Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 9

Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 9
HAGSMUNAMÁL BÆJARFULLTRUA? Árið 1976, nánar tiltekið 2. júlí, flutti Ríkharður Jónsson bæjarfulItrúi eftirfarandi tillögu á bæjarstjórnarfundi: „Legg til að fasteignaskattur af félags- heimilum verði lagður niður“. Tillagan var samþykkt með 6 atkvæðum gegn 2. Samþykkir voru: Ríkharður Jónsson og Guð- mundur Vésteinsson (A), Ólafur Guðbrandsson (F), Hörður Páls- son, Valdimar Indriðason og Inga Jóna Pórðardóttir (S). At- kvæði gegn tillögunni greiddu: Jóhann Ársælsson (Alþbl.) og Daníel Ágústínusson (F). Einn sat hjá: Jósef H. Porgeirsson (S). í Umbroti 5 nóvember 1976 gerir Jóhann Ársælsson bæjar- fulltrúi þessa samþykkt að um- ræðuefni í lesendabréfi. Hann skrifar m.a.: „Pað hefur komið í Ijós að samþykkjendur tillögunn- ar meina að framvegis skuli félagsheimili hér í bæ ekki greiða fasteignaskatta og að áfallnir skattar þessa árs, ásamt skuldum frá fyrri árum (félögin voru misjafnlega trassasöm, inn- sk. gr.h.) falli niður. Pessi höfð- inglega gjöf eða styrkur til þess- ara 6 félagsheimila er samtals upp á kr. 1.096.624.-“ Árið 1977 var gerð tilraun til að breyta þessari ákvörðun bæj- arstjórnar, er Daníel Ágústínus- son bæjarfulltrúi flutti tillögu þar að iútandi, en hún var felld með eins atkvæðis mun. Þessi samþykkt er enn í fullu gildi og er gjöf þessi eða styrk- ur kominn í kr. 3.700.000-. Upp- hæðin er misjöfn á félagsheimil- in, en í grófum dráttum sem hér segir: Frímúrarar kr. 1.600.000- Oddfellowar 1.110.000- Sjálfstæðishús 295.000- Röst, Alþýðufl. 265.000- Rein, Sósíalistar 215.000- Framsókn 185.000- Þar sem þessi samþykkt brýt- ur reglur og lög um fasteigna- skatta og gengur þvert á úrskurð Hæstaréttar í máli Frímúrara- reglunnar í Reykjavík, er það SLIMUR FRÁGANGUR BÆJARINS Síðastliðið sumar var unnið að framkvæmdum við Háholt og Brekkubraut vegna væntanlegrar lagningar slitlags á Háholt, og framkvæmda við hitaveitu. Vegna viðskilnaðar bæjarins við þessar framkvæmdir hefur bæjarstjórn borist bréf frá 3 íbúðareigendum, þar sem þeir fara fram á, að þær skemmdir er hafa orðið á girðingum og lóðum vegna sprenginga og jarð- rasks við hitaveitu- og gatna- gerðarframkvæmdir á sl. ári verði lagfærðar. Lítið virðist hafa skeð í þessu máli enn, eins og augljóst er á annars mjög smekklegri lóð Björns Péturssonar við Háholt, þar blasir við vegfarendum við- skilnaður bæjarins í algerri and- stöðu við þá vinnu er eigendur lóðarinnar hafa lagt í, til fegr- unar bæjarins. Fyrir þessum við- skilnaði bæjarins eru eflaust til einhverjar ástæður til málsbóta, en það breytir ekki því, að bær- inn á að lagfæra eftir sig á sama hátt og hann ætlast til af bæjar- búum. Hér er gott verkefni fyr- ir fegrunarnefnd að reka á eftir. furðulegt að meirihluti bæjar- fulltrúa skuli láta eigin hagsmuni víkja fyrir hagsmunum heildar- innar. í reglugerðinni um fast- eignaskatta segir, að félagsheim- ili er standi almenningi opin án tillits til stjórnmálaskoðanna skuli undanþegin fasteignaskatti. Ofangreind félagsheimili falla ekki undir þessa grein og áttu því lögum samkvæmt að greiða skattinn. Ein af aðalröksemdunum með samþykkt þessarar tillögu var, að sumir þessara lokuðu klúbba gæfu það mikið til bæjarfélags- ins (t.d. gjafir til sjúkrahúss) að það væri ekki mikið þó bæjar- félagð rukkaði ekki fasteigna- gjöld af félagsheimilum þeirra. En hvers eiga þá klúbbarnir sem ekkert hús eiga (Rotary, Kiwan- is, Lion), og gefa stórgjafir til líknarmála, að gjalda. Pað væri mikð hreinlegra, ef bæjarfulltrúar telja nauðsynlegt að styrkja þessa aðila, að bæta þeim við styrkjaskrána um Ieið og fjárhagsáætlun er gerð, og reyna þá að dreifa henni á fleiri félög og um leið að jafna styrkina. Athygli vekur að eitt þessara félagsheimila er rekið sem gróðafyrirtæki yfir vetrartímann (Rein) og ætti því ekki að vera í.erfiðleikum með greiðslu fast- eignaskatts. Pessi grein er skrifuð til að minna á þetta furðulega mál og hvetja um leið þá bæjarfulltrúa er á móti voru að halda uppi til- löguflutningi. — A.O. Verður áfenglsutsala opnuð á Akranesi? Síðustu misseri, þegar einn algengasti heimilisíðnaðurinn (bruggun) hefur aldrei blómstr- að betur, hefur umræða um opn- un áfengisútsölu á Akranesi auk- ist að mun. Hvað valdið hefur þessari auknu umræðu nú, er erfitt að geta sér til um, en trú- lega hafa tvö atriði átt töluverðan þátt þar í, þ.e. fréttir frá Sauð- árkróki og Selfossi og umræða í Atvinnumálanefnd Akraness. Á Sauðárkróki var útsalan felld í atkvæðagreiðslu með fjögurra atkvæða mun. Á Selfossi stendur nú yfir undirskriftasöfnun þar sem stefnt er að því að fá þriðj- ung kosningabærra manna til að mæla með opnun áfengisútsölu. Aðaltilefni þessarar greinar er fundur í Atvinnumálanefnd Akra- ness þann 5 mars 1979, þar sem rætt var um útlitið í verslunar- rekstri á Akranesi meðal annars. Par lýsti þáverandi formaður Kaupmannafélags Akraness Aðal- steinn Aðalsteinsson þeirri skoð- un sinni að verslun á Akranesi mundi aukast verulega, svo og straumur fólks til staðarins ef opnuð yrði áfengisútsala á Akra- nesi. Aðalsteinn kvaðst þó vita að um þetta væru skiptar skoð- anir, en þetta væri þó sín sann- færing. Einn nefndarmanna, Árni Ingólfsson, lýsti því yfir, að bærinn fengi stórkostlega víta- mínsprautu fjárhagslega og versl- unarlega, ef til kæmi áfengisút- sala. Við umræðu í nefndinni kom fram að fjórir nefndarmenn (Árni Ingólfsson, Erlingur Giss- urrarson, Friðrik Jónsson og Jón Sveinsson) voru meðmæltir, einn (Bjarnfríður Leósdóttir) á móti. Með svo eindreginni afstöðu Atvinnumálanefndar má búast við að þeir sem meðmæltir eru áfengisútsölu, hugsi sér til hreyf- ings og kanni hug bæjarbúa. Hvort það leiðir til opnunar áfengisútsölu og að niður leggist sú þjónusta, sem Á.T.V.R. og Póstur og sími veita með dýrum póstkröfusendingum, er ekki gott að segja, en þessi þjónusta Pósts og síma er ekkert annað en dul- búin áfengisútsala með góðum ágóða fyrir umrætt ríkisfyrirtæki. Helsta breytingin við opnun útsölu hér yrði að tekjurnar rynnu til Akranesbæjar en ekki Eins og glögglega sést á mynd- inni, þá er rekin áfengisútsala á Siglufirði. Reykjavíkur, og væri þá til dæm- is hægt að nota þær í fyrirbyggj- andi aðgerðir gegn ofnotkun áfengis hér í bæ. Trúlega hafa bindindismenn einhverjar athugasemdir við álit Atvinnumálanefndar og verður blaðið opið fyrir umræðu um þetta mál eins og öll önnur mál. Aflafréttir Afli Akranestogara frá áramót- um og fram til 10. september, er sem hér segir: Haraldur Böðvarss. 3519 lestir Krossvík 2208 lestir Óskar Magnússon 2988 lestir Pess ber að gæta að Krossvík var frá veiðum í um tvo mánuði vegna bilunar á spili. Samkvæmt upplýsingum frá hafnarvoginni hefur 4536 lestum af loðnu verið landað Akranesi, frá því í byrjun ágúst og fram til 10. september. 9

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.