Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 12

Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 12
Rœjorblodid 1. tbl 15. september 1979 1. árg. Húsbyggjendur óánægðir í sumar barst bæjarstjórn Akraness bréf frá nokkrum húsbyggj- endum, er lýstu óánægju sinni með að fasteignagjöld voru lögð á byggingar þeirra, er væru í óíbúðarhæfu ástandi. Gjaldið var lagt á samkvæmt heimild í lögum. Þó að öll lög landsins eigi að vera sanngjörn eru til tilfelli, sem almenningur álítur ósanngjörn. Það hlýtur að tejast ósanngjarnt að greiða fasteignagjöld af tveimur húsum, þar sem annað er óíbúðarhæft, eða þurfa að greiða háa leigu af leiguhúsnæði, vegna þess að bygging er óíbúðarhæf, en samt skattlögð að fullu. Bæjarstjórn tók vel í erindi húsbyggjend- anna og vísaði málinu aftur í bæjarráð, en því miður er líklegt að þar sofni það svefninum langa. Góð reynsla af nætursölunni Sú nýjung í þjónustu við bæjarbúa var tekin upp eftir áramót að opnuð var nætursala á föstudags- og laugardagskvöldum til kl. 3 að nóttu í söluskálanum Björg við Þjóðbraut. Þessi þjónusta hefur mælst vel fyrir, eins og segir í greinargerð bæjarstjóra vegna beiðni um framlengingu á leyfi til nætursölunnar. Nætursalan var rekin til reynslu í 6 mánuði og allan þann tíma var hún mikið notuð og sýndi að slík þjónusta hefði mátt koma mun fyrr. íbúar í nágrenni sölu- skálans telja sig ekki verða fyrir ónæði vegna nætursölunar, enda leggjast allir á eitt um að hún megi fara vel fram. Við væntum þess að þetta verði fastur liður í þjónustu við bæjarbúa. Verður ráðinn æskulýðsfulltrúi? Á fundi í æskulýðsnefnd þann 20. júní sl. var samþykkt að fara fram á við bæjarstjórn að ráðinn yrði æskulýðsfulltrúi, er sjá myndi um rekstur æskulýðsheimilis. Hinn 1. ágúst sl. hætti Guðný Jóns- dóttir, formaður nefndarinnar, störfum í nefndinni. í stað hennar var Ellert Ingvarsson skipaður í nefndina. Hasar í bæjarstjórn Bæjarstjórnarfundir geta oft orðið fjörugir. Eftir einn slíkan, skeði það að Daníel Ágústínusson, bæjarfulltrúi kærði Valdimar Indriða- son, forseta bæjarstjórnar, til Félagsmálaráðuneytisins fyrir brot á fundarsköpum. Taldi hann að Valdimar hefði misnotað vald sitt í forsetastól er hann neitaði Daníel um að bóka athugasemd vegna bókunar Ríkharðar Jónsson, bæjarfulltrúa, um málningarútboðin forðum daga. Rafmagnshækkun Nýlega hækkaði gjaldskrá Rafveitu Akraness, sem hér segir: Hitataxtar 10% hækkun. Aðrir gjaldskrárliðir um 20%. Meðaltals- hækkun er 17,8%. Nýr aðstoðarskólameistari í haust lét Jón Hjartarson af störfum sem aðstoðarskólameistari við Fjölbrautaskólann, en hann hefur verið ráðinn skólameistari á Sauðárkróki. Heyrst hefur að töluverður ágreiningur hafi verið í skólanefnd um eina umsækjandann um stöðuna, Engilbert Guð- mundsson, kennara og bæjarfulltrúa. Helstu vankantarnir voru víst þeir að hann er Alþýðubandalagsmaður og talinn stefna til æðri metorða í pólitík. Skólanefnd mun nú hafa samþykkt að ráða Engil- bert, en enn vantar staðfestingu Menntamálaráðuneytisins. Skólastjóri Tónlistarskólans Jón Karl Einarsson, sem áður var tónmenntakennari við Barna- skólann, hefur verið ráðinn skólastjóri Tónlistarskólans. Þórir Þóris- son, sem lætur af skólastjórn, hefur verið ráðinn deildarstjóri tón- menntabrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Umsóknir um starf hjá Rafveitunni Óðinn S. Geirdal sagði starfi sínu hjá Rafveitu Akraness lausu frá 31. ágúst sl. Óðinn hefur starfað hjá Rafveitunni í 30 ár. Umsóknir um starf Óðins bárust frá tveim aðilum, Alfreð Björns- syni, Brekkubraut 19 og Sigþóri Eiríkssyni, Vesturgötu 90. Sam- þykkt var að ráða Alfreð í starfið. Ráðinn bryggjuvörður Á bæjarstjórnarfundi 29. júní var Björn Ágústsson ráðinn í starf bryggjuvarðar. Eftirtaldir aðilar sóttu um starfið: Björn Ágústsson, Högni Reynisson og Steinar Hagalínsson. Hafnarnefnd mælti með ráðningu Björns. Eitt af því sem bæjaryfirvöld brýna gjarnan fyrir þegnum sínum, er góð umgengni og snyrtimennska á lóðum einstaklinga. En hvernig lítur svo út á einu aðalathafnasvæði bæjarins við Ægisbraut. Myndin hér að ofan er af því svæði. Bæjarblaðið lætur síðan lesendum sínum eftir að dæma, en vill um leið benda Fegrunarnefnd bæjarins á að skoða þetta. FORELDRAFELAG Á síðastliðnum vetri unnu nokkrir foreldrar og kennari bekkjardeildar einnar við barna- skólann að stofnun foreldra- félags. Boðuðu þeir til fundar í vor í Rein. Á fundinn komu þrír gestir úr stjórn foreldra- og kenn- arafélags Æfingaskólans í Reykjavík og kynntu starfsemi og markmið foreldrafélaga. Þá voru samþykkt drög að lögum fyrir félagið. Fundur þessi var fjölsóttur og kom fram mikill áhugi fyrir mál- efni þessu. Markmið félagsins er að auka tengsl heimila og skóla og stuðla að betri aðbúnaði í skólunum. Á fundinum var kosin nefnd sem á að vinna að stofnun félagsins í haust. Hefur hún starfað að undirbúningi og áformar að á fyrsta ári verði sérstaklega lögð áhersla á aukin tengsl nemenda, kennara og foreldra í hverjum árgangi fyrir sig. Einnig mun verða unnið að kynningar- og fræðslustarfi á einstökum þátt- um skólastarfsins. SOLARHRÍNGSVAKT Undanfarin ár hefur verið háð barátta fyrir því að fá sólarhringsvakt á lögreglu- stöðina, og er það mikið ör- yggismál fyrir bæjarbúa. Dómsmálaráðuneytið og bæj- arstjórn hafa nú gert með sér samkomulag um sólarhrings- vakt frá 1. júlí 1979. í sam- komulagi þessu kemur m.a. fram, að lögreglan skuli ann- ast sjúkraflutninga fyrst um sinn, einnig mun lögreglan annast áfram útköil slökkvi- Iiðsins. Með þessu samkomu- Iagi munu útköll slökkviliðs- ins, sem verið hafa verulegt vandamál, væntanlega komast í gott horf. Með sólarhrings- vaktinni lokast nú, sem betur fer, möguleiki þeirra er stund- að hafa hnupl og beðið eftir því að lögreglan hætti eftir- litsferðum og færi heim að sofa, svo þeir gætu stundað iðju sína óáreittir. BARINN OPNAR AFTUR Á fundi bæjarstjórnar þann 11. september sl„ var samþykkt að veita Hótel Akranesi vínveit- ingaleyfi á ný. Meðmæltir veitingu leyfisins voru: Valdimar Indriðason og Guðjón Guðmundsson (S), Ólaf- ur Guðbrandsson (F), Jóhann Ár- sælsson og Engilbert Guðmunds- son (Abl.). Á móti voru: Hörður Pálsson (S), Ríkharður Jónsson og Sigurjón Hannesson (A). Einn sat hjá: Daníel Ágústínusson (F). Eins og Akurnesingum er ef- laust kunnugt um hafa að undan- förnu verið gerðar miklar breyt- ingar á sal hótelsins. í framhaldi af þessum breytingum verða nú einnig breytingar á rekstrinum. Til dæmis verður nú framreiddur matur á laugardagskvöldum á milli kl. 19 og 22. Matargestum er síðan tryggt borð á dansleik um kvöldið.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.