Skagablaðið - 08.02.1985, Síða 1
Feröamálafyrirtæki stofnað í marsbyrjun:
Vilji bæjarfaúa
til hlutaQáh
kaupa kannaður
- Danfríður Skarphéðinsdóttir ráðinn ferðamálafulltrúi
Ákveðið hefur verið að stofna
hlutafélag um ferðaþjónustu á
Akranesi þann 2. mars næstkom-
andi. Sent hefur verið út bréf til
fyrirtækja og einstaklinga og hug-
ur þeirra til hlutafjárkaupa kann-
aður. Um er að ræða bréf upp á
kr. 5000.-, 10.000,- eða kr.
50.000.-. Miðað er við að hlutafé
verði á bilinu 500 þúsund til ein
milljón.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
hefur verið ráðinn ferðamálafull-
trúi eins og Skagablaðið skýrði
reyndar frá fyrir hálfum öðrum
mánuði og mun hún sjá um
skipulagningu þjónustu við ferða-
menn hér á Akranesi í sumar. í
samvinnu við ferðamálanefnd,
sem starfandi hefur verið hér um
SS-búóin
tekurVISA
SS-versIunin við Vestur-
götu hefur tekið upp notkun
VISA korta. Skagablaðið
hafði samband við Harald Har-
aldsson verslunarstjóra og
fengum hann til að segja
okkur hver reynslan hefði
verið af þeim.
Haraldur sagði að SS hefði
byrjað með kortin í kringum
20.desember enda hefði þá
verið þrýst mikið á það af
viðskiptavinum. Síðan hefði
þetta bara gengið vel og fólki
líkað vel við þetta. Hann
kvað þetta fyrirkomulag
koma svipað út fyrir versl-
unina og mánaðarreikning-
arnir. Pær vörur sem keyptar
eru með kreditkortum eru
lánaðar í allt að 45 daga, en
sá væri munurinn að bankinn
ábyrgðist greiðslu þannig að
þetta væri 100% öruggt.
Aðspurður um hvort við-
skiptavinum hefði fjölgað við
að kreditkortaþjónustan
hefði verið tekin upp, sagðist
Haraldur ekki vita það ná-
kvæmlega en hélt þó að hann
hefði séð ný andlit hjá sér.
— SEÞ.
allnokkurt skeið, boðaði Dan-
fríður til blaðamannafundar á
þriðjudag.
Á fundinum voru reifaðar þær
hugmyndir, sem helstar eru á
prjónunum fyrir sumarið og einn-
ig var skýrt frá reynslunni við
ferðaþjónustu hér síðasta sumar.
Á meðal verkefna væntanlegs
félags má nefna að koma upp
tjaldaðstöðu við hús KFUM og K
við hringtorgið, en hugmyndin er
að í húsinu verði boðið upp á
svefnpokapláss. Þá er annað verk-
efnið á þá leið að reyna að koma
á fót útimarkaði með blóm,
ávexti og grænmeti auk handunn-
inna muna. Stefnt er að því að
aðalmarkaðsdagurinn verði föstu-
dagur og yrði hann einnig dagur
skoðunarferða um Akranes. Enn-
fremur eru uppi hugmyndir um
að komast í samband við fólk,
sem hefur aðstöðu til þess að selja
gistingu og morgunverð (sjá aug-
lýsingu í blaðinu þess efnis).
Reynslan af ferðamannaþjón-
ustunni í fyrra þótti gefa það góða
raun, að ekki væri ástæða til
annars en að halda áfram á sömu
braut, jafnvel þótt þátttakan væri
ekki alltaf beysin. Ferðirnar voru
þá í umsjá Þórdísar Arthurs-
dóttur, sem lét aldrei deigan síga,
og var óþreytandi í allri upp-
lýsingaöflun og fróðleiksmiðlun
til handa ferðamönnum, hvort
heldur þeir voru innlendir eða
erlendir.
Ferðirnar í fyrra byggðust upp
á heimsóknum í tvö fyrirtæki,
frystihús Heimaskaga og Akra-
prjón. Síðan varfarið að Görðum
og byggðasafnið skoðað, þá snætt
og loks skoðaður vísir að úti-
markaði á Akratorgi.
Danfríður hefur aðstöðu að
Skólabraut 31, og er með við-
talstíma frá kl. 17 til 19 á þriðju-
dögum. Síminn þar er 2884 og eru
bæjarbúar hvattir til þess að
leggja henni og öðrum áhuga-
mönnum um uppbyggingu ferða-
mannaþjónustu hér lið með því
að gauka góðum hugmyndum að
henni á umræddum tíma. Með
sameiginlegu átaki er hægt að
gera Akranes að eftirstóttum
ferðamannastað. Slíkt hefst ekki
átakalaust, en nú er lag.
—SEÞ/-SSV.
Sorpbifreiðin í Ijósum logum á öskuhaugunum. —1M/—SEÞ.
Úr öskunni í eldinn
— sorpbifreioin brann til kaldra kola á haugunum
Eldur komst í sorpbflinn er
hann var að losa sorp inn á
haugum, á laugardaginn var og
er hann gjörónýtur. Óhappið
var um hádegisbil, þegar öku-
maður missti bflinn framaf, of-
an í eldinn og þar brann hann til
ösku. Sorpbfllinn er nú eins og
hvert annað brunnið rusl á
haugunum.
Valgeir Guðmundsson, sem
rekur bílinn sagði • að ekkert
stopp yrði í sorphreinsun því
hann ætti gamlan sorpbíl til
vara sem hann myndi nota uns
nýr fengist. Valgeir kvaðst strax
fara að reyna að útvega nýjan
bíl en það versta væri að svona
ökutæki fást ekki innanlands
heldur verður að fá það erlendis
frá. Hann vonaði þó að ekki
liðu nema 2-3 vikur þar til nýr
bíll kæmist í gagnið, og að
öllum líkindum bættu trygging-
ar tjónið að öllu eða mestu leiti.
Verðmæti bílsins gat hann ekki
gefið upp en það er töluvert.
„Hæpnar forsendur í
pólitísku áróðursskyni
- segir Hallgrímur Hallgrímsson, fasteignasali, og telur upplýsingar Jóns
Sveinssonar, starfsbróður síns, um verð fasteigna á Akranesi ekki réttar
„Það er afar slæmt, að bæjarfulltrúi noti jafn hæpnar forsendur í
pólitísku áróðursskyni. Ef það er eitthvað, sem fælir fólk frá því að
fjárfesta hér er það svona niðurrifstal, þ.e. að telja fólki trú um að
hér sé allt á niðurleið," sagði Hallgrímur Hallgrímsson, fasteignasali,
er hann kom að máli við Skagablaðið í kjölfar ummæla Jóns
Sveinssonar, bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins og fasteignasala, um
fasteignaverð í Skagablaðinu fyrir
Hallgrímur sagði tölur Jóns
fengnar úr töflum frá Fasteigna-
mati ríkisins um meðalverð á
öllum eignum í viðkomandi bæj-
um og því óeðlilegt að vera með
beinan samanburð. Væri enda
tekið fram í formála að töflunum
að samanburð bæri að taka með
allmikilli varfærni.
Hallgrímur telur að verðmunur
á sambærilegum íbúðum hér og í
Reykjavík sé ekki eins mikill og
Jón segir, þ.e. 58-60% af verði
tveimur vikum.
íbúða í Reykjavík. Hið rétta sé
að verðið sé 65-70% af verði
sambærilegra íbúða í höfuðborg-
inni.
Þetta segir Hallgrímur alls ekki
óeðlilegan mun því Reykjavík sé
nú mikið spennusvæði, m.a.
vegna aðflutts fólks. Fimmta hver
íbúð í Reykjavík mun keypt af
aðkomufólki. Þar er einnig fleira
hátekjufólk, sem býr í lúxusíbúð-
um sem svo aftur hækka meðal-
talið. Þá væri lóðaverð í Reykja-
vík margfalt hærra þar en hér. Til
að fá réttlátan samanburð yrði að
byrja á að draga frá mismuninn á
lóðaverðinu áður en verð t.d.
einbýlishúsa er borið saman.
í máli Hallgríms kom ennfrem-
ur fram, að Akranes hefði haldið
sínum hlut í samkeppninni þrátt
fyrir tímabundið óöryggi í at-
vinnumálum. Máli sínu til stuðn-
ings blaðaði hann í fasteignaaug-
lýsingum og bar saman 110m2
íbúðir í Breiðholti og hér. Önnur
í Breiðholtinu var á 1,8 milljón,
hin á 1,95 milljón. Sambærileg
íbúð hér kostar 1,5 milljón. I
samanburði við þá dýrari er
hlutfallið 76%, en 83% saman-
borið við þá ódýrari.
—SEÞ/-SSV.