Ófeigur - 01.06.1944, Side 2

Ófeigur - 01.06.1944, Side 2
2 ÓFEIGUR fullkomna skipun heilbrigðismála og tryggingakerfi, sem getur náð til alls þorra af þegnum þjóðfélagsins. Engin þjóð nema fslendingar hefur lagt út á svo erfiða braut. En þjóðin hikar ekki. Hún veit, að for- feðurnir leystu þessa þraut við hæfi sinnar aldar fyrir þúsund árum. Nútímamenn á fslandi verða að geta kom- izt jafnfætis forfeðrunum. Samt verður því ekki neitað, að hin nýja leið er hættuleg, jafnframt því að hún er glæsileg. Ef þjóðin getur ekki komið á jafnvægi í at- vinnumálum og réttlátri skiptingu þjóðarteknanna, ef gjöldin til sameiginlegra þarfa yfirstíga getu skatt- borgaranna og ef einstakir menn í landinu, sem hafa orð fyrir flokkum eða stéttum, gerast af pólitískum ástæðum handbendi erlendra valdhafa, þá er hið endur- reista þjóðveldi í hættu. Þá getur íslenzka þjóðin brotið fjöregg sitt í annað sinn „milli tveggja siða“. Það má heita, að íslenzka þjóðin sé í mörgum efnum stödd á óvenjulegum vegamótum. Á einum mannsaldri hefur þjóðin hætt að vera dreifbýlisþjóð, sem bjó að handiðju, orðið þéttbýlisþjóð með véliðju. Þjóð, sem hafði í þúsund ár mótað öll störf andleg og atvinnuleg við sveitalíf, er nú skyndilega orðin bæjaþjóð án þess að kunna nema að litlu leyti að búa við hin nýju skilyrði. Áður var ísland talið afskekkt land, að mestu gleymt á ráðstefnum stórmenna heimsins. Skyndilega er Island komið á krossgötur, þar sem f jögur stórveldi geta hugs- að til að láta fara fram þýðingarmikinn þátt í barátt- unni um yfirráð heimsins. ísland hefur jafnvel komizt svo hátt á þessum vettvangi, að þýðingu þess fyrir heimsveldin er líkt við Gíbraltar, Malta eða Singapore. Þriðju Fróðárundrin snerta fjárhaginn. Um margar aldir hefur íslenzka þjóðin og aðrir, sem til þekktu, tal- að um fátæktina sem höfuðeinkenni og ævarandi erfð Islendinga.'En nú sem stendur er íslenzka þjóðin, við hlið Svía og Portúgalsmanna, ein meðal Evrópuþjóða svo á vegi stödd, að hún getur auðveldlega greitt þarfir sínar erlendis, án þess að þurfa að taka lán. Fjórða breytingin er flutningur hins æðsta valds ís- lenzkra mála frá fjarlægu landi á fornt höfuðból á Álftanesi. Fimmta einkennilega nýjungin, er snertir Island, eru hinar landfræðilegu athuganir frá síðustu árum sem hníga að því, að Island tilheyri Vestur- en ekki Norður-

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.