Fréttablaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 36
Viddi er brotthætt og viðkvæm sál, meðvirkur stressbolti sem reynir að halda öllu í röð og reglu en fær nú að kynn- ast sjálfum sér betur þegar hann tekur heima- tilbúið leikfang undir sinn verndarvæng. P ixar, sem síðar rann saman v ið Disney-stórveldið, sló hressi-lega og verðskuldað í gegn með Leikfanga-sögu, eða Toy Story, 1995. Myndin markaði tímamót og setti ný viðmið í gerð tölvu- teiknimynda. Áhrifamáttinn og slagkraftinn sótti hún þó fyrst og fremst í fallega og fyndna sögu af leikföngum sem lifna við þegar enginn sér. Litríkar persónurnar átti einnig greiða leið að hjörtum áhorfenda, barna og margra fullorðinna, enda margar vel þekkt leikföng sem höfðu sett mark sitt á bernskuár barna í áratugi. Þar má til dæmis nefna stóreygða Fisher-Price-sím- ann á bláu hjólunum. Gersamlega óbrjótandi og ódrepandi leik- fang sem gæti hæglega trommað upp sem sprækasti öldungurinn á Árbæjarsafni og hinn endalaust skemmtilega Herra Kartöf luhaus. Toy Story og framhaldsmynd- irnar tvær sem fylgdu í kjölfarið hverfðust hins vegar fyrst og fremst um nýliðana Vidda og Bósa en þar sem lífinu er tamt að herma eftir listinni eru þeir fyrir löngu orðnir að eftirsóttum leikföngum sem hafa öðlast álíka dýrðarljóma og síminn og kartaf lan með hin mörgu andlit. Toy Story-bálkurinn telur nú f jórar myndir en sú nýjasta er komin í kvikmyndahús, níu árum eftir að þriðja myndin lokaði sög- unni, að því er f lestir héldu, með miklum glæsibrag. Ekki verður af Pixar tekið að á þeim bænum er vandað svo til verk a þega r Toy Stor y er annars vegar að þessum fjórum myndum h e f u r v e r i ð mjatlað út á 24 árum. Þannig að sex ára börn sem sáu fyrstu myndina í bíó eru nú um þrítugt og taka sjálfsagt núna mörg sín eigin börn með sér til fundar við Bósa, Vidda, gamla og nýja félaga. Þe s si la ng a L ei k f a ng a s ag a hvers og eins hefur þannig öðlast fallegan ævintýraljóma í anda myndanna en Andy, eigandi æsku- andsetnu leikfanganna, óx einmitt upp úr þeim í þriðju myndinni og leiðir skildust þegar hann f lutti að heiman. Framhaldslífið fékk dótakass- inn eins og hann lagði sig þegar innihaldið slapp naumlega frá vítis vist í leikskóla, sem bitur og hefnigjarn tusku bangsi stjórn- aði, í fang stelpunn- ar Bonnie sem tekur hressilega hringferð með leikfangahers- ingunni í fjórða kaf la sem er jafn líklegur og sá þriðji til þess að marka endalok sögunnar þar sem ánægjan með nýju myndina er slík að enn getur allt gerst. thorarinn@frettabladid.is Farsæl þroskasaga í fjórum þáttum Viðtökur Toy Story 4 sanna að ævintýragjörn- um leikföngum verður ekki í Góða hirðinn komið. Ævintýri Vidda löggustjóra og endi- markalausa geimstuðboltans Bósa Ljósárs teygja sig nú yfir 24 ár og enn er heil- mikið líf í tuskunum og plastinu. Tom Hanks og Viddi hafa fylgst að í 24 ár og gætu haldið áfram á meðan annar dregur andann og hinn hangir saman á saumunum. NORDICPHOTOS/GETTY Toy Story 3 leit út fyrir að marka endalok Leikfangasögunnar með miklu fjöri og dásamlegum tilfinningarússíbana. En lengi er von á þessu liði. Bósi Ljósár mætti með heilmikinn belging og hroka vinsælasta tískuleikfangsins í fyrstu myndinni en hefur í fram- haldinu náð heilmiklum andlegum þroska og er frekar til baka í fjórðu umferð. 2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 2 6 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :1 6 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 4 9 -7 2 1 0 2 3 4 9 -7 0 D 4 2 3 4 9 -6 F 9 8 2 3 4 9 -6 E 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 2 5 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.