Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 11

Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 11
HUSALEIGUSAMNINGAR frh. af bls. 7 húsaleigunefndir. Einnig er í lög- unum réttarstaða hjóna og sam- búðarfólks gerð sú sama, en með sambúðarfólki er átt við karl og konu, sem búa saman og eru bæði ógift, ef þau hafa átt barn saman, konan er þunguð eða sambúðin hefur varað samfleytt í eitt ár. Lögin um húsaleigusamninga öðluðust gildi í júní s.l. og ættu því allir þeir, sem slíka samninga þurfa að gera, að notast við samningsform Félagsmálaráðu- neytisins, sem liggja frammi á bæjarskrifstofunni, eins og áður er sagt. Leigusamningar, sem gerðir hafa verið fyrir gildis- töku laganna, skulu þó halda gildi sínu uns þeir renna út, þó eigi lengur en til 1. janúar 1980. Frá þeim tíma taka lögin einnig til þeirra. Skulu aðilar leigu- samninga, sem gerðir hafa verið fyrir gildistöku laganna gera skriflega leigumála skv. lögunum fyrir 1. janúar 1980. Sé slíkur samningur ekki gerður fyrir þann tíma gilda hins vegar lögin alfar- ið um réttarsamband aðilanna. Brýnt er því fyrir fólk, jafnt leigu- sala sem leigutaka, að huga nú þegar að leigumálum sínum, þannig að nýir samningar verði komnir á fyrir næstu áramót. Að lokum er rétt að geta þess, að brot gegn fyrstu 12 köflum laganna (þeim atriðum sem hér hafa aðallega verið gerð að úm- talsefni) varða sektum nema þyngri refsing liggi við sam- kvæmt öðrum lögum. AKRANESKAUPSTAÐUR Lögtoksúrskurður Hér með úrskurðast lögtak fyrir áfölln- um, en vangoldnum útsvörum, aðstöðu- gjöldum og fasteignagjöldum til Bæjar- sjóðs Akraness, og hafnargjöldum til Hafnarsjóðs Akraness fyrir árið 1979 og eldri, og fyrir lögboðnum dráttarvöxtum og kostnaði. Lögtök mega fara fram að 8 dögum liðnum frá birtingu þessa úrskurðar. Akranesi, 28/8. 1979, Bæjarfógetinn á Akranesi, Björgvin Bjarnason. Innheimtustjóri Akraneskaupstaðar. Höfum fyrirliggjandi frystikistur og kæli- skápa. Philco þvottavélar og þurrkara. Luma og Finlux sjónvarpstæki. Athugið! Greiðsluskilmálar. Kaupfélagið Iðnnám Getum tekið nema í vélvirkjun (4 ár) og i rafsuðu (2 ár) Þorgeir & Eiiert hf. Akurnesingar Vorum að fá mikið úrval af hinum þekiktu Starfsmaður óskast til tímamælinga. Upplýsingar á skrifstofunni. Þorgeir & Ellert hf. CURVER plastáhöldum til heimilisnotkunar. Bárugötu 21 — Sími 1743 11

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.