Bæjarblaðið - 15.09.1979, Síða 4
„Fögnuðu eins og heimsmeistarar"
eftir 0-7 tap gegn IA — Viðtal við Halldór Fr. Jónsson.
„Dýrasti og besti þjálfarinn á að vera með þá yngstu", sagði Halldór
Fr. Jónsson, og gerði orð Hilperts þjálfara meistaraflokks að sínum,
í viðtali við Bæjarblaðið nú á dögunum. Hilpert lét þessi orð falla
á fundi, sem hann hélt með þjálturum yngri flokkanna.
Halldór Jónsson (Flestir þekkja hann sem Dóra, er nær kyndingar-
kostnaðinum niður) hefur á undanförum árum lagt manna mest á
sig, að öðrum ólöstuðum, við að byggja upp sterka yngri flokka í
knattspyrnu. Þegar við fórum á stúfana til að afla frétta af málefnum
yngstu knattspyrnumannanna, sem nýlega hafa lokið keppnistíma-
bilinu, snérum við okkur til Dóra, en hann er þjálfari 5. flokks, aðstoð-
arþjálfari 4. flokks og meðlimur í unglingaráði Knattspyrnuráðs.
Halldór, hverjir eru í Unglinga-
ráði K.R.A.?
— Hörður Helgason er formaður
og auk mín eru þar: Kristján
Baldursson, Einar Guðleifsson og
Ólafur Theódórsson. Með ráðinu
starfa svo tveir menn úr Knatt-
spyrnuráði, sem eru tengiliðir á
milli þessara aðila, en það eru
þeir Sigþór Eiríksson og Ásgeir
Kristjánsson.
Hvað hefur þú verið lengi í
unglingastarfinu ?
— Þetta er mitt fjórða sumar, og
nú seinni árin hef ég einnig ver-
ið að þjálfa.
Telur þú viðhorf knattspyrnu-
forystunnar til málefna yngri
flokkanna vera betri nú, en þeg-
ar þú byrjaðir?
— Það er ekki hægt að neita
því að viðhorfin hafa batnað all
verulega, þó ýmislegt vanti enn
á til að þeim yngri sé gefinn
jafn mikill gaumur og þeim eldri.
Hverjir eru helstu agnúarnir?
— Það er kannske helst það, að
Unglingaráð er undirráð Knatt-
spyrnuráðs og sækir alla pen-
inga þar inn. Við þetta skapast
ýmis vandamál. Við getum tek-
ið sem dæmi að einhver hlutur
sem hefur útgjöld í för með sér
er samþykktur í Unglingaráði.
Þá þarf að bera hann undir Knatt-
spyrnuráð, og ef þeir samþykkja
ekki, fer það aftur í Unglingaráð
og við verðum að reyna að leysa
málið. Þetta er alltof þungt í
vöfum og tekur of langan tíma.
Nú hafa oft heyrst óánægju-
raddir meðal þjálfara og foreldra
vegna þess að strákarnir eru
látnir borga ef þeir fara í æfinga-
leiki. Hver er þín skoðun á
þessu?
— Við höfum oft viljað miða
okkur við meistaraflokk, þó svo
að við fáum ekki allt sem hann
hefur, þá hefur okkur fundist
sanngjarnt að greidduryrði ferða-
kostnaður fyrir strákana í æf-
ingaleiki. Oft eru margir drengir
frá sama heimilinu og er því
dýrt fyrir þau að kosta drengina
í leiki.
Ef við snúum okkur meir að
drengjunum. Hvernig er æfinga-
sókn?
— Hún er mjög góð. í 5. flokki
hefur meðaltalið á æfingum inni
verið 46 strákar og á útiæfingum
36. í 4. flokki hafa 20-26 æft úti
og um 30 inni. Ég vil skjóta því
að hér, að yngri flokkarnir í
knattspyrnu eru með langbestu
tímanýtinguna í íþróttahúsinu og
hefur æfingasókn á einni æfingu
komist í 70 drengi, það var í 6.
flokki.
Er ekki útilokað fyrir einn
mann að stjórna svo stórum hóp?
— Jú, við höfum verið tveir.
Mér til aðstoðar við þjálfun 5.
flokks var Sævar Guðjónsson og
ég aðstoðaði hann við 4. flokk.
Það þurfa í það minnsta að vera
tveir þjálfarar svo eitthvert vit
sé í æfingunum.
Hvernig hafa samskiptin við
foreldra verið?
— Það vantar meiri skilning
einstaka foreldra. Það er t.d.
mjög slæmt að missa bestu
strákana í frí þegar áríðandi leik-
ir eru. Við höfum því óskað eftir
við foreldra að þeir skipuleggi
ferðalög með tilliti til þessa.
í úrslitakeppninni misstum við
t.d. út mjög góðan strák vegna
þess að hann fór í ferðalag.
Ert þú ánægður með árangur-
inn?
— Já, strákarnir hafa staðið sig
frábærlega vel, og eingöngu
óheppni varð þess valdandi að
þeir urðu ekki efstir. 5. og 4.
flokkur lentu í 3. sæti íslands-
mótsins og voru óheppnir að
komast ekki í úrslit og tel ég að
framkvæmd úrslitakeppninnar
hafi valdið því. Ég vil geta þess
að 3. flokkur stóð sig einnig
vel, en þjálfari þar er Steinn
Helgason.
Þú segir að framkvæmd keppn-
innar í Fteykjavík og á Akureyri
hafi verið ábótavant og jafnvel
valdið því að ÍA varð ekki Ís-
landsmeistari. Hvað var helst að?
— í Reykjavík, þar sem 5. flokk-
ur keppti voru ekki línuverðir,
sem þó er skylda í úrslitakeppni
og kostaði það okkur mark og
sigur á ÍR, en boltinn fór vel
inn fyrir línu og sáu það allir á
vellinum, nema dómarinn, sem
var ekki í góðri aðstöðu. Á Ak-
ureyri, þar sem 4. flokkur keppti,
fór okkar riðill í úrslitakeppn-
inni fram á tveim völlum, þ.e.
á aðalvellinum og Menntaskóla-
vellinum, sem er mun lakari.
Okkar aðalkeppinautur, Víkingur
frá Reykjavík, lék t.d. við Sindra
frá Hornafirði á aðalvellinum,
sem er stór og breiður, en við
lékum við þá á Menntaskóla-
vellinum, sem er mun mjórri.
Við þurftum að vinna með 8
marka mun til að eiga mögu-
leika á að komast í úrslit. Það
vakti athygli okkar, að á móti
Víking léku þeir sóknarleik, en á
móti okkur með alla í vörn og
kom það þá illa niður á okkur
hvað völlurinn var mjór. Þegar
þeir höfðu tapað með sjö marka
mun fyrir okkur, vakti það athygli
að þeir fögnuðu ein og heims-
meistarar.
Telur þú að miklar framfarir
hafi orðið hjá yngri flokkunum
nú siðustu árin?
— Já, ég tel að miklar fram-
farir hafi orðið undanfarin ár.
Ég get nefnt sem dæmi að fyrir
fjórum árum töpuðum við flest-
um leikjum í bæjarkeppninni við
UBK með stórum tölum, en nú
í haust unnum við 5-0 í 6. flokki,
3-1 í 5. flokki og gerðum jafn-
tefii 2-2 í 4. flokki. Þetta stefnir
því allt í rétta átt.
Er unglingaknattspyrnu gefinn
nægur gaumur?
— Á því hefur orðið breyting í
rétta átt. Margir koma nú að
horfa á yngri flokkana. Stærsta
þáttinn í auknum vinsældum á
unglingaknattspyrnu á þessu ári
tel ég þó Dagblaðið eiga, með
stórgóðum þætti um unglinga-
knattspyrnu. Ég vil þakka Dag-
blaðinu fyrir þessa þætti og
vænti framhalds á þeim, þeir
munu verða unglingaknattspyrnu
til góðs.
Að lokum Halldór, Ætlar þú
að gefa kost á þér í Unglingaráð
næsta ár?
— Já, ég hef fullan hug á því, ef
til mín verður leitað, og hægt
verður að nýta starfskrafta mína.
Við þökkum Halldóri, og von-
um að unglingaknattspyrna á
Akranesi megi njóta starfskrafta
hans sem lengst.
4. flokkur ÍA 1979
Neðri röð f.v.: Ólafur Gíslason, Jakob Halldórsson, Guðmundur Guð-
mundsson, Bjarni Jónsson, Vilhjálmur Birgisson, Rúnar Sigríksson,
Guðmundur Matthíasson, Ólafur Þórðarson og Hafliði Guðjónsson.
Efri röð f.v.: Halldór Jónsson, aðst. þj., Jón Leó Ríkharðsson, Egill
Eiríksson, Heimir Björgvinsson, Aðalsteinn Víglundsson, Sigurður
B. Jónsson, Þráinn Þórarinsson, Valgeir Bárðarson, Sigurður Jónsson
og Sævar Guðjónsson þjálfari.
5. flokkur ÍA 1979
Neðri röð f.v.: Einar Gíslason, Magnús Kristjánsson, Ingimar Erlings-
son, Skúli Guðmundsson Bjarki Jóhannesson, Ingólfur Helgason,
Stefán Viðarsson, Birgir Össurarson.
Efri röð f.v.: Halldór Jónsson þjálfari, Einar Sveinn Guðmundsson,
Alexander Högnason, Arnar Svansson, Valdimar Sigurðsson, Árni
Hallgrímsson, Hákon Svavarsson, Jóhannes Guðlaugsson og Sigurð-
ur Arnar Sigurðsson.
4