Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 24
Hjördís Elsa Ásgeirs-dóttir var ráðin m a r k a ð s s t j ó r i Krónunnar í vor en hún hefur undan-f a r i n f i m m á r
starfað hjá Festi, fyrst sem mark-
aðsfulltrúi Krónunnar, Nóatúns og
Kjarvals, og nú síðast sem sérfræð-
ingur í markaðsdeild Krónunnar.
Hjördís segir að viðskiptavinir
Krónunnar séu duglegir að hrósa og
benda á hvað betur megi fara.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég veit ekkert betra en að ferðast
með fjölskyldunni. Fram undan
er kærkomið f jölskyldufrí um
landið með fellihýsi í eftirdragi
og ekkert plan. Á veturna eru svo
mánudagskvöldin alveg heilög
og frátekin fyrir kóræfingar með
Kvennakórnum Kötlu.
Hvernig er morgunrútínan þín?
Það er engin heilög morgunrútína.
Það er frekar mikið fjör á morgnana
með þrjú börn og oft smá hasar að
koma öllum út úr húsi. Ég fæ mér
svo fyrsta kaffibollann í vinnunni
en reyni að fasta fyrir hádegi.
Hvaða bók ertu að lesa eða last
síðast?
Núna eru nokkrar á náttborð-
inu sem ég gríp í eftir skapi: Mið-
Austurlönd, Making of a Manager
og Dalalíf eftir Guðrúnu frá Lundi.
Hverjar eru helstu áskoranirnar
í starfinu?
Það er mikill hraði svo ætli það sé
ekki helsta áskorunin, en jafnframt
líka það sem er svo skemmtilegt.
Viðskiptavinurinn kemur jafnvel
daglega og þú færð því f ljótt að sjá
árangur eða viðbrögð frá viðskipta-
vinum. Við eigum í miklum sam-
skiptum við viðskiptavini okkar,
t.d. á samfélagsmiðlum, og erum
mjög þakklát fyrir hvað þeir eru
duglegir við að hrósa eða benda
okkur á hvað megi betur fara.
Hverjar eru helstu áskoranirnar í
rekstrarumhverfinu?
Krónan er fyrst og fremst lág-
vöruverðsverslun og við lofum við-
skiptavinum okkar að koma réttu
vöruúrvali til þeirra á eins ódýran
hátt og mögulegt er. Því þurfum við
alltaf að huga að því í öllu sem við
gerum. En Krónan ætlar jafnframt
að vera framsækin og bjóða sífellt
umhverfisvænni lausnir og oft felast
miklar áskoranir í því að láta mark-
miðin ganga upp samtímis.
Hvaða breytingar sérðu fyrir þér
hjá Krónunni á næstu árum?
Matvörumarkaðurinn er að
breytast mikið og mun Krónan taka
þátt í þeim breytingum. Vefverslun
og fleiri Krónuverslanir verða opn-
aðar á næstu árum og við munum
halda áfram að finna lausnir sem
einfalda líf okkar viðskiptavina.
Hvers konar stjórnunarhætti hef-
urðu tileinkað þér og hvers vegna?
Ég reyni að tileinka mér þá eigin-
leika sem mér hefur þótt góðir hjá
öðrum stjórnendum. Ég legg mig
t.d. fram við að stuðla að tíðum
samskiptum, góðri upplýsinga-
gjöf og náinni samvinnu sem ég
tel mikil væga þætti í góðri teymis-
vinnu, en ég er svo heppin að vinna
í frábæru teymi þar sem allir eru
snillingar á sínu sviði.
Ef þú þyrftir velja allt annan
starfsframa, hver yrði hann?
Ég gæti alveg hugsað mér ýmis-
legt í skapandi umhverfi t.d. kenn-
ari eða rithöfundur.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Vonandi enn alltaf að læra eitt-
hvað nýtt og að láta gott af mér
leiða, reynslunni ríkari með aðeins
fleiri hrukkur.
Matvörumarkaðurinn
er að breytast mikið
Nám:
M.Sc. í Markaðsfræði og alþjóða-
viðskiptum frá Háskóla Íslands
Störf:
Markaðsstjóri Krónunnar
Fjölskylduhagir:
Í sambúð með Helga Þór Arasyni.
Börn: Ara (9), Breka (7) og Nóa (2).
Hjördís Elsa segir að fram undan sé kærkomið fjölskyldufrí um landið með fellihýsi í eftirdragi. LJÓSMYND/ÍRIS DÖGG
Svipmynd
Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir
Hagnaður LEX, einnar stærstu lögmannsstofu landsins, nam 235 milljónum á síð-
asta ári, samkvæmt nýbirtum árs-
reikningi stofunnar, og jókst um tíu
milljónir króna frá fyrra ári.
Rekstrartekjur lögmannsstof-
unnar námu liðlega 1.220 milljónum
króna í fyrra og jukust um 4,7 pró-
sent frá árinu 2017 þegar þær voru
1.165 milljónir króna. Rekstrargjöld-
in voru ríflega 938 milljónir króna og
hækkuðu um 45 milljónir króna á
milli ára. Þar af námu laun og launa-
tengd gjöld 722 milljónum króna,
sem er 57 milljóna króna aukning
frá fyrra ári, en 45 manns störfuðu á
lögmannsstofunni á síðasta ári.
LEX átti eignir upp á samanlagt
761 milljón króna í lok síðasta árs en
á sama tíma var eigið fé lögmanns-
stofunnar tæplega 300 milljónir
króna og eiginfjárhlutfallið því um
39 prósent.
Í hópi eigenda LEX eru meðal ann-
ars hæstaréttarlögmennirnir Arnar
Þór Stefánsson, Guðmundur Ingvi
Sigurðsson og Kristín Edwald. – kij
LEX hagnaðist um 235
milljónir króna í fyrra
35 ára afmælistilboð
allt að 45%
afsláttur
út Ágúst- Hjólsagarblöð
- Bandsagarblöð
- Tifsagarblöð
- Fræsitennur
- Fræsihakar
- Hefiltennur
- Dósaborar
- Þrepaborar
- Handfræsitennur
- Fræsitannahausar
- Sagarblöð fyrir plastparket
Gul Gata
AFMÆLIS
TILBOÐ
35ára
Arnar Þór
Stefánsson,
einn eigenda
LEX lögmanns-
stofu.
Jo Kim hefur verið ráðin yfir-maður lyfjasölurisans Medis, dótturfélags Actavis, en hún var
áður yfir starfsemi Medis í Ástr-
alíu. Hún flytur frá skrifstofu Medis í
Sydney til höfuðstöðvanna í Hafnar-
firði seinna á árinu. Kim hefur starf-
að í lyfjageiranum í 25 ár og gekk til
liðs við Medis árið 2013.
Þá hefur Jónína Þorbjörg Guð-
mundsdóttir látið af störfum sem
framkvæmdastjóri hjá Medis en
hún hefur starfað hjá fyrirtækinu
frá árinu 2003. Jo Kim, Hildur Ragn-
ars og Ágúst Helgi Leósson skipa nú
framkvæmdastjórn Medis.
Medis selur lyf og lyfjahugvit
Actavis til annarra lyfjafyrirtækja
um allan heim. Móðurfélagið Teva
reyndi sem kunnugt er að selja fyrir-
tækið fyrir um hálfan milljarð dala
og átti í viðræðum við lyfjafyrirtæki
í Svíþjóð og Brasilíu. Söluferlinu var
hætt í desember á síðasta ári og
samhliða því lét Valur Ragnarsson
af störfum sem forstjóri Medis. – tfh
Nýr yfirmaður Medis og
breytingar á yfirstjórn
Jo Kim, nýr yfir-
maður Medis.
1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R8 MARKAÐURINN
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
5
-E
9
D
0
2
3
6
5
-E
8
9
4
2
3
6
5
-E
7
5
8
2
3
6
5
-E
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K