Ófeigur - 01.06.1944, Page 7
ÓFEIGUR
7
þetta mál næst á eftir vörn lýðveldisins verkefni þessa
tímarits, bæði af því að þar er um að ræða heppilegustu
lausnina á stærsta atvinnumáli landsins, auk þess sem
réttlát skipting atvinnuarðsins er eina ráðið til að
tryggja innanlandsfrið í landinu og þar með framtíð
þjóðveldisins. En hitt leiðir af sjálfu sér eftir starfsemi
minni á undangengnum árum, að ef hafinn verður undir-
róður í samvinnufélögum landsins í því skyni að sundra
þeim og ofsækja beztu menn þessa félagsskapar, þá
mun ég ekki telja rétt að láta þá starfsemi afskipta-
lausa. Framkoma kommúnista í kaupfélaginu í Reykja-
vík er augljóst dæmi um þessa hættu, og verður það
mál skýrt ýtarlega í þessu tímariti, auk þess sem lögð
verður áherzla á að hvetja Framsóknarflokkinn til að
vera ætíð minnugur uppruna síns og þess, að hann verð-
ur ekki langlífur í landinu, nema hann sýni samvinnu-
félögunum og hugsjónum þeirra jafnan fulla tryggð og
hollustu.
Þjóðin skiptist í tvær fylkingar um bjargráð sín.
Annar hópurinn vill hrun í fjármálum og eyðingu hins
vestræna þjóðskipulags. Hinn flokkurinn vill heilbrigða
þróun, beitir sér móti hruni, og vill vernda og full-
komna þingstjórnarskipulag vesturlanda. Kommúnist-
ar standa fyrir hruninu, en hafa fylgi í öllum borgara-
legu flokkunum. Það fylgi stafar ýmist af vanhyggju
eða fánýtum metorðavonum í sambandi við upplausn-
ina.
Ég hef verið í hópi þeirra, sem beita sér gegn upp-
lausninni í fjármálum og eyðileggingu þingstjórnar og
persónufrelsis hér á landi. Nokkur hluti samherja
minna í Framsóknarflokknum er mér andvígur í þessu
efni. En allur þorri samvinnumanna í landinu mun þó,
þegar til kemur, rísa gegn upplausn þeirri sem nú
steðjar að.
Vinnubragðamunur nokkur hefir verið og er milli mín