Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 38
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is VIÐ VITUM EKKI ALVEG HVAÐ SNEKKJU ROKK ER EN ÞETTA VAR NOTAÐ TIL ÞESS AÐ LÝSA TÓNLISTINNI OKKAR EFTIR MÚSÍKTILRAUNIR. Sími: 558 1100 Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 10 – 18 virka daga 11 – 17 laugardaga 13 – 17 sunnudaga 10 – 18 virka daga 11 – 16 laugardaga Ísafjörður Skeiði 1 ÚTSALAN SUMAR afsláttur60%Allt að LOKAVIKAN Stóll í áklæði 52.493 kr. 69.990 kr. Skemill í áklæði 11.243 kr. 14.990 kr. Stóll og skemill í áklæði 63.735 kr. 84.980 kr. Stóll í leðri 74.993 kr. 99.990 kr. Skemill í leðri 18.743 kr. 24.990 kr. Stóll og skemill í leðri 93.735 kr. 124.980 kr. AFSLÁTTUR 30% ALBA Hægindastóll með eða án skemils. Svart, ljósgrátt eða brúnt leður. Blátt, sinnepsgult, ljós- eða dökkgrátt áklæði. Þægilegur og stílhreinn hægindastóll á góðu verði. Litir í áklæði Litir í leðri www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN Job.is GLÆNÝ OG FERSK STÖRF Í HVERRI VIKU Þú finnur draumastarfið á Anna Ingibjörg, Stef-anía Helga og Eva Kolbrún eru rúmlega tvítugar, vinkonur af Seltjarnarnesinu sem hafa þekkst síðan þær voru með bleyju, eins og þær orða það. Þær stofnuðu hljómsveitina Kon- fekt seint á síðasta ári og skömmu eftir að þær byrjuðu að semja eigin tónlist ákváðu þær að taka þátt í Músíktilraunum. Með svo góðum árangri að þær enduðu í 2. sæti í vor, spiluðu á Secret Solstice, munu troða upp á Airwaves í haust og fyrsta lagið þeirra, Hvernig sem er, er komið á Spotify. „Við vorum mjög hissa þegar við náðum öðru sæti í Músíktilraun- um,“ segir Eva Kolbrún og bætir við að þær hafi ekki búist við því að komast í úrslit. „Þetta var í fyrsta sinn sem við spiluðum opinber- lega og síðan gekk þetta allt vonum framar og allt í einu vorum við á sviðinu í öðru sæti.“ Stelpurnar segja að strax í kjöl- farið hafi komið verkefni sem þær hafði ekki órað fyrir. „Það var ótrú- lega skemmtilegt að spila á Secret Solstcice. Á svona stóru flottu sviði með frábærum listamönnum.“ Ekki skyggði heldur á gleðina að þær líta upp til margra sem komu fram á hátíðinni. „Það er til dæmis draumur að spila á sama sviði og Black Eyed Peas, risastórt band sem á fjöldann allan af lögum sem maður kann utan að þar sem tónlist þeirra var vinsæl þegar við vorum að alast upp.“ Snekkju- og „indí“-bræðingur Tónlist Konfekts hefur verið lýst sem eins konar „indí-poppi“ eða „snekkjurokki“ þar sem grípandi stef og taktur grípa hlustendur. „Við vitum ekki alveg hvað snekkju-rokk er en þetta var notað til þess að lýsa tónlistinni okkar eftir Músíktil- raunir,“ segir Eva Kolbrún. „Sam- kvæmt Google er þetta mjúkt rokk sem spilað var á snekkjum kringum 1980. Okkur finnst gaman að orðinu og þar sem það getur reynst erfitt að skilgreina eigin tónlist höfum við notað þetta.“ Konfekt stendur á grunni gamall- ar og traustrar vináttu en stelpurnar hafa fylgst að frá blautu barnsbeini. „Við ólumst allar upp á hinu víð- fræga Seltjarnarnesi og vorum þar af leiðandi allar saman á leikskóla og síðan grunnskóla. „Stundum saman í bekk og stundum ekki,“ segir Eva Kolbrún. „Vorum líka allar saman í handbolta hjá Gróttu og þess má geta að þar eigum við líka 2. sæti. Á Íslandsmeistaramóti 6. f lokks kvenna árið 2009.“ Snemma beygist krókurinn Eva Kolbrún er trommuleikari hljómsveitarinnar en hún greip á sínum tíma í kjuðana vegna þess að ekki var pláss fyrir hana í harmonikunáminu sem freistaði hennar mest. Slagverk var annað val og þegar hún fór að spila á tromm- urnar varð ekki aftur snúið. Það má því segja að trommurnar hafi valið hana. Eva spilaði í tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi í ellefu ár þar sem hún spilaði fyrst með Stefaníu í lúðrasveit skólans. Anna Ingibjörg og Eva Kolbrún spiluðu síðan fyrst saman í hljómsveitinni Stelpur í stuði, þar sem Anna spilaði á gítar og söng. Stefanía byrjaði að spila á klarinett sem barn og kenndi sér sjálf á píanóið sem var á heimilinu. Síðar fékk hún gítar í jólagjöf, lærði á hann og er gítarleikari bandsins. Lítt gefnar fyrir dramað Stelpurnar segja Konfekt hafa orðið til þegar Eva og Stefanía voru farnar að sakna þess að spila saman. „Stefanía sneri sér þá að Önnu sem var byrjuð að semja alls konar lög á píanó í kjallaranum en hún er ein- mitt píanóleikari sveitarinnar.“ Þær segjast hafa byrjað með því að spila lög eftir aðra, ábreiður, en fljótt hafi orðið erfitt að sammælast um hvaða lög þær ættu að spila. „Þá fórum við að semja okkar eigin lög í staðinn,“ segir Eva Kolbrún. „Þegar við semjum lög kemur yfirleitt ein okkar með hugmynd sem við vinnum síðan úr saman. Textinn kemur oftast síðastur og þar á Anna stærstan hluta.“ Stelpurnar segja samstarfið hafa gengið vel hingað til og lítið sem ekkert um alvarlegan ágreining eins og oft vill verða í hljómsveitum náinna vina. „Við erum ekki alltaf sammála um allt en við þekkjum hver aðra svo vel að það verður ekk- ert stórmál. Svo erum við líka allar frekar tjillaðar týpur og ekki mikið fyrir dramað.“ toti@frettabladid.is Snekkjurokkaðar vinkonur á siglingu Æskuvinkonurnar Anna Ingibjörg, Stefanía Helga og Eva Kolbrún í hljómsveitinni Konfekt eru á hvínandi siglingu með sitt snekkju- rokk og nýjasta lagið þeirra, Hvernig sem fer, er komið á Spotify. Stefanía Helga, Anna Ingibjörg og Eva Kolbrún hafa í nógu að snúast, komnar með lag á Spotify og fram undan er Airwaves og fleiri spennandi molar í konfektkassa lífsins sem stendur þeim galopinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 5 -C 7 4 0 2 3 6 5 -C 6 0 4 2 3 6 5 -C 4 C 8 2 3 6 5 -C 3 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.