Fréttablaðið - 10.07.2019, Page 16
Hópur f járfesta og tveggja fyrrverandi s t j ó r n e n d a h j á WOW air vinnur um þessar mundir, í samfloti við írskan
fjárfestingarsjóð sem er í eigu dóttur
eins af stofnendum Ryanair, að
stofnun nýs íslensks lággjaldaflug-
félags á grunni WOW air. Hópurinn
hefur leitað til að minnsta kosti
tveggja hérlendra banka og óskað
eftir láni upp á 31 milljón evra, jafn-
virði tæplega fjögurra milljarða
króna, til þess að reka hið nýja flug-
félag, eftir því sem Markaðurinn
kemst næst.
Írski fjárfestingarsjóðurinn, sem
ber heitið Avianta Capital og er að
fullu í eigu Aislinn Whittley-Ryan
en er stýrt af eiginmanni hennar,
Simon, hefur skuldbundið sig til
þess að leggja nýstofnuðu félagi,
WAB air, til 40 milljónir dala, jafn-
virði rúmra fimm milljarða króna,
í nýtt hlutafé til þess að tryggja
grundvöll rekstrar félagsins til
þriggja ára.
Fjárfestahópurinn hyggst, fái
hann fyrirgreiðslu hjá íslenskum
banka, í kjölfarið nýta sér lánsféð
sem eigið fé til þess að slá lán hjá
svissneskum banka. Lánið frá
íslenska bankanum verði þá á læst-
um vörslureikningi í heilt ár.
Sem endurgjald fyrir fjárfesting-
una mun Avianta Capital eignast 75
prósenta hlut í hinu nýja flugfélagi á
móti 25 prósenta hlut félagsins Neo
en það er í eigu Arnars Más Magnús-
sonar, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra f lugrekstrarsviðs WOW air,
Sveins Inga Steinþórssonar, sem
stýrði hagdeild WOW air og sat í
framkvæmdastjórn f lugfélagsins,
Boga Guðmundssonar, lögmanns
hjá Atlantik Legal Serv ic es og stjórn-
arformanns BusTrav el, og Þórodds
Ara Þóroddssonar sem hefur starfað
sem ráðgjafi í f lugvélaviðskiptum í
Lundúnum.
Upplýst er um áform fjárfesta-
hópsins, sem var settur saman í
kjölfar gjaldþrots WOW air í lok
mars síðastliðins, í nýlegu minnis-
blaði, sem Markaðurinn hefur undir
höndum, þar sem lánsbeiðnin er
útlistuð.
Aislinn, eigandi Avianta Capital,
er dóttir Michaels Kell Ryan sem
kom að stofnun Ryanair á níunda
áratug síðustu aldar en írska lág-
gjaldaflugfélagið er nú eitt stærsta
sinnar tegundar í Evrópu.
Til ráðgjafar við Avianta Capi-
tal er, eftir því sem fram kemur í
minnisblaðinu, fjárfestingarfélagið
Irelandia Aviation sem hefur meðal
annars f járfest í lággjaldaf lug-
félögunum Ryanair, Tiger Airways
í Asíu, Allegiant Air í Bandaríkj-
unum og Viva Aeurobus í Mexíkó
en félaginu er stýrt af Declan Ryan,
frænda Aislinn og fyrrverandi for-
stjóra Ryanair.
Verði með sex vélar í rekstri
Áætlanir hópsins miða að því að
nýja lággjaldaf lugfélagið, sem ber
í minnisblaðinu heitið WAB air og
verður byggt upp á grunni WOW
air, hefji rekstur í haust og verði með
sex vélar í rekstri sínum fyrsta árið.
Er stefnt að því að f ljúga til fjórtán
áfangastaða í Evrópu og Ameríku
en áætlanirnar gera ráð fyrir að ein
milljón farþega verði flutt með félag-
inu á næsta ári og fimm hundruð
starfsmenn ráðnir til þess á næstu
tólf mánuðum. Þá verði velta félags-
ins jafnframt um tuttugu milljarðar
króna á næsta ári.
Er sérstaklega tekið fram í minn-
isblaðinu að undirbúningur fyrir
umsókn að flugrekstrarleyfi sé langt
á veg kominn.
„Félagið verður með áherslu á
lágan kostnað, samkeppnishæf verð,
afbragðsþjónustu og mikið fjör fyrir
sína starfsmenn og viðskiptavini,“
segir þar jafnframt.
Forstjóri hins nýja félags verður,
ef áformin ganga eftir, áðurnefnd-
ur Sveinn Ingi en Arnar Már mun
gegna starfi aðstoðarforstjóra og
framkvæmdastjóra f lugrekstrar.
Áður en Sveinn Ingi gekk til liðs við
WOW air snemma árs 2016 starfaði
hann í tæp tólf ár hjá Air Atlanta, þar
á meðal sem yfirmaður hagdeildar,
en Arnar Már hefur meðal annars
starfað sem flugstjóri hjá Ryanair.
Til viðbótar við Svein Inga og
Arnar Má mun John Bavister, sem
stýrir Avianta Capital með Simon
Whittley-Ryan, taka sæti í fram-
kvæmdastjórn nýja f lugfélagsins
sem fjármálastjóri, að kröfu írska
fjárfestingarsjóðsins.
Fréttablaðið greindi í byrjun apr-
ílmánaðar, skömmu eftir að WOW
air var tekið til gjaldþrotaskipta,
frá áformum stofnandans Skúla
Mogensen og nokkurra lykilstarfs-
manna f lugfélagsins, þar á meðal
Arnars Más og Sveins Inga, um að
endurvekja starfsemi félagsins en
hópurinn leitaði í því skyni fjár-
mögnunar upp á allt að fimm millj-
arða króna.
Áformin gengu sem kunnugt er
ekki eftir en upplýst er um það í
minnisblaðinu að fulltrúar hópsins
hafi meðal annars fundað með Avi-
anta Capital og kynnt fjárfestingar-
sjóðnum áætlanir sínar.
Í byrjun maímánaðar hófust síðan
viðræður á milli forsvarsmanna
sjóðsins og fyrrnefndra Íslendinga,
þeirra Arnars Más, Sveins Inga, Boga
og Þórodds Ara, með það að mark-
miði að endurreisa nýtt f lugfélag á
grundvelli WOW air, líkt og fjallað
er um í minnisblaðinu, en þar er
tíunduð nauðsyn þess að samkeppni
ríki í f lugrekstri til og frá Íslandi.
Samkomulag náðist loks um fjár-
festingu Avianta Capital í nýstofn-
uðu f lugfélagi, WAB air, þann
28. júní síðastliðinn en eins og áður
var minnst á hefur fjárfestingar-
Stofna nýtt flugfélag á grunni WOW
Tveir fyrrverandi stjórnendur hjá WOW air vinna að því að stofna nýtt flugfélag á grundvelli hins gjaldþrota félags. Írskur fjárfest-
ingarsjóður sem tengist Ryanair-fjölskyldunni tekur þátt í verkefninu. Óska eftir fjögurra milljarða láni frá íslenskum bönkum.
Hópur fjárfesta, þar á meðal tveir fyrrverandi stjórnendur hjá WOW air, hefur leitað liðsinnis íslenskra banka til þess að hefja rekstur nýs flugfélags á
haustmánuðum á grunni hins gjaldþrota félags. Hópurinn telur nauðsynlegt að samkeppni ríki í flugrekstri til og frá Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Viðriðinn félag sem rauf viðskiptabann við Íran
Einn þeirra Íslendinga sem koma
að stofnun nýja flugfélagsins
starfaði fyrir um áratug hjá
bresk-írönsku fyrirtæki sem var
dæmt til þess að greiða banda-
rískum yfirvöldum allt að sautján
milljóna dala sekt fyrir að brjóta
gegn viðskiptabanni Banda-
ríkjanna gagnvart Íran.
Maðurinn, Þóroddur Ari Þór-
oddsson, sem hefur um langt
skeið starfað í Lundúnum sem
ráðgjafi við fjármögnun og út-
leigu flugvéla, er einn fjögurra
Íslendinga sem munu fara með
samanlagt fjórðungshlut í hinu
nýju flugfélagi, ef áform þeirra
ganga eftir, en í minnisblaðinu
sem Markaðurinn hefur undir
höndum, er hann titlaður sem
„fagfjárfestir í flugrekstri“.
Þóroddur Ari gegndi í aldar-
byrjun, þá ríflega þrítugur að
aldri, starfi framkvæmdastjóra
Burnham International á Íslandi
en áður hafði hann starfað hjá GE
Capital Services í Lundúnum og
Amsterdam. Hann gekk síðan til
liðs við Montrose Global Capital,
dótturfélag Bank of America, um
miðjan síðasta áratug þar sem
hann sinnti einkum ráðgjöf í flug-
vélaviðskiptum.
Hjá Montrose átti hann meðal
annars í samskiptum við stjórn-
endur bresk-íranska félagsins
Balli Group og svo fór að hann
réðst að lokum til starfa hjá
félaginu.
Dótturfélagið Balli Aviation
komst í heimsfréttirnar árið
2010 þegar það viðurkenndi fyrir
bandarískum dómstólum að
hafa flutt ólöglega frá Banda-
ríkjunum til Írans sex Boeing 747
þotur í trássi við viðskiptabann
fyrrnefnda ríkisins gagnvart því
síðarnefnda. Var félaginu gert að
greiða samtals 17 milljónir dala,
jafnvirði 2,1 milljarðs króna á
núverandi gengi, í sekt. Þremur
árum síðar var móðurfélagið,
Balli Group, tekið til gjaldþrota-
skipta.
Þá hefur komið fram í breskum
fjölmiðlum að efnahagsbrota-
deild lögreglunnar þar í landi
rannsaki nú starfsemi Balli
Group og dótturfélaga þess en
sjö manns voru handteknir í
tengslum við rannsóknina árið
2017.
Sveinn Ingi
Steinþórsson,
fyrrverandi
forstöðumaður
hagdeildar WOW
air.
Bogi
Guðmundsson,
lögmaður hjá
Atlantik Legal
Services.
Simon
Whittley-Ryan,
einn stjórnenda
Avianta Capital.
5,1
milljarður króna er fjár-
hæðin sem Avianta Capital
hefur skuldbundið sig til
þess leggja hinu nýja flug-
félagi til.
500
er fjöldi starfsmanna sem
stefnt er að því að ráða til
hins nýja flugfélags á næstu
tólf mánuðum.Sem endurgjald fyrir
fjárfestinguna mun fjárfest-
ingasjóðurinn Avianta
Capital eignast 75 prósenta
hlut í hinu nýja flugfélagi á
móti 25 prósenta hlut
Íslendinganna fjögurra.
Hörður Ægisson
hordur@frettabladid.is
Kristinn Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
sjóðurinn skuldbundið sig til þess
að leggja f lugfélaginu til fjörutíu
milljónir dala gegn því að eignast
75 prósenta hlut í því. Á móti munu
Íslendingarnir fara með fjórðungs-
hlut.
Biðlað til bankanna
Fjárfestahópurinn hefur á undan-
förnum vikum biðlað til að minnsta
kosti tveggja banka, Arion banka og
Landsbankans, eftir því sem heim-
ildir Markaðarins herma, um að
lána Avianta Capital 31 milljón evra,
um 3,9 milljarða króna, til eins árs á
fimm prósenta vöxtum.
Samkvæmt gögnum sem blaðið
hefur undir höndum hyggst fjár-
festingarsjóðurinn í kjölfarið leita
til ónefnds svissnesks banka um að
veita sér lán – til þess að fjármagna
rekstur nýja flugfélagsins – út á láns-
féð frá íslenska bankanum.
1 0 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
1
0
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
5
-E
9
D
0
2
3
6
5
-E
8
9
4
2
3
6
5
-E
7
5
8
2
3
6
5
-E
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K