Bæjarblaðið - 15.09.1979, Page 7
rúður heilar, læsingar og rofar
virk, hreinlætis- hitunar- og eld-
hústæki í lagi, svo og vatns- og
frárennslislagnir. Verður leigu-
taki að gera leigusala skriflega
grein fyrir aðfinnslum sínum
innan 14 daga frá afhendingu,
svo og innan sama tíma vegna
galla, er síðar kunna að koma
fram á íbúðarhúsnæðinu.
Þrátt fyrir framangreindar
reglur er unnt að semja um ein-
staka liði, svo sem um lagfær-
ingar leigutaka á einstökum
hlutum hins leigða. Slíkt sam-
komulag verður hins vegar að
vera skriflegt og skráð á leigu-
málann svo að gilt sé.
4.7. Viðhald húsnæðis.
Um viðhald leiguhúsnæðis
gilda ýmsar reglur. Skal leigutaki
annast á sinn kostnað viðhald á
rúðum, læsingum, vatnskrönum,
raftenglum, rafmagnsinnstungum
raftækjum og hreinlætistækjum.
Jafnframt verður leigutaki að
bæta allt tjón á húsnæðinu og
fylgifé þess, sem verður af völd-
um hans sjálfs, heimilisfólks
hans eða þeirra manna, sem
hann hefur leyft afnot af hús-
næðinu eða umgang um það.
Leigusali skal þó ætíð bæta það
tjón sem er bótaskylt samkvæmt
skilmálum venjulegrar húseig-
endatryggingar, hvort sem slík
trygging er til staðar eða ekki.
Rétt er því fyrir leigusala að
kaupa ætíð slíka tryggingu.
Annað viðhald en það sem
hér hefur verið nefnt, er leigu-
sala skylt að annast á sinn kostn-
að, utan húss sem innan. Hann
skal m.a. halda hinu leigða hús-
næði í leigufæru ástandi, svo
sem með því að láta mála það,
endurnýja gólfdúka og teppi eða
annað slitlag með hæfilegu milli-
bili, allt eins og góðar venjur og
viðhald húsnæðis segja til um.
Telji leigutaki viðhaldi ábótavant
getur hann skorað á leigusala
að bæta úr, og bætt úr sjálfur
á kostnað leigusala, ef áskoran-
ir bera ekki árangur. Ef leigu-
máli er gerður til lengri tíma en
tveggja ára er heimiit að semja
um að leigutaki annist á sinn
kostnað viðhald innan íbúðar að
hluta eða öllu leyti. Skulu slík
ákvæði skráð í leigumálann svo
að gild verði tekin.
4.8. Greiðsla reksturskostnaðar.
Fram til þessa hafa gilt óljós-
ar reglur um greiðslu reksturs-
kostnaðar leiguhúsnæðis, sér-
staklega þó þegar um íbúðir í
fjölbýlishúsum hefur verið að
ræða. Nú eru hins vegar settar
um þessi atriði fastar reglur.
Skal leigutaki t.d. greiða fyrir
notkun vatns, raímagns og hit-
unarkostnað, einnig í sameign,
svo og kostnað við sameiginlega
ræstingu og aðra umhirðu í fjöl-
býlishúsi. Einnig greiðir hann
leigu til veitustofnana fyrir mæla
og annan slíkan búnað.
Leigusali greiðir hins vegar öll
fasteignagjöld svo og sérstök til-
lög til sameiginlegs viðhalds eða
endurbóta á húseign eða lóð fjöl-
býlishúss. Einnig skal leigusali
greiða kostnað við hússtjórn, en
allmikil brögð hafa verið af því
að leigutakar hafi verið látnir
greiða þau gjöld til þessa. Far
sem veitustofnanir innheimta
sérstök fastagjöld eða árgjöld án
beinna tengsla við vatns- eða
orkukaup, skulu slík gjöld einnig
greidd af leigusala. Frátt fyrir
ofangreind ákvæði er heimilt að
skipta reksturskostnaði með öðr-
um hætti en að ofan greinir, ef
leigumáli er gerður til lengri
tíma en tveggja ára.
5.0. Gildistaka og fleira.
Hér að framan hafa verið rakin
helstu atriðin í nýgerðum lögum
um húsaleigusamninga og því
staðfesta samningsformi sem
samið hefur verið á grundvelli
þeirra. Ýmiss önnur atriði mætti
hér nefna til viðbótar, svo sem
umgengnisskyldur og réttindi
þeim tengdum, og ákvæði um
leigumiðlanir, úttektarmenn og
frh. á bls. 11.
Öðru hverju skjóta upp koll-
inum manna á meðal, um-
ræður um hvort búseta hinn-
ar fámennu þjóðar á íslandi
sé ekki á misskilningi byggð.
Helstu rök þeirra, sem svo
telja eru gjarnan þau, að efna-
hagslegt sjálfstæði þjóðarinn-
ar fái ekki staðist mikið leng-
ur, þrátt fyrir tilraunir og
stjórn viturra og langmennt-
aðra manna. Náttúruauðlindir
landsins og sjávarins gangi
óðum til þurrðar og lega lands
ins sé á mörkum hins byggi-
lega heims vegna óstöðugr-
ar og kaldrar veðráttu.
Ljóst er allavega að fjar-
lægðin til annarra landa er
okkur dýrkeypt og til erfið-
leika á mörgum sviðum í
ofurkapphlaupinu við hina
samfélagslegu velmegun.
\
En vel á minnst það var
raunar um veðrið sem ég ætl-
aði að ræða að þessu sinni.
Við íbúar suður og vestur-
lands höfum nú á nýliðnu
sumri loksins notið þess að
lifa tiltölulega gott sumar,
hvað veðurfar snertir, sól-
ríkt og stillt, eftir nokkurra
ára samfellda rigningartíð.
Megum við því vel við una
að sinni.
það skyggir þó á, að sér-
staklega á norðausturlandi
hefur sumarveður undanfar-
inna ára nánast ekki Iátið sjá
sig og hlýtur það að valda
íbúum þar margvíslegum erf-
iðleikum.
Á síðastliðnum vetri mátti
fylgjast með, í dagblöðum,
nokkrum deilum meðal starfs-
manna Veðurstofu íslands um
fyrirkomulag og framkvæmd
veðurfregna og stormaðvar-
ana. En eins og að líkum lætur
un til sjófarenda. Víða erlend-
is tíðkast það að slíkum aðvör
unum er varpað út um strand-
arstöðvar á talbylgjum skipa
og koma að miklu haldi. Við
höfum einnig slíkar stöðvar.
Hitt virðist augljóst að
miða þurfti að gerð tvenns-
konar stormaðvarana við ís-
Skuggi
skrifar
er veðurstofan einhver mikil-
vægasta stofnun landsmanna
á mörkum þessa byggilega
heims og veltur á miklu að
hennar starf sé sem allra
best af hendi leyst.
Heldur þóttu mér skýringar
Veðurstofustjóra í sjónvarpi,
um erfiðleika á birtingu
stormaðvarana léttvægar, það
er ekki endilega t.d. nauðsyn-
legt að rjúfa útvarpsdagskrá
til þess að koma stormaðvör-
land. Annars vegar fyrir opna
báta og minni fiskiskip og
hinsvegar fyrir stærri skip
og aðra sem kynnu að geta
forðast tjón af völdum stór-
viðra.
Það virðist slævandi fyrir
dómgreind nútímamannsins
að hlusta á veðurfregnir til
langframa, þar sem aðeins er
spáð hvassviðri eða stormi,
þegar athygli hans gæti vakn-
að ef hann heyrði nefnt orðið
„stormaðvörun".
Það er því tillaga mín að nú
á næsta vetri taki Veðurstofa
íslands upp gerð tvennskonar
stormaðvarana sem varpað
verði út um strandarstöðvar
Landsímans, þegar ástæða
þætti til. Gætu þær skipst á
eftirfarandi hátt:
Stormaðvörun nr. 1.
Miðað við 6-8 vindstig og
ætlað einkum til aðvörunar
fyrir smærri fiskiskip við
strendur landsins.
Stormaðvörun nr. 2.
Miðað við styrk 8 vindstig
og meira og ætlað öllum
sjófarendum til viðvörunar,
sem og öðrum landsmönnum.
Pá aðvörun þyrfti þá einnig
að senda um ríkisútvarpið.
Slíkt fyrirkomulag á birt-
ingu veðurfregna gæti hugs-
anlega stuðlað að fækkun
alvarlegra sjóslysa við strend-
ur landsins og rennt öruggari
stoðum undir áframhaldandi
búsetu í landinu, auk þess
sem það myndi fyrra Veður-
stofu íslands gagnrýni, sem
e.t.v. er ekki á rökum reist.
Að lokum óska ég Akur-
nesingum og landsmönnum
öllum góðs veðurfars á kom-
andi hausti og vetri.
Skuggi.
7