Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 25
Nýleg skuldabréfa­útgáfa ríkissjóðs með bestu vöxtum Ísla nd ssög u nna r sýnir vel hversu g ó ð u r á r a n g u r hefur náðst á tíu árum við að byggja ríkissjóð upp eftir efnahagshrunið. Alþjóðlegir lánamarkaðir eru aftur opnir fyrir íslenska útgáfu, lánshæf­ ið batnar og kjörin líka. Eftirspurnin eftir skuldabréfunum var fimmföld og útboðið heppnaðist afar vel. Þessi árangur dregur fram mögu­ leikana í að þróa á næstu tíu árum sókn Íslendinga eftir hagstæðri fjármögnun á alþjóðlegum mörk­ uðum. Mörg tækifæri geta falist í því að sækja erlendan gjaldeyri inn í hagkerfið til að fjármagna nauð­ synlega innviðauppbyggingu um leið og skapaðar eru forsendur fyrir trausta langtímafjárfestingu fyrir lífeyrissjóði. Við teljum að nú sé tækifæri til að skoða af alvöru möguleikana á því að ríkissjóður gefi út græn skulda­ bréf til að fjármagna aðgerðir í bar­ áttunni við loftslagsbreytingar. Sjöfaldur ávinningur Útgáfa grænna ríkisskuldabréfa getur slegið margar flugur í hverju höggi. l Græn ríkisskuldabréfaútgáfa er sterkt merki um að ríki taki lofts­ lagsvána alvarlega og ætli að leggja sitt af mörkum. l Nýir og fjölbreyttir fjárfestar taka þátt í útboðum. Meirihluti fjár­ festa í grænu skuldabréfaútboði Póllands voru nýir fjárfestar. l Það er möguleiki á betri kjörum – Frakkar náðu því í sinni útgáfu, aðrir hafa ekki fengið lakari kjör. l Aukinn sýnileiki í útboði. Ríki hafa notað græna útgáfu til að Fjármögnum innviðafjárfestingar með grænum skuldabréfum  Andri Guðmundsson framkvæmda- stjóri fyrir- tækjaráðgjafar Fossa markaða Kristján Guy Burgess ráðgjafi um ábyrgar fjárfestingar vekja athygli á alþjóðavettvangi og byggt undir ímyndarstarf og markaðssókn til að auka verðmæti á útflutningsvörum. l Stjórnvöld taka þátt í að skapa grænan fjármálamarkað og gefa innlendum fagfjárfestum leiðir til að virkja sitt fé til góðra verka. l Leið til að f lýta nauðsynlegum innviðafjárfestingum sem bæta umhverfið og sækja nýtt fjármagn í stórframkvæmdir. l Forysta á heimsvísu. Ríki sem ná góðum árangri í grænni útgáfu, eru öðrum fyrirmynd og geta miðlað dýrmætri þekkingu og reynslu. Fjármögnun loftslagsaðgerða Með vel útfærðri stefnu um útgáfu grænna skuldabréfa til að fjármagna aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, getur Ísland skipað sér í fremstu röð alþjóðlega og sýnt öðrum ríkjum fram á hvernig unnt sé að ná árangri við fjármögnun loftslagsaðgerða. Hvort sem um er að ræða raf bíla­ væðingu, almenningssamgöngur, fulla rafvæðingu hafna, umhverfis­ vænt húsnæði, eða endurvinnslu, eru græn skuldabréf ákjósanleg leið fyrir útgefendur og innlenda og erlenda fjárfesta. Fylgja eftir árangri Íslands Íslendingar eru nú þegar í farar­ broddi á heimsvísu hvað varðar græna orkugjafa: ekkert land í heiminum framleiðir hærra hlutfall rafmagns með grænum endurnýjan­ legum orkugjöfum og Reykjavík er eina höfuðborg heimsins sem alfarið er hituð með jarðvarma. Hér njótum við forskots á aðrar þjóðir sem mögulegt er að vinna enn betur með, og búa til aukin verðmæti úr. Ef vel tekst til við að koma grænum fjár­ festingum á kortið á Íslandi, getur kastljósið á Ísland sem fyrirmyndar­ land í loftslagsmálum orðið sterkara en nokkru sinni fyrr og skapað land­ inu áður óþekkt tækifæri. Vel heppnuð græn skuldabréfaútgáfa Á allra síðustu misserum hafa íslenskir aðilar hafið útgáfu á grænum skuldabréfum með góðum árangri. Landsvirkjun sótti sér fjár­ magn á Bandaríkjamarkað og Fossar Markaðir unnu með Reykjavíkur­ borg og Orkuveitu Reykjavíkur í þeirra fyrstu útgáfum á grænum skuldabréfum til að fjármagna innviði fyrir orkuskipti, átak í gerð hjólastíga og í CarbFix verkefnið um kolefnisbindingu í basalt sem hefur notið athygli víða um heim. Reynslan af þessari útgáfu var mjög góð og lærdómsrík; áhuginn mikill, eftirspurnin stóreykst og kjörin batna. Nýir fjárfestar sækjast eftir að taka þátt. Sjóðir sem fjárfesta með samfélagslega ábyrgum hætti leggja mikið upp úr að finna slíka fjárfestingarkosti og hafa áhuga á að skilja í hvað fjárfestingin fer – sem eru nýmæli hjá kaupendum skulda­ bréfa. Þetta er leiðin til að virkja fjár­ festa – erlenda sem innlenda – með í fjármögnun nauðsynlegra innviða og nýsköpunar um græna framtíð. Betri vextir, margföld eftirspurn Nokkur Evrópuríki hafa á síðustu árum haslað sér völl við útgáfu á grænum ríkisskuldabréfum og gert það að nýrri fjármögnunarleið fyrir sína ríkissjóði. Hvarvetna hefur reynslan af slíkri útgáfu verið afar góð. Frakkar sóttu sér betri láns­ kjör en ríkissjóður þeirra naut áður. Pólverjar og Litháar sóttu sér fé til að undirbúa orkuskipti, það gerðu Belgar líka. Írar gáfu út sitt fyrsta græna ríkisskuldabréf í fyrra með góðum árangri og hyggjast halda slíkri útgáfu áfram til að fjármagna skuldbindingar Parísarsamkomu­ lagsins. Svíar undirbúa útgáfu á grænum ríkisskuldabréfum á grund­ velli skýrslu sem Mats Andersson, fv. forstjóri eins stærsta lífeyris­ sjóðs Svíþjóðar, vann fyrir sænska fjármálaráðuneytið, en hann sótti Ísland heim í fyrra á vegum Fossa markaða. Hollendingar gáfu út sitt fyrsta græna ríkisskuldabréf fyrir fáeinum vikum upp á 6 milljarða evra en til­ boð fóru yfir 20 milljarða evra, að miklu leyti frá sjóðum sem vilja fjár­ festa í umhverfisvænum fjárfesting­ um. Eftirspurnin var afar mikil, á 7 mínútum voru tilboð komin yfir 10 milljarða evra og á 18 mínútum yfir 15 milljarða. Grænum fjárfestum var gefinn forgangur að útboðinu sem þeir nýttu sér. Það sýnir að þessi fjármögnunarleið fyrir ríkissjóði er komin til að vera. Rétti tíminn nálgast hratt Undirritaðir hafa lengi haft áhuga á því að íslenskir aðilar tileinki sér aðferðafræði grænna fjárfestinga. Nú virðast forsendurnar vera að skapast til að stíga stór skref í þess­ um efnum og að íslenska ríkið gefi út græn ríkisskuldabréf til að fjár­ magna metnaðarfulla áætlun um aðgerðir gegn loftslagsvá og fyrir kolefnishlutleysi Íslands. Það er ekki eftir neinu að bíða. Við teljum að nú sé tækifæri til að skoða af alvöru möguleik- ana á því að ríkissjóður gefi út græn skuldabréf til að fjármagna aðgerðir í bar- áttunni við loftslagsbreyt- ingar. Sterkt og gott samband Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki Eitt símtal og málið er leyst Vodafone sinnir tæknilegum þörfum okkar hratt og örugglega 9M I Ð V I K U D A G U R 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 MARKAÐURINN 1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 5 -E 9 D 0 2 3 6 5 -E 8 9 4 2 3 6 5 -E 7 5 8 2 3 6 5 -E 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.