Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 26
Þorsteinn Friðrik Halldórsson SKOÐUN Christian Sewing, bankastjóri Deutsche Bank, greindi um liðna helgi frá áformum sínum um að endurskipuleggja rekstur bankans, selja milljarða- eignir og segja upp allt að átján þúsund starfsmönnum. Fjárfestingarbankastarfsemi þýska stórbankans, sem hefur átt afar erfitt uppdráttar undan- farin ár, verður skorin verulega niður og áherslan þess í stað lögð á að fjármagna verkefni þýskra og evrópskra viðskiptavina. NORDICPHOTOS/GETTY Skotsilfur Starfsemi Deutsche Bank umbylt Un d a n f a r n a á r a ­tugi hefur samband af komu í útf lutnings­greinum þjóðarinnar og lífskjara almennings í landinu stimplast rækilega inn í þjóðarsálina, þar sem sveiflur gjald­ miðils og gjöfulleiki auðlindanna hefur ráðið miklu um lífsskilyrðin. Lengi vel var sjávarútvegur nær einráður um þetta sveiflusamband og áhrif hans á efnahagslíf þjóðar­ innar réð mestu um ákvarðanir stjórnvalda á hverjum tíma. Stóriðja bættist við þegar fram liðu stundir og hefur ráðið stórum ákvörðunum um bæði útgjöld og stefnu um nýt­ ingu náttúruauðlinda. Og nú hefur ferðaþjónusta bæst við og á fáum árum orðið stærsta útf lutnings­ grein Íslendinga og færir sem slík björg í bú í formi gjaldeyristekna – lífæð lítils útflutningshagkerfis. Á sama hátt og ýmsar lykil­ ákvarðanir stjórnvalda miðuðust á árum áður við að bregðast við vanda eða ýta undir gott gengi sjáv­ arútvegs og orkufreks iðnaðar með það að markmiði að bæta efnahags­ lega stöðu þjóðarinnar og þoka lífs­ kjörum upp á við, er í dag skynsam­ legt fyrir stjórnvöld og samfélagið að bregðast við vanda og ýta undir gott gengi ferðaþjónustu. Af hverju er það efnahagslega skynsamlegt? Í dag þarf ekki að fella gengi gjald­ miðilsins handvirkt eða sökkva stórum svæðum undir vatn til að treysta stoðir atvinnusköpunar. Með tilkomu ferðaþjónustunnar hefur efnahagslegur raunveruleiki Íslands breyst. Allar útf lutnings­ atvinnugreinar landsins eru mikil­ vægar, en með ferðaþjónustu hefur orðið til fjölbreytni sem var sárlega þörf. Samfelldur jákvæður vöru­ og þjónustujöfnuður undanfarins ára­ tugar hefur að stórum hluta grund­ vallast á þessari breytingu og skap­ að grunn fyrir mikla lífskjarasókn. Stærstu áskoranir í rekstri fyrir­ tækja á Íslandi í dag tengjast stór­ auknum kostnaði á ýmsum sviðum. Hvort sem litið er til aðfanga, launa eða fjárfestinga hafa kostnaðar­ þættir í rekstri fyrirtækja hækkað ótrúlega hratt á síðasta áratug. Í slíku umhverfi er það skynsamleg nálgun af hálfu stjórnvalda að koma til móts við atvinnulíf með lækkun opinberra gjalda og skatta og ýta þannig undir að atvinnustig haldist hátt, að rekstur fyrirtækja skili arði og þar með sköttum til samfélagsins. Fyrirtæki sem fer úr rekstri vegna ómögulegra rekstrar­ aðstæðna er tapað fé fyrir ríkissjóð. Samtök ferðaþjónustunnar hafa bent ítrekað á það undanfarna mánuði að ýmsar aðgerðir sem nýta mætti til að örva ferðaþjónustu á samdráttartímum hafa einmitt bein áhrif til örvunar atvinnulífs í heild sinni. Með hröðum og miklum launahækkunum undanfarin fjög­ ur ár hefur lækkun tryggingagjalds orðið jafnvel enn mikilvægari en áður. Þáttur launa og launatengdra gjalda í rekstri fyrirtækja er orðinn gríðarstór, mun stærri þáttur en í samkeppnislöndum okkar. Lækkun fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði getur einnig skipt miklu máli við að lækka kostnað margra fyrirtækja. Hvers vegna skiptir þetta máli? Lykillinn sæm ætti að stýra afstöðu og ákvörðunum um álögur á atvinnugreinar er samkeppnis­ hæfni. Samkvæmt skýrslu World Economic Forum frá 2017 um sam­ keppnishæfni ferðaþjónustu var viðskiptaumhverfi ferðaþjónustu­ fyrirtækja á Íslandi mælt í 19. sæti – neðst Norðurlandaþjóða. Heildar­ samkeppnishæfni íslenskrar ferða­ þjónustu var í 25. sæti og hafði þá fallið um sjö sæti síðan 2015. Von er á nýrri skýrslu á þessu ári og miðað við þróunina er líklegt að sam­ keppnishæfni Íslands muni falla niður töfluna enn á ný. Ákvarðanir stjórnvalda sem örva ferðaþjónustu og bæta rekstrarumhverfi fyrir­ tækja hafa mikið að segja um sam­ keppnishæfni og ferðaþjónusta er atvinnugrein í harðri alþjóðlegri samkeppni. Fjárfesting í rekstr­ ar umhver f i ferðaþjónustu og markaðssetningu Íslands sem ferða­ mannalands skilar sér því ríkulega til samfélagsins, í bættri samkeppn­ ishæfni, betri af komu fyrirtækja, hærri skattgreiðslum en ella, betri efnahagslegri afkomu, bættum lífs­ kjörum fólks, hærra atvinnustigi og uppbyggingu atvinnulífs á lands­ byggðinni. Fjárfesting í uppbygg­ ingu innviða og styrkingu ferða­ mannastaða getur svo bætt enn fremur við þessa örvandi þróun, ekki síst á tímum efnahagslegrar niðursveiflu eins og nú. Í dag, alveg eins og áður, er það gengi útf lutningsatvinnugreina sem ræður efnahagslegri af komu samfélagsins og þar með lífskjörum almennings í landinu. Aðgerðir sem bæta aðstæður og samkeppnis­ hæfni lykilatvinnugreina eins og ferðaþjónustu munu því gagnast öllu samfélaginu. Ekki gera ekki neitt  Jóhannes Þór Skúlason framkvæmda­ stjóri Samtaka ferðaþjón­ ustunnar Dýr Ásgeir Ljóst þótti eftir að Benedikt Gísla­ son var ráðinn bankastjóri Arion banka að hann væri mjög áfram um að fá Ásgeir Helga Reykfjörð Gylfa- son, framkvæmdastjóra fyrir­ tækjasviðs Kviku, til liðs við sig. Það gekk eftir og hefur Ásgeir, sem hefur síðustu ár verið lykilmaður í uppbyggingu fjárfestingabankans, verið ráðinn aðstoðarbankastjóri Arion. Þeir Benedikt þekkjast vel en þeir störfuðu saman hjá MP banka og í framkvæmdahópi um losun hafta. Viðbrögð markaðarins við ráðningu Ásgeirs létu ekki á sér standa og lækkaði markaðsvirði Kviku um 800 milljónir í við­ skiptum gærdagsins á meðan virði Arion hækkaði um 5 milljarða. Dramatísk sveifla Hugmyndin með þjóðhagsvarúð er að stjórnvöld geti unnið gegn hag­ sveiflunni í stað þess að magna hana. Margir hafa áhyggjur af því að íslenskum stjórnvöldum sé nú að takast hið síðarnefnda: að dýpka samdráttinn sem er hafinn enn frekar. Nýlegar ákvarðanir fjár­ málastöðugleikaráðs um að hækka sérstakan sveiflujöfnunarauka bera þess til að mynda merki að ráðið sé að berjast við uppsveiflu eftir að niðursveifla er hafin. Ólafur Sigurðsson, framkvæmda­ stjóri Birtu lífeyrissjóðs, segist á Facebook­síðu sinni vera verulega hugsi yfir stöðunni. Þrátt fyrir að hagfræðingar Seðlabankans telji sig hafa fundið taktinn í íslensku fjármálasveiflunni gruni hann að sveiflan verði eftir sem áður dramatísk upp að vissu marki. Nýr formaður Tryggvi Þorgeirsson, læknir og einn stofnenda Side­ kickHealth, hefur verið skipaður stjórnarfor­ maður Tækni­ þróunarsjóðs til næstu tveggja ára. Hann tekur við formennskunni af Hrund Gunnsteinsdóttur, fram­ kvæmdastjóra Festu – miðstöðvar um samfélagsábyrgðir fyrirtækja, sem gegnt hefur starfinu frá 2015. Forsætisráðherra þarf að taka ákvörðun um það hvort hún muni reiða sig á meingallað mat hæfisnefndarinnar við ráðn­ ingu nýs seðlabankastjóra eða ráð­ ast í sjálfstæða rannsókn. Ákvörð­ unin er prófsteinn fyrir íslenska stjórnsýslu í ljósi þess að embætti seðlabankastjóra er eitt valdamesta embætti landsins og því fylgja enn meiri völd þegar sameiningin við Fjármálaeftirlitið gengur í gegn. Það er ekkert svigrúm fyrir óvönduð vinnubrögð. Hæfnismatið er ýmsum vankönt­ um háð. Það tekur ekki mið af því að störf nýs seðlabankastjóra verða eðlisólík störfum forvera hans. Sam­ eining tveggja stofnana, sem báðar eru þjóðhagslega mikilvægar, er risa­ vaxið verkefni og krefst víðtækrar stjórnunarreynslu. Hún krefst einn­ ig færni í mannlegum samskiptum en nefndin taldi ekki ástæðu til að rýna betur í þann hæfnisþátt. Allir umsækjendur komu vel fyrir, eins og nefndin orðaði það sjálf. Matið var svo óskiljanlegt að halda mætti að nefndarmenn hefðu verið undir þrýstingi að koma til­ teknum umsækjendum í síðustu lotuna og útiloka aðra. Þegar horft var til stjórnunarreynslu vó það að hafa verið stjórnarmaður hjá opinberri stofnun þyngra en fram­ kvæmdastjóri með mannaforráð. Og þó að stjórnarmennska hafi vegið þungt virðist nefndin hafa horft fram hjá stjórnarstörfum sumra umsækjenda. Önnur dæmi um þá vankanta sem há hæfnis­ matinu hafa verið rakin á síðum Fréttablaðsins. Christine Lagarde, framkvæmda­ stjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, var á dögunum tilnefnd sem banka­ stjóri Evrópska Seðlabankans. Hún er lögfræðingur að mennt og hefur líklega ekki þurft að smíða f lókin haglíkön á löngum starfsferli sínum. Lagarde hefur aftur á móti víðtæka reynslu af stjórnun og fjármála­ mörkuðum. Þetta skiptir leiðtoga Evrópusambandsins miklu máli og vonandi tekur forsætisráðherra í sama streng. Í Bandaríkjunum til­ nefnir forsetinn næsta seðlabanka­ stjóra sem er yfirheyrður af þing­ nefnd í beinni útsendingu og þarf síðan að hljóta blessun öldunga­ deildarinnar. Nú er ágætis tilefni til að staldra við og spyrja hvort nefndir eigi að skipa jafn stóran sess í ákvarðana­ töku íslenskrar stjórnsýslu og þær gera í dag. Hvað hefur áunnist? Við sjáum þessa þróun einnig í atvinnu­ lífinu þar sem skráð fyrirtæki hafa keppst um að koma á fót tilnefning­ arnefnd fyrir stjórnarkjör. Andlits­ lausar nefndir eru hins vegar engin ávísun á fagleg vinnubrögð. Það þarf í það minnsta að gera meiri kröfur þegar um er að ræða eitt valdamesta embætti landsins. Boltinn er núna hjá Katrínu Jakobs­ dóttur forsætisráðherra og trúverð­ ugleiki stjórnsýslunnar er í húfi. Óboðleg vinnubrögð 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 MARKAÐURINN 1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 5 -E 4 E 0 2 3 6 5 -E 3 A 4 2 3 6 5 -E 2 6 8 2 3 6 5 -E 1 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.