Bæjarblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 5
NY VERBSKRA
Á fundi bæjarstjórnar sl.
þriðjudag var samþykkt ný
gjaldskrá fyrir íþróttahúsið, sem
gildir fram að áramótum. Selt
verður í hvern einstakan tíma
en engin afsláttarkort verða, eins
og verið hefur. Fyrir fundinum
lá tillaga um að verð fyrir ein-
staka tíma yrði kr. 450 fyrir full-
orðna og kr. 160 fyrir börn,
ef keypt yrðu kort með 10 miðum
kostuðu þau kr. 4000 fyrir full-
orðna og kr. 1500 fyrir börn.
Við umræður lýsti Ríkharður
Jónsson þeirri skoðun sinni að
þessar hækkanir stefndu í óefni
og gerðu mörgum fjölskyldum
ókleyft að senda börn sín í
íþróttahúsið. Ákveðið var að
endurskoða gjaldskrána með
tilliti til tillögu Frastar Stefáns-
sonar formanns íþróttabanda-
lags Akraness, þess efnis að
styrkur bæjarins til ÍA yrði
greiddur í formi tíma í íþrótta-
húsinu. Nefnd mun vinna í mál-
inu og á hún að skila áliti fyrir
áramót.
Sá misskilningur virðist hafa
komið upp, að bæjarfulltrúar
töldu sig vera að lækka upphaf-
legu tillöguna að miðaverði.
Samþykkt var að selja inn í
hvern einstakan tíma. V'erð fyrir
fullorðna er kr. 400 og fyrir börn
kr. 150. Hingað til hafa flestir
keypt afsláttarkort og er þetta
verð þeirra í upphaflegu tillög-
unni, þannig að um litla lækkun
er að ræða.
Verðið i Bjarnalaug
Nýlega var samþykkt ný gjald-
skrá fyrir Bjarnalaug. Einstök
gjöld eru nú þannig:
Fullorðnir kr. 360
Börn 160
Gufubað 600
Handklæði, sundföt 300
Kort, fullorðnir 15 miðar 3.300
Kort, börn 15 miðar 1.125
Kort, baðstofa 10 miðar 4.700
Hækun þessi er um 20%.
Sundfólk ÍA. Myndin er tekin á
tröppum Bjarnaiaugar.
Verðlaunamenn
Knattspyrnuráð Akraness hefur gefið farandbikar og verð-
launapeninga sem veittir eru besta leikmanni hvers flokks.
Að loknu íslandsmóti yngri flokkanna völdu þjálfarar og leik-
menn yngri flokkanna þessa leikmenn. Þeir eru:
5. fl. Arnar Svansson (Geirdal).
4. fl. Ólafur Fórðarson (Fórðarsonar).
3. fl. Heimir Guðmundsson (Pálmasonar).
Viðbygging vallarhúss
Vallarhús með búningsher-
bergjum er forgangsverkefni á
íþróttasvæði á Jaðarsbökkum,
segir í fundargerð íþróttavallar-
nefndar.
Mikil þrengsli eru í núverandi
vallarhúsi og hefur t.d. kvenna-
knattspyrna oft verið á hrakhól-
um með búningsaðstöðu. í hinni
nýju viðbyggingu, sem er upp á
tvær hæðir á t.d. að vera félags-
aðstaða á efri hæð. Nefnt hef-
ur verið að sjóður sá er fékkst
við sölu gamla íþróttahússins
verði notaður við fjármögnun til
að byrja með, þannig að bærinn
þurfi ekki að leggja fram eins
mikið í upphafi, en endurgreiði
ÍA lánið síðan á umsömdum
tíma.
Handboltapunktar
Senn hefst handknattleiks-
vertíðin. Æfingar hjá m.fl. karla
hófust í byrjun ágúst, undir
stjórn Jóns Hjaltalín Magnús-
sonar, sem mun þjálfa liðið í
vetur. Mfl. karla mun innan
skamms, nánar tiltekið 29. sept.
nk. halda í æfingabúðir til Fær-
eyja. Par verður dvalið í viku-
tíma og æft tvisvar til þrisvar
á dag auk þess sem leiknir verða
þrír til fjórir leikir. Sunnudaginn
16. september er hraðmót í
íþróttahúsinu með þátttöku liða
frá HK og Fylki auk ÍA. Jafnhliða
hraðmótinu fer fram kökubasar
í anddyri íþróttahússins, en ágóði
af basarnum rennur í ferðasjóð
leikmanna.
Starfsemi Handknattleiksráðs fer
stöðugt vaxandi. Nú í vetur verða
8 flokkar í íslandsmóti. Tveir
flokkar bætast við frá því í
fyrra, 2. flokkur karla og mfl.
kvenna sem mun leika í 2. deild.
MISTÖK Á MISTÖK OFAN
Tyrfing íþróttavallarins virðist
vera orðin árviss þáttur á verk-
efnaskrá bæjarins. Haustið 1977
skeðu þau mistök að keyrt var
sjávarsandi í stórum stíl á völl-
inn, þó svo að þáverandi vallar-
vörður hafi verið búinn að gera
ráðstafanir til að fá harpaðann
sand á völlinn. Sandurinn var
síðan Iátinn lyggja í hlössunum,
sem voru allt að 50 cm þykk.
Vorið 1978, þegar farið var að
fjarlægja sandinn kom í Ijós að
völlurinn var stórskemmdur.
Grasið var dautt á stórum köfl-
um, hafði hreinlega kafnað. Nú
skyldi ætla að menn hafi lært
af mistökunum og myndu sýna
fyllstu gætni við endurbæturnar.
Síðasti leikurinn 1978 var leik-
inn í ágúst og hefði nú átt að
drífa verkið áfram og treysta á
gott haust. Annað virtist upp
á teningnum, verkið tók tvo mán-
uði og eitt allra besta haust í
langan tíma leið hjá, án þess
að taka tillit til verkefnahraða
bæjarins.
Nú skildi ætla að tveir mánuðir
og verk upp á 10 milljónir gæfi
eitthvað í aðra hönd. Það var
nú aldeilis ekki, völlurinn hefur
verið í nær óleikhæfu ástandi í
allt sumar og liggur nú fyrir að
tyrfa hann upp á nýtt. Á bæjar-
stjórnarfundi sl. þriðjudag var
samþykkt að fara að tillögum
garðykjustjóra bæjarins og leggja
á völlinn úrvals torf. Kostnaðar-
áætlunin er upp á þrjár milljónir
króna. Það var ósköp eðlilegt að
bæjarfulltrúarnir Hörður Pálsson,
Ríkharður Jónsson og Guðjón
Guðmundsson stæðu upp á fund-
inum og lýstu furðu sinni á
framkvæmdum við íþróttavöll-
inn og að þetta mál virtist vera
orðinn árviss þáttur í þeirra
störfum. Fram kom í máli þeirra
að menn virtust litla ábyrgð bera
á gjörðum sínum. Þeir lögðu allir
áherslu á að verkinu yrði hraðað
sem kostur væri. Við tökum und-
ir þetta með þeim þremenning-
um og vonum að skaparinn gefi
okkur gott haust svo að ræturn-
ar nái að festa sig, og völlur-
inn verði tilbúinn næsta sumar.
ÁKRANÉS - F.C. BARCE ÍÓnÁ
Á Laugardalsvelli miðvikud. 26. september kl. 17.30
5