Skagablaðið - 15.09.1988, Blaðsíða 12
q>M Skagablaðið
Könnun ASÍ á verðlagi matvöruverslana í vikubyrjun:
Mestur verðmunur á
grænmeti og ávöxtum
Verðlag matvöruverslana á
Akranesi er yflrleitt nokkuð svip-
að þótt vissulega megi finna
greinileg undantekningartilfelli.
Alþýðusamband íslands gekkst
fyrir könnun í fimm verslunum á
Akranesi í vikubyrjun og birtir
Skagablaðið niðurstöðurnar í
heild sinni á bls. 9 í blaðinu í dag.
Þegar verð einstakra vöruteg-
unda er skoðað kemur í ljós, að í
flestum tilfellum eru stærri búð-
irnar, þ.e. Verslun Einars Ólafs-
sonar, verslun Sláturfélags Suður-
lands og Skagaver, með nokkuð
svipað verð en verð í Grundar-
búðinni og Traðarbakka er yfir-
leitt nokkru hærra. Þær verslanir
eru opnar lengur á kvöldin og
einnig um helgar.
Mesta verðmuninn á einstökum
vörutegundum á milli verslana er
að finna í grænmeti og ávöxtum.
Sumar verslanirnar bjóða bæði
upp á 1. og 2. flokk og því er verð-
ið mismunandi. Mesti verðmun-
urinn í könnuninni reyndist vera á
agúrkum. Þar munaði 66% á
hæsta og lægsta verði. Munur á
verði á rauðum eplum nam allt
upp í 63%, á tómötum 36% og
appelsínum 25%. Þá má í
könnuninni finna 25% mun á
verði á hveiti og 30% mun á sykri
svo dæmi séu tekin.
Að sögn Guðrúnar Hjálmars-
dóttur hjá Verslunarmannafélagi
Akraness, sem framkvæmdi
könnunina fyrir ASÍ, verður
framhald á könnunum sem þeirri
sem gerð var í vikubyrjun. Sagði
hún, að stefnt væri að annarri
könnun fljótlega og hvatti fólk til
þess að geyma niðurstöðurnar í
blaðinu í dag og bera svo saman
við næstu könnun.
Undirskrvflalistar
Halla Ingibergsdóttir, móðir og dagmamma, gekk á fund bæjar-
stjóra á mánudagsmorgun, þar sem hún afhenti honum undir-
skriftalista með nöfnum 400 bæjarbúa. Ritaði þessi fjöldi nafn sitt
undir áskorun þess efnis að úrbætar yrðu gerðar í dagvistarmálum
á Akanesi. Mjög langur biðlisti er nú eftir vistun og þurfa börn að
bíða lengi eftir því að fá pláss. Myndin er af Höllu er hún afhenti
Gísla Gíslasyni, bæjarstjóra, undirskriftalistana.
-Sjá nánar á bls. 9, þar sem öll
taflan yfir verð einstakra tegunda
í hverri verslun er birt.
Golfhetjur
Þeir taka sig óneitanlegavel út þessir starfsmenn bæjarins eftir
að hafa skarað framúr á golfmóti um heigina. Þeir eru frá vinstri
Oddgeir Árnason, Jón Páimi Pálsson og Þorvarður Magnússon. -
Sjá nánar á bls. 4.
Erfið fæðing Fjárfestingarfélags Vesturflands:
Skemmdir unnar á nýjum bíl lögreglunnar:
Skófar á vélaHilrfinni
kom upp um sökudólginn
Hann iðrast þess sennilega nú til þess að upp um hann komst. 0g tókst að hafa uppi á þeim seka.
að hafa ekki verið berfættur nem- Að sögn lögreglunnar uppgötv- Þegar gengið var á hann játaði
andi Fjölbrautaskólans sem aðist ekki fyrr en að morgni hann að hafa hoppað bæði á þaki
gómaður var fyrir að hafa skemmt fimmtudagsins að skemmdir bílsins og vélarhlif en bar því fyrir
nýjustu lögreglubifreið bæjarins höfðu verið unnar á lögreglubif- sig að hann hefði verið eggjaður
að loknum dansleik á vegum skól- reiðinni. Við rannsókn málsins til verksins af félögum sínum.
ans aðfaranótt flmmtudags í síð- tókstaðnámjöggóðuskófariþess Viðkomandi verðursektaðurfyrir
ustu viku. Skófarið hans fannst á sem ódæðið hafði unnið. Lögregl- athæfið og þarf að auki að punga út
vélarhlíf lögreglubílsins og leiddi an hóf leitina með farið að vopni viðgerðarkostnaði. Það er því
hætt við að þessi auka dansspor
hans umrædda nótt eigi eftir að
reynast dýrari en hann grunaði.
Söfnun hlutafjár gengur mun
hægar en ráð var gert fyrir
Borgnesingar og Borgflrðingar
hafa tekið mun betur í stofnun
Fjárfestingarfélags Vesturlands
en bæði Akurnesingar og Snæfell-
ingar. Þegar liggja fýrir loforð frá
einstaklingum og fyrirtækjum í
Borgarnesi og í Borgarfirði fyrir
því sem talið er „eðlilegt hlut-
fall“ þeirra byggðalaga í slíku
félagi. Dræmari undirtektir hér á
Akranesi og á Snæfellsnesi, sem
m.a. eiga rætur að rekja til aukins
vanda sjávarútvegsins, hafa tafið
stofnun félagsins um nokkra mán-
uði.
Að sögn Guðjóns Ingva Stefáns-
sonar, framkvæmdastjóra Samtaka
sveitarfélaga á Vesturlandi, er eng-
an bilbug á mönnum að finna þrátt
fyrir að ekki sé enn búið að stofna
félagið. Sagði hann í viðtali við
Skagablaðið í vikunni, að stefnt
væri að stofnuninni fyrir árslok.
Áætlað hlutafé er 20 milljónir
króna. Þróunarfélag íslands ætlar
að leggja fram 4 milljónir króna og
stefnt er að því að sveitarfélögin á
Vesturlandi leggi fram aðra eins
fjárhæð. Það sem á vantar er hugs-
að frá fyrirtækjum og einstakling-
um.
Guðjón Ingvi sagði að bakslag
hefði komið í seglin á vormánuðum
eftir að hugmyndin hefði verið
kynnt og hlotið góðan hljómgrunn
sl. vetur. „Menn voru fullir bjart-
sýni í febrúar en í maí brá svo við,
að annar hljóð var komið í
strokkinn," sagði Guðjón Ingvi.
Bætti hann því við að aukinn fjár-
hagsvandi fyrirtækja, sér í lagi í
sjávarútvegi, hefði líklegast leikið
þar stórt hlutverk.
Skipuð hefur verið þriggja
manna famkvæmdanefnd, sem í
eiga sæti Haraldur Sturlaugsson,
famkvæmdastjóri HB & Co, Sturla
Böðvarsson, sveitarstjóri í Stykkis-
hólmi, og Eiríkur Ingólfsson,
Borgamesi. Hún fundar á næstunni
og í framhaldi af þeim fundi er
búist við að meiri skriður komist á
undirbúninginn.
Grunurum
íkveikju í
Hafeminum
Grunur leikur á að kveikt
hafi verið í pappír í ruslafötu á
efri heið beitingaskúrs Haf-
arnarsins sl. sunnudag.
Að sögn lögreglu barst til-
kynning um að reykjarlykt
bærist frá húsinu um kl 19.15
á sunnudagskvöld en þegar
að var komið hafði eldurinn
kafnað vegna skorts á súrefni.
Skemmdir urðu ekki mikl-
ar en taldar eru líkur á að
kveikt hafi verið í ruslinu.
Málið er nú í rannsókn.