Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 10.07.2019, Blaðsíða 6
Það liggur beinast við að sá arður verði nýttur á sviði raforku- mála og beinlínis í þágu landsbyggðarinnar, þar sem allar virkjanir Landsvirkj- unar standa. Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurlandi Það er þarna þrjátíu kílómetra hámarks- hraði en fólk er að keyra á 60-70 kílómetra hraða. Ég er með barn hérna Elí n Agla Briem, þjóðmenn- ingarbóndi og hafnarstjóri Því miður gengur þetta oft aðeins hægar en maður myndi vilja en svoleiðis er það, en þetta verður að laga, Eva Sigurbjörns- dóttir, oddviti Árneshrepps. Erum með mikið úrval af allskonar bílaverkfærum á frábæru verði! ViAir 12V loftdælur í miklu úvali. Hleðslutæki 12V 6A 6T Búkkar 605mm Par Jeppatjakkur 2.25t 52cm. Omega Viðgerðarkollur 4.995 9.999 17.995 7.495 Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn SAMGÖNGUR „Það varð slys þarna í maí þegar það var keyrt á hvolp hérna af bíl sem keyrði mjög hratt og hraðaksturinn var ástæða slyss- ins,“ segir Elín Agla Briem, þjóð- menningarbóndi og hafnarstjóri í Norðurfirði. Hún lagði nýlega fyrir bréf til umræðu á hreppsnefndar- fundi í Árneshreppi, þar sem hún gagnrýndi ökuhraða á hafnar- og verslunarsvæðinu í Norðurfirði. „Það er þarna þrjátíu kílómetra hámarkshraði en fólk er að keyra á 60-70 kílómetra hraða. Ég er með barn hérna og það er hér fullt af börnum yfir sumartímann, þetta er bara mikil slysahætta svo ég benti sveitarstjórn- inni á þetta,“ segir Elín Agla. Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti Árneshrepps, segir að vel hafi verið tekið í erindi Elínar Öglu og bætir við að hún hafi sjálf gengið beint í málið. „Ég sendi Vegagerðinni bréf strax í kjölfarið á bréfinu frá Elínu Öglu og við erum komin með svör og viðbrögð frá Vegagerðinni varðandi þetta. Því miður gengur þetta oft aðeins hægar en maður myndi vilja en svoleiðis er það, en þetta verður að laga,“ segir Eva. „Það eru allir sammála um þetta, það er öllum umhugað um öryggi og það að koma í veg fyrir svona slysa- hættu,“ segir Elín Agla, en ekki hefur ríkt mikil samstaða á milli Elínar og Evu í tengslum við fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir á svæðinu. Svör Vegagerðarinnar verða kynnt á hreppsnefndarfundi í dag en sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins fengust jákvæð viðbrögð við erind- inu  og hyggst Vegagerðin senda fulltrúa á svæðið til þess að kanna aðstæður og bregðast við. „Þar til það gerist þurfum við sjálf að grípa til aðgerða. Ástandið á Djúpavík er Hætta af glæfraakstri ökuþóra í Norðurfirði Ökumenn keyra langt yfir hámarkshraða bæði í Norðurfirði og á Djúpavík. Móðir á svæðinu segir glæfraakstur mikla slysahættu fyrir börn þar um slóðir og að nauðsynlegt sé að bregðast við. Oddviti Árneshrepps gekk strax í málið. Elínu og Öglu greinir á um virkjanaáform í hreppnum, en eru samstíga í að útrýma slysahættunni sem af glæfraakstri hlýst. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Hringvegurinn breikkar Breikkun stendur yfir á hringvegi 1, á kaf lanum á milli Hveragerðis og Selfoss. Samkvæmt Vegagerðinni hefur verið góður gangur í framkvæmd- unum en inni í þeim er einnig breikkun Varmárbrúar. Hluti vegarins er lokaður en hjáleið var opnuð fyrir umferð í maí. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK svipað og hér, þar er líka keyrt allt of hratt. Í fyrra var talan þrjátíu máluð á götuna þar en það entist ekki lengi. Slíkt hið sama verður líklega gert hér,“ segir Eva. Aðspurð hvað líklegast væri til árangurs segir Eva að hraðahindran- ir bæði í Norðurfirði og á Djúpavík myndu hægja á umferð. „Það verður bara að laga þetta, við erum alveg heit fyrir því að þetta verði tekið í gegn. Það er ekki hægt að leika rúll- ettu með líf fólks hérna í kringum okkur.“ birnadrofn@frettabladid.is ORKUMÁL Stjórn Sambands sveitar- félaga á Suðurlandi vill að iðnaðar- ráðherra beiti sér fyrir því að raf- orkuverð í dreif býli og þéttbýli verði jafnað. „Frá því að skipulagsbreytingar voru gerðar á raforkukerfinu árið 2005 hafa fyrirtæki sem annast dreifingu á raforku í þéttbýli og dreif býli haft tvær mismunandi gjaldskrár, aðra fyrir dreifingu raforku í þéttbýli og hina fyrir dreifingu raforku í dreif býli. Þrátt fyrir niðurgreiðslu frá ríkinu, með svonefndu dreif býlisframlagi, er raforkuverð í dreif býli enn hærra en raforkuverð í þéttbýli,“ segir  í ályktun frá SASS. Nýta megi hluta af arði af rekstri Landsvirkjunar sem framlag til niðurgreiðslu raf- orkuverðs. „Bent er á að í gegnum tíðina hefur verið rætt um að þegar skuldir Landsvirkjunar hafi verið greiddar niður muni arður af henni nýtast í þágu landsmanna. Það liggur beinast við að sá arður verði nýttur á sviði raforkumála og beinlínis í þágu landsbyggðarinnar, þar sem allar virkjanir Landsvirkjunar standa,“ segir SASS. „Tímabært er að íbúar hinna dreifðu byggða sitji við sama borð og íbúar í þéttbýli hvað varðar raf- orkuverð og í raun hálfhjákátlegt að þeir sem búa næst uppsprettu raf- orkunnar, nærri virkjununum eða undir raflínum sem flytur orkuna á suðvesturhornið, skuli greiða hærra verð fyrir orkuna en þeir sem fjær búa.“ – gar Vilja að arðurinn frá Landsvirkjun niðurgreiði raforkuverð úti á landi VIÐSKIPTI Vegna vaxandi áhuga og fjölgunar kínverskra ferðamanna á Íslandi hefur Bláa lónið haft það að markmiði að reyna að vera með einn kínverskumælandi starfs- mann á hverri vakt. Fyrirtækið auglýsti nýverið eftir kínversku- mælandi starfsmanni í verslun fyrirtækisins í Grindavík og segir Helga Árnadóttir, framkvæmda- stjóri hjá Bláa lóninu, að það sé ekki nýtt af nálinni. „K ínverskum ferðamönnum hefur fjölgað mikið og þegar litið er til komu ferðamanna til lands- ins er það hópurinn sem ein mesta fjölgunin er enn hjá.  Við höfum viljað koma sem allra mest og best til móts við okkar gesti og það eru ekki margir í þessum hópi gesta sem tala ensku,“ segir Helga. Bláa lónið er eitt af f laggskipum ferðaþjónustunnar, nánast verið skyldustopp sívaxandi hóps ferða- manna á undanförnum árum og nam hagnaður félagsins í fyrra tæpum fjórum milljörðum. Ferða- menn greiddu í fyrra 8,6 milljarða króna í aðgangseyri að lóninu. – smj Ráða starfsfólk vegna fjölgunar gesta frá Kína Helga Árnadóttir. 1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 0 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 5 -D F F 0 2 3 6 5 -D E B 4 2 3 6 5 -D D 7 8 2 3 6 5 -D C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 9 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.