Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 16
Hópur f járfesta og tveggja fyrrverandi s t j ó r n e n d a   h j á WOW air vinnur um þessar mundir, í samfloti við írskan fjárfestingarsjóð sem er í eigu dóttur eins af stofnendum Ryanair, að stofnun nýs íslensks lággjaldaflug- félags á grunni WOW air. Hópurinn hefur leitað til að minnsta kosti tveggja hérlendra banka og óskað eftir láni upp á 31 milljón evra, jafn- virði tæplega fjögurra milljarða króna, til þess að reka hið nýja flug- félag, eftir því sem Markaðurinn kemst næst. Írski fjárfestingarsjóðurinn, sem ber heitið Avianta Capital og er að fullu í eigu Aislinn Whittley-Ryan en er stýrt af eiginmanni hennar, Simon, hefur skuldbundið sig til þess að leggja nýstofnuðu félagi, WAB air, til 40 milljónir dala, jafn- virði rúmra fimm milljarða króna, í nýtt hlutafé til þess að tryggja grundvöll rekstrar félagsins til þriggja ára. Fjárfestahópurinn hyggst, fái hann fyrirgreiðslu hjá íslenskum banka, í kjölfarið nýta sér lánsféð sem eigið fé til þess að slá lán hjá svissneskum banka. Lánið frá íslenska bankanum verði þá á læst- um vörslureikningi í heilt ár. Sem endurgjald fyrir fjárfesting- una mun Avianta Capital eignast 75 prósenta hlut í hinu nýja flugfélagi á móti 25 prósenta hlut félagsins Neo en það er í eigu Arnars Más Magnús- sonar, fyrrverandi framkvæmda- stjóra f lugrekstrarsviðs WOW air, Sveins Inga Steinþórssonar, sem stýrði hagdeild WOW air og sat í framkvæmdastjórn f lugfélagsins, Boga Guðmundssonar, lögmanns hjá Atlantik Legal Serv ic es og stjórn- arformanns BusTrav el, og Þórodds Ara Þóroddssonar sem hefur starfað sem ráðgjafi í f lugvélaviðskiptum í Lundúnum. Upplýst er um áform fjárfesta- hópsins, sem var settur saman í kjölfar gjaldþrots WOW air í lok mars síðastliðins, í nýlegu minnis- blaði, sem Markaðurinn hefur undir höndum, þar sem lánsbeiðnin er útlistuð. Aislinn, eigandi Avianta Capital, er dóttir Michaels Kell Ryan sem kom að stofnun Ryanair á níunda áratug síðustu aldar en írska lág- gjaldaflugfélagið er nú eitt stærsta sinnar tegundar í Evrópu. Til ráðgjafar við Avianta Capi- tal er, eftir því sem fram kemur í minnisblaðinu, fjárfestingarfélagið Irelandia Aviation sem hefur meðal annars f járfest í lággjaldaf lug- félögunum Ryanair, Tiger Airways í Asíu, Allegiant Air í Bandaríkj- unum og Viva Aeurobus í Mexíkó en félaginu er stýrt af Declan Ryan, frænda Aislinn og fyrrverandi for- stjóra Ryanair. Verði með sex vélar í rekstri Áætlanir hópsins miða að því að nýja lággjaldaf lugfélagið, sem ber í minnisblaðinu heitið WAB air og verður byggt upp á grunni WOW air, hefji rekstur í haust og verði með sex vélar í rekstri sínum fyrsta árið. Er stefnt að því að f ljúga til fjórtán áfangastaða í Evrópu og Ameríku en áætlanirnar gera ráð fyrir að ein milljón farþega verði flutt með félag- inu á næsta ári og fimm hundruð starfsmenn ráðnir til þess á næstu tólf mánuðum. Þá verði velta félags- ins jafnframt um tuttugu milljarðar króna á næsta ári. Er sérstaklega tekið fram í minn- isblaðinu að undirbúningur fyrir umsókn að flugrekstrarleyfi sé langt á veg kominn. „Félagið verður með áherslu á lágan kostnað, samkeppnishæf verð, afbragðsþjónustu og mikið fjör fyrir sína starfsmenn og viðskiptavini,“ segir þar jafnframt. Forstjóri hins nýja félags verður, ef áformin ganga eftir, áðurnefnd- ur Sveinn Ingi en Arnar Már mun gegna starfi aðstoðarforstjóra og framkvæmdastjóra f lugrekstrar. Áður en Sveinn Ingi gekk til liðs við WOW air snemma árs 2016 starfaði hann í tæp tólf ár hjá Air Atlanta, þar á meðal sem yfirmaður hagdeildar, en Arnar Már hefur meðal annars starfað sem flugstjóri hjá Ryanair. Til viðbótar við  Svein Inga og Arnar Má mun John Bavister, sem stýrir Avianta Capital með Simon Whittley-Ryan,  taka sæti í fram- kvæmdastjórn nýja f lugfélagsins sem fjármálastjóri, að kröfu írska fjárfestingarsjóðsins. Fréttablaðið greindi í byrjun apr- ílmánaðar, skömmu eftir að WOW air var tekið til gjaldþrotaskipta, frá áformum stofnandans Skúla Mogensen og nokkurra lykilstarfs- manna f lugfélagsins, þar á meðal Arnars Más og Sveins Inga, um að endurvekja starfsemi félagsins en hópurinn leitaði í því skyni fjár- mögnunar upp á allt að fimm millj- arða króna. Áformin gengu sem kunnugt er ekki eftir en upplýst er um það í minnisblaðinu að fulltrúar hópsins hafi meðal annars fundað með Avi- anta Capital og kynnt fjárfestingar- sjóðnum áætlanir sínar. Í byrjun maímánaðar hófust síðan viðræður á milli forsvarsmanna sjóðsins og fyrrnefndra Íslendinga, þeirra Arnars Más, Sveins Inga, Boga og Þórodds Ara, með það að mark- miði að endurreisa nýtt f lugfélag á grundvelli WOW air, líkt og fjallað er um í minnisblaðinu, en þar er tíunduð nauðsyn þess að samkeppni ríki í f lugrekstri til og frá Íslandi. Samkomulag náðist loks um fjár- festingu Avianta Capital í nýstofn- uðu f lugfélagi, WAB air, þann 28. júní síðastliðinn en eins og áður var minnst á hefur fjárfestingar- Stofna nýtt flugfélag á grunni WOW Tveir fyrrverandi stjórnendur hjá WOW air vinna að því að stofna nýtt flugfélag á grundvelli hins gjaldþrota félags. Írskur fjárfest- ingarsjóður sem tengist Ryanair-fjölskyldunni tekur þátt í verkefninu. Óska eftir fjögurra milljarða láni frá íslenskum bönkum. Hópur fjárfesta, þar á meðal tveir fyrrverandi stjórnendur hjá WOW air, hefur leitað liðsinnis íslenskra banka til þess að hefja rekstur nýs flugfélags á haustmánuðum á grunni hins gjaldþrota félags. Hópurinn telur nauðsynlegt að samkeppni ríki í flugrekstri til og frá Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Viðriðinn félag sem rauf viðskiptabann við Íran Einn þeirra Íslendinga sem koma að stofnun nýja flugfélagsins starfaði fyrir um áratug hjá bresk-írönsku fyrirtæki sem var dæmt til þess að greiða banda- rískum yfirvöldum allt að sautján milljóna dala sekt fyrir að brjóta gegn viðskiptabanni Banda- ríkjanna gagnvart Íran. Maðurinn, Þóroddur Ari Þór- oddsson, sem hefur um langt skeið starfað í Lundúnum sem ráðgjafi við fjármögnun og út- leigu flugvéla, er einn fjögurra Íslendinga sem munu fara með samanlagt fjórðungshlut í hinu nýju flugfélagi, ef áform þeirra ganga eftir, en í minnisblaðinu sem Markaðurinn hefur undir höndum, er hann titlaður sem „fagfjárfestir í flugrekstri“. Þóroddur Ari gegndi í aldar- byrjun, þá ríflega þrítugur að aldri, starfi framkvæmdastjóra Burnham International á Íslandi en áður hafði hann starfað hjá GE Capital Services í Lundúnum og Amsterdam. Hann gekk síðan til liðs við Montrose Global Capital, dótturfélag Bank of America, um miðjan síðasta áratug þar sem hann sinnti einkum ráðgjöf í flug- vélaviðskiptum. Hjá Montrose átti hann meðal annars í samskiptum við stjórn- endur bresk-íranska félagsins Balli Group og svo fór að hann réðst að lokum til starfa hjá félaginu. Dótturfélagið Balli Aviation komst í heimsfréttirnar árið 2010 þegar það viðurkenndi fyrir bandarískum dómstólum að hafa flutt ólöglega frá Banda- ríkjunum til Írans sex Boeing 747 þotur í trássi við viðskiptabann fyrrnefnda ríkisins gagnvart því síðarnefnda. Var félaginu gert að greiða samtals 17 milljónir dala, jafnvirði 2,1 milljarðs króna á núverandi gengi, í sekt. Þremur árum síðar var móðurfélagið, Balli Group, tekið til gjaldþrota- skipta. Þá hefur komið fram í breskum fjölmiðlum að efnahagsbrota- deild lögreglunnar þar í landi rannsaki nú starfsemi Balli Group og dótturfélaga þess en sjö manns voru handteknir í tengslum við rannsóknina árið 2017. Sveinn Ingi Steinþórsson, fyrrverandi forstöðumaður hagdeildar WOW air. Bogi Guðmundsson, lögmaður hjá Atlantik Legal Services. Simon Whittley-Ryan, einn stjórnenda Avianta Capital. 5,1 milljarður króna er fjár- hæðin sem Avianta Capital hefur skuldbundið sig til þess leggja hinu nýja flug- félagi til. 500 er fjöldi starfsmanna sem stefnt er að því að ráða til hins nýja flugfélags á næstu tólf mánuðum.Sem endurgjald fyrir fjárfestinguna mun fjárfest- ingasjóðurinn Avianta Capital eignast 75 prósenta hlut í hinu nýja flugfélagi á móti 25 prósenta hlut Íslendinganna fjögurra. Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is sjóðurinn skuldbundið sig til þess að leggja f lugfélaginu til fjörutíu milljónir dala gegn því að eignast 75 prósenta hlut í því. Á móti munu Íslendingarnir fara með fjórðungs- hlut. Biðlað til bankanna Fjárfestahópurinn hefur á undan- förnum vikum biðlað til að minnsta kosti tveggja banka, Arion banka og Landsbankans, eftir því sem heim- ildir Markaðarins herma, um að lána Avianta Capital 31 milljón evra, um 3,9 milljarða króna, til eins árs á fimm prósenta vöxtum. Samkvæmt gögnum sem blaðið hefur undir höndum hyggst fjár- festingarsjóðurinn í kjölfarið leita til ónefnds svissnesks banka um að veita sér lán – til þess að fjármagna rekstur nýja flugfélagsins – út á láns- féð frá íslenska bankanum. 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN 1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 5 -E 9 D 0 2 3 6 5 -E 8 9 4 2 3 6 5 -E 7 5 8 2 3 6 5 -E 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.