Ófeigur - 01.06.1944, Page 12
12
ÓFEIGUR
borgaralegra manna. Jens Figved hafði all blómlegt
kommúnistafélag. Hann bauð samfylkingu. E. J., G. M.
og V. J. réðu félagsbræðrum sínum til að reyna að tala
við kommúnista. Ráði þeirra var fylgt, og félögin sam-
einuð undir nafninu ,,KRON“. Figved og Vilmundur
réðu mestu í félaginu um nokkur ár. Var ýmislegt gott
um sumt í starfi Figveds, en að lokum kom gamla eðlið
upp í honum. Fór hann frá félaginu og stofnsettu þeir
Vilmundur Jónsson heildsölu saman. E. J. og G. M.
héldu áfram að styðja Kron og efla gengi þess á allan
hátt. Höfðatöluregla E. J. varð frægust vegna baráttu
Kron, sem efldist á þeim árum. En kommúnistar virða
einskis tryggð og blíðlyndi þessara manna. Á hverju
ári gera kommúnistar leynisamtök milli sinna fylgjenda
um að útiloka alla, sem ekki eru yfirlýstir byltingar-
menn, frá trúnaði í félaginu. Þeir hafa tvívegis fellt G.
M., sem fulltrúa á aðalfund heima fyrir. I vetur felldu
þeir E. J. líka. 1 stað þess kusu kommúnistar þýðingar-
lausa menn úr sínum flokki. Þannig starfa kommúnistar
í hverju félagi, og þó verst í mannfélaginu. En það er
erfitt að gefa blindum sýn.
Yfir landamœrin.
Snemma í þessum mánuði voru sama daginn merkis-
greinar í Mbl. og Tímanum. Mbl. heimtaði nýja ríkis-
stjórn, en gerði þá fortakslausu kröfu, að stjórnin hefði
alls enga stefnu um nokkurn skapaðan hlut. Tíminn
sagði að Gísli þingmaður Barðstrendinga segði í Mbl.
að kjósendur hans biðu eftir einhverri úrlausn á dýrtíð-
armálunum og fögnuðu þeirri sem kæmi.. Jafnframt
sagði Tíminn, að Hermann Jónasson hefði lýst yfir á
prenti, að nú lægi mest á, að finna nýtt hagkerfi. Þann-
ig biðu allir eftir dúfu frá himnum. Hún getur komið
með hagkerfið, vit handa stjórn, sem fæddist án vits
og einhverja lausn handa hinum bjartsýnu kjósendum
Gísla Jónssonar. Verst ef dúfan villtist á dúfnahúsum.
# # #
I einu stjórnmálablaði voru mér nýlega gerðar upp
hugsanir og búin til fyrir mig ræða. Þetta mun eiga að