Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 10
PÚLITISKAR
RÁÐNINGÁR?
tek þetta bréf yðar (bréf frá
félagsmálastjóra innsk. bb.) finn
ég að ég hefi ekki gert neitt um
ævina sem ég skammast mín
eins mikið fyrir eins og að
sækja um ofangreint starf, eftir
þá meðferð sem umsókn mín
fékk vegna pólitískrar ráðningar
sem var framkvæmd fyrir eða
strax eftir að auglýsing ykkar var
sett í Umbrot".
Hér er um alvarlega ásökun
að ræða, sem bæjaryfirvöld fá
rými til að svara í næsta tbl.
Bæjarblaðsins, ef þau telja
ástæðu til.
Ráðningar í stöður verða oft
hitamál, hvort sem er hjá bæjar-
félagi eða ríki. Pað mikið getur
greint á, að það geti valdið
meirihlutaslitum eins og að var
látið liggja um síðasta vinstri
meirihluta í bæjarstjórn. Nýlega
kom fyrir bæjarstjórn bréf varð-
andi ráðningu í stöðu hjá bænum,
er setti mikinn hita í umræður
þar og varð þess valdandi að for-
seti bæjarstjórnar varð að leyfa
bæjarritara að svara fyrir sig, en
hann hefur ekki málfrelsi á
fundum bæjarstjórnar, svo getur
hitinn í umræðunum orðið mikill.
Iðulega þegar menn eru spurðir
af hverju þeir sæki ekki um hina
eða þessa stöðuna er þeir kæmu
mjög til álita í, verða svörin á
þá leið, að þeir vilji ekki láta
bítast um sig á pólitísku borði,
þar sem menntun og starfs-
reynsla skipta litlu, en pólitísk
flokksskírteini því meiru. Það
verður æ algengara að hæfir
menn sækja ekki um störf hjá
ríki og bæjarfélagi án þess að
tryggja sér fyrst meirihluta í
þeim pólitíska hópi er velur. Trú
fólks á eðlilegri afgreiðslu getur
oft beðið sorglegt skipbrot eins
og fyrrnefnt bréf sýnir, en þar
segir m.a.: „Um leið og ég mót-
Lofsverf framtak
Nú í sumar hefur verið lífg-
að all verulega upp á miðbæ
Akraness með blómakerjum.
Ker þessi eru skemmtileg
nýbreytni, og garðyrkjustjóri
bæjarins á þakkir skyldar fyr-
ir þetta framtak sitt.
Þó svo að meirihluti bæjar-
búa kunni vel að meta þessa
nýbreytni, þá virðist sem
blómaker þessi hafi verið fyr-
ir einhverjum, því viss hópur
(vonandi fámennur) fólks hef-
ur gert sér að leik að velta
þeim um. Sem betur fer hefur
garðyrkjustjóri ekki látið
þetta á sig fá, heldur reist
kerin jafnharðan við og gróð-
ursett í þau á ný.
Sefur þú á
peningum?
Það er óyarlegt að geyma fé eða fjármuni
í misjafnlega traustum geymslum, — hvort
sem er á vinnustað eða undir koddanum. í
Landsbankanum eru peningarnir þínir
varðveittir á öruggan hátt. Sparifjáreign hjá
Landsbankanum tryggir þér handbært fé, ef
óvænt útgjöld ber að höndum^T^
LANDSBANKTNN
Banki allm landsmanna
Þar sem við höfum opnað aftur, eftir
verulegar breytingar, bjóðum við nú veg-
legan matseðil alla daga og öll kvöld.
Matur framreiddur á laugardagskvöldum
frá kl. 19-22. Borðapantanir í síma 2020
frá kl. 17,00.
Verið velkomin.
Hótel Akranes
AKRANESKAUPSTAÐUR
Akurnesingar
Akurnesingar
Þeim gjaldendum, sem ekki eru í skilum
við Bæjarsjóð Akraness með útsvars,-
aðstöðu- eða fasteignagjöld, er bent á að
20. september verða reiknaðir 4*4% drátt-
arvextir á það sem í vanskilum er, og
framvegis 15. hvers mánaðar verða reikn-
aðir dráttarvextir á það sem í vanskilum
er.
Atvinnurekendum er bent á að skila reglu-
lega útsvarsaftekt vegna starfsmanna,
þannig að ekki komi til dráttarvaxtareikn-
ings vegna starfsmanna.
Innheimtustjóri
10