Fréttablaðið - 26.06.2019, Qupperneq 36
Viddi er brotthætt og
viðkvæm sál, meðvirkur
stressbolti sem reynir
að halda öllu í röð og
reglu en fær nú að kynn-
ast sjálfum sér betur
þegar hann tekur heima-
tilbúið leikfang undir
sinn verndarvæng.
P ixar, sem síðar rann saman v ið Disney-stórveldið, sló hressi-lega og verðskuldað í gegn með Leikfanga-sögu, eða Toy Story,
1995. Myndin markaði tímamót
og setti ný viðmið í gerð tölvu-
teiknimynda. Áhrifamáttinn og
slagkraftinn sótti hún þó fyrst og
fremst í fallega og fyndna sögu af
leikföngum sem lifna við þegar
enginn sér.
Litríkar persónurnar átti einnig
greiða leið að hjörtum áhorfenda,
barna og margra fullorðinna, enda
margar vel þekkt leikföng sem
höfðu sett mark sitt á bernskuár
barna í áratugi. Þar má til dæmis
nefna stóreygða Fisher-Price-sím-
ann á bláu hjólunum. Gersamlega
óbrjótandi og ódrepandi leik-
fang sem gæti hæglega trommað
upp sem sprækasti öldungurinn
á Árbæjarsafni og hinn endalaust
skemmtilega Herra Kartöf luhaus.
Toy Story og framhaldsmynd-
irnar tvær sem fylgdu í kjölfarið
hverfðust hins vegar fyrst og fremst
um nýliðana Vidda og Bósa en þar
sem lífinu er tamt að herma eftir
listinni eru þeir fyrir löngu orðnir
að eftirsóttum leikföngum sem hafa
öðlast álíka dýrðarljóma og síminn
og kartaf lan með hin mörgu andlit.
Toy Story-bálkurinn telur nú
f jórar myndir en sú nýjasta er
komin í kvikmyndahús, níu árum
eftir að þriðja myndin lokaði sög-
unni, að því er f lestir héldu, með
miklum glæsibrag.
Ekki verður af Pixar
tekið að á þeim bænum
er vandað svo til
verk a þega r Toy
Stor y er annars
vegar að þessum
fjórum myndum
h e f u r v e r i ð
mjatlað út á 24
árum. Þannig að
sex ára börn sem
sáu fyrstu myndina í
bíó eru nú um þrítugt og
taka sjálfsagt núna mörg sín eigin
börn með sér til fundar við Bósa,
Vidda, gamla og nýja félaga.
Þe s si la ng a L ei k f a ng a s ag a
hvers og eins hefur þannig öðlast
fallegan ævintýraljóma í anda
myndanna en Andy, eigandi æsku-
andsetnu leikfanganna, óx einmitt
upp úr þeim í þriðju myndinni og
leiðir skildust þegar hann f lutti að
heiman.
Framhaldslífið fékk dótakass-
inn eins og hann lagði sig þegar
innihaldið slapp naumlega
frá vítis vist í leikskóla,
sem bitur og hefnigjarn
tusku bangsi stjórn-
aði, í fang stelpunn-
ar Bonnie sem tekur
hressilega hringferð
með leikfangahers-
ingunni í fjórða kaf la
sem er jafn líklegur og
sá þriðji til þess að marka
endalok sögunnar þar sem
ánægjan með nýju myndina er slík
að enn getur allt gerst.
thorarinn@frettabladid.is
Farsæl þroskasaga
í fjórum þáttum
Viðtökur Toy Story 4 sanna að ævintýragjörn-
um leikföngum verður ekki í Góða hirðinn
komið. Ævintýri Vidda löggustjóra og endi-
markalausa geimstuðboltans Bósa Ljósárs
teygja sig nú yfir 24 ár og enn er heil-
mikið líf í tuskunum og plastinu.
Tom Hanks og Viddi hafa fylgst að í 24 ár og gætu haldið
áfram á meðan annar dregur andann og hinn hangir
saman á saumunum. NORDICPHOTOS/GETTY
Toy Story 3 leit út fyrir að marka endalok Leikfangasögunnar með miklu
fjöri og dásamlegum tilfinningarússíbana. En lengi er von á þessu liði.
Bósi Ljósár mætti
með heilmikinn belging
og hroka vinsælasta
tískuleikfangsins í fyrstu
myndinni en hefur í fram-
haldinu náð heilmiklum
andlegum þroska og
er frekar til baka í
fjórðu umferð.
2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R20 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
2
6
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
4
9
-7
2
1
0
2
3
4
9
-7
0
D
4
2
3
4
9
-6
F
9
8
2
3
4
9
-6
E
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K