Fréttablaðið - 10.07.2019, Qupperneq 25
Nýleg skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs með bestu vöxtum Ísla nd ssög u nna r sýnir vel hversu g ó ð u r á r a n g u r
hefur náðst á tíu árum við að byggja
ríkissjóð upp eftir efnahagshrunið.
Alþjóðlegir lánamarkaðir eru aftur
opnir fyrir íslenska útgáfu, lánshæf
ið batnar og kjörin líka. Eftirspurnin
eftir skuldabréfunum var fimmföld
og útboðið heppnaðist afar vel.
Þessi árangur dregur fram mögu
leikana í að þróa á næstu tíu árum
sókn Íslendinga eftir hagstæðri
fjármögnun á alþjóðlegum mörk
uðum. Mörg tækifæri geta falist í
því að sækja erlendan gjaldeyri inn
í hagkerfið til að fjármagna nauð
synlega innviðauppbyggingu um
leið og skapaðar eru forsendur fyrir
trausta langtímafjárfestingu fyrir
lífeyrissjóði.
Við teljum að nú sé tækifæri til að
skoða af alvöru möguleikana á því
að ríkissjóður gefi út græn skulda
bréf til að fjármagna aðgerðir í bar
áttunni við loftslagsbreytingar.
Sjöfaldur ávinningur
Útgáfa grænna ríkisskuldabréfa
getur slegið margar flugur í hverju
höggi.
l Græn ríkisskuldabréfaútgáfa er
sterkt merki um að ríki taki lofts
lagsvána alvarlega og ætli að leggja
sitt af mörkum.
l Nýir og fjölbreyttir fjárfestar taka
þátt í útboðum. Meirihluti fjár
festa í grænu skuldabréfaútboði
Póllands voru nýir fjárfestar.
l Það er möguleiki á betri kjörum
– Frakkar náðu því í sinni útgáfu,
aðrir hafa ekki fengið lakari kjör.
l Aukinn sýnileiki í útboði. Ríki
hafa notað græna útgáfu til að
Fjármögnum innviðafjárfestingar
með grænum skuldabréfum
Andri
Guðmundsson
framkvæmda-
stjóri fyrir-
tækjaráðgjafar
Fossa markaða
Kristján Guy
Burgess
ráðgjafi
um ábyrgar
fjárfestingar
vekja athygli á alþjóðavettvangi
og byggt undir ímyndarstarf og
markaðssókn til að auka verðmæti
á útflutningsvörum.
l Stjórnvöld taka þátt í að skapa
grænan fjármálamarkað og gefa
innlendum fagfjárfestum leiðir til
að virkja sitt fé til góðra verka.
l Leið til að f lýta nauðsynlegum
innviðafjárfestingum sem bæta
umhverfið og sækja nýtt fjármagn
í stórframkvæmdir.
l Forysta á heimsvísu. Ríki sem ná
góðum árangri í grænni útgáfu, eru
öðrum fyrirmynd og geta miðlað
dýrmætri þekkingu og reynslu.
Fjármögnun loftslagsaðgerða
Með vel útfærðri stefnu um útgáfu
grænna skuldabréfa til að fjármagna
aðgerðaáætlun í loftslagsmálum,
getur Ísland skipað sér í fremstu röð
alþjóðlega og sýnt öðrum ríkjum
fram á hvernig unnt sé að ná árangri
við fjármögnun loftslagsaðgerða.
Hvort sem um er að ræða raf bíla
væðingu, almenningssamgöngur,
fulla rafvæðingu hafna, umhverfis
vænt húsnæði, eða endurvinnslu,
eru græn skuldabréf ákjósanleg
leið fyrir útgefendur og innlenda og
erlenda fjárfesta.
Fylgja eftir árangri Íslands
Íslendingar eru nú þegar í farar
broddi á heimsvísu hvað varðar
græna orkugjafa: ekkert land í
heiminum framleiðir hærra hlutfall
rafmagns með grænum endurnýjan
legum orkugjöfum og Reykjavík er
eina höfuðborg heimsins sem alfarið
er hituð með jarðvarma. Hér njótum
við forskots á aðrar þjóðir sem
mögulegt er að vinna enn betur með,
og búa til aukin verðmæti úr. Ef vel
tekst til við að koma grænum fjár
festingum á kortið á Íslandi, getur
kastljósið á Ísland sem fyrirmyndar
land í loftslagsmálum orðið sterkara
en nokkru sinni fyrr og skapað land
inu áður óþekkt tækifæri.
Vel heppnuð græn
skuldabréfaútgáfa
Á allra síðustu misserum hafa
íslenskir aðilar hafið útgáfu á
grænum skuldabréfum með góðum
árangri. Landsvirkjun sótti sér fjár
magn á Bandaríkjamarkað og Fossar
Markaðir unnu með Reykjavíkur
borg og Orkuveitu Reykjavíkur í
þeirra fyrstu útgáfum á grænum
skuldabréfum til að fjármagna
innviði fyrir orkuskipti, átak í gerð
hjólastíga og í CarbFix verkefnið um
kolefnisbindingu í basalt sem hefur
notið athygli víða um heim.
Reynslan af þessari útgáfu var
mjög góð og lærdómsrík; áhuginn
mikill, eftirspurnin stóreykst og
kjörin batna. Nýir fjárfestar sækjast
eftir að taka þátt. Sjóðir sem fjárfesta
með samfélagslega ábyrgum hætti
leggja mikið upp úr að finna slíka
fjárfestingarkosti og hafa áhuga á
að skilja í hvað fjárfestingin fer – sem
eru nýmæli hjá kaupendum skulda
bréfa. Þetta er leiðin til að virkja fjár
festa – erlenda sem innlenda – með
í fjármögnun nauðsynlegra innviða
og nýsköpunar um græna framtíð.
Betri vextir, margföld eftirspurn
Nokkur Evrópuríki hafa á síðustu
árum haslað sér völl við útgáfu á
grænum ríkisskuldabréfum og gert
það að nýrri fjármögnunarleið fyrir
sína ríkissjóði. Hvarvetna hefur
reynslan af slíkri útgáfu verið afar
góð. Frakkar sóttu sér betri láns
kjör en ríkissjóður þeirra naut áður.
Pólverjar og Litháar sóttu sér fé til
að undirbúa orkuskipti, það gerðu
Belgar líka. Írar gáfu út sitt fyrsta
græna ríkisskuldabréf í fyrra með
góðum árangri og hyggjast halda
slíkri útgáfu áfram til að fjármagna
skuldbindingar Parísarsamkomu
lagsins. Svíar undirbúa útgáfu á
grænum ríkisskuldabréfum á grund
velli skýrslu sem Mats Andersson,
fv. forstjóri eins stærsta lífeyris
sjóðs Svíþjóðar, vann fyrir sænska
fjármálaráðuneytið, en hann sótti
Ísland heim í fyrra á vegum Fossa
markaða.
Hollendingar gáfu út sitt fyrsta
græna ríkisskuldabréf fyrir fáeinum
vikum upp á 6 milljarða evra en til
boð fóru yfir 20 milljarða evra, að
miklu leyti frá sjóðum sem vilja fjár
festa í umhverfisvænum fjárfesting
um. Eftirspurnin var afar mikil, á 7
mínútum voru tilboð komin yfir 10
milljarða evra og á 18 mínútum yfir
15 milljarða. Grænum fjárfestum
var gefinn forgangur að útboðinu
sem þeir nýttu sér. Það sýnir að þessi
fjármögnunarleið fyrir ríkissjóði er
komin til að vera.
Rétti tíminn nálgast hratt
Undirritaðir hafa lengi haft áhuga
á því að íslenskir aðilar tileinki sér
aðferðafræði grænna fjárfestinga.
Nú virðast forsendurnar vera að
skapast til að stíga stór skref í þess
um efnum og að íslenska ríkið gefi
út græn ríkisskuldabréf til að fjár
magna metnaðarfulla áætlun um
aðgerðir gegn loftslagsvá og fyrir
kolefnishlutleysi Íslands. Það er ekki
eftir neinu að bíða.
Við teljum að nú sé
tækifæri til að
skoða af alvöru möguleik-
ana á því að ríkissjóður gefi
út græn skuldabréf til að
fjármagna aðgerðir í bar-
áttunni við loftslagsbreyt-
ingar.
Sterkt og gott
samband
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Eitt símtal
og málið er leyst
Vodafone sinnir tæknilegum
þörfum okkar hratt og örugglega
9M I Ð V I K U D A G U R 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 MARKAÐURINN
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
5
-E
9
D
0
2
3
6
5
-E
8
9
4
2
3
6
5
-E
7
5
8
2
3
6
5
-E
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K