablaðsins, frettabladid.is.
Þórhildur Sunna baðst undan
viðtali þegar eftir því var leitað.
Hún er í Strassborg á sumarfundi
Evrópuráðsþingsins þar sem hún
gegnir formennsku í mannréttinda-
nefnd þingsins. – aá
Álit um brot Þórhildar Sunnu staðfest
Forsætisnefnd hefur fallist á álit siðanefndar Alþingis í máli Þórhildar Sunnu Ævarsdóttir, þingmanns Pírata, og telur hana brotlega
við siðareglur fyrir alþingismenn vegna ummæla um Ásmund Friðriksson. Þrír nefndarmenn eru með sérbókun vegna álitsins.
Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir.
Það var mikið líf og fjör í hinni árlegu Dorgveiðikeppni á Flensborgarbryggju í Hafnarfirði í gær. Líkt og undanfarna tvo
áratugi tóku börn á aldrinum sex til tólf ára þátt í keppninni. Eins og sjá má á myndinni var enginn skortur á gleði meðal
ungmennanna. Keppt var um stærsta fiskinn, f lesta fiska veidda og furðufiskinn 2019. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Fleiri myndir frá keppninni er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
VIÐSKIPTI Stjórn Arion banka hefur
ráðið Benedikt Gíslason í starf
bankastjóra. Hann tekur við af
Stefáni Péturssyni sem hefur verið
starfandi bankastjóri bankans eftir
að Höskuldur H. Ólafsson lét af
störfum fyrr á árinu. Benedikt hefur
störf 1. júlí næstkomandi. Bene-
dikt hefur umfangsmikla reynslu
af störfum á íslenskum fjármála-
markaði undanfarna tvo áratugi og
var varaformaður starfshóps stjórn-
valda um afnám fjármagnshafta á
árunum 2013 til 2016. – ab
Benedikt tekur
við Arion
Benedikt Gísla-
son, bankastjóri
Arion banka.
2
6
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
9
-4
A
9
0
2
3
4
9
-4
9
5
4
2
3
4
9
-4
8
1
8
2
3
4
9
-4
6
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K