Bæjarblaðið - 23.01.1981, Síða 7
úr plasti. Nýi báturinn ber nafn
bátastöðvarinnar og heitir Knörr
AK 8. Eigendur eru tveir ungir
Akurnesingar Björn Vilbergsson
og Pétur Jónsson. Stærð báts-
ins er um 10 lestir, en smíði
hans kostaði um 40 millj. g.kr.
Nýr grunnskóli rís af grunni,
en það er Grundaskóli og eru
framkvæmdir hafnar við fyrsta
áfanga hússins. Trésmiðjan Jað-
ar sf. sér um verkið.
Þessi mynd frá byggingu hins
nýja grunnskóla, Grundaskóla.
JÚlí
Hinn 19. júlí var hjólreiða-
keppni endurvakin hér á Akra-
nesi, en þá efndu Bæjarblaðið
og ÍA til veglegrar keppni og
tóku alls 33 keppendur þátt í
keppninni. Keppt var í þremur
hópum: 7-11 ára flokki, flokki 12
ára og eldri og í flokki gírahjóla.
Sigurvegari í yngri aldursflokkn-
um varð Haraldur Ingólfsson en
í þeim eldri Gauti Halldórsson.
í gírahjólaflokknum sigraði Ás-
geir Heiðar úr Reykjavík. Keppn-
in tókst í alla staði mjög vel.
Bæjarblaðið gaf bikara og verð-
launapeninga og sá einnig um
framkvæmd keppninnar ásamt
stjórnarmönnum úr ÍA.
Sjúkrabílssöfnuin gengur all-
vel og höfðu safnast um 1,3
millj. g.kr. um miðjan mánuðinn.
Framkvæmdir við lagningu
dreifikerfis hitaveitunnar eru í
fulium gangi og eru framkvæmd-
ir við 3. áfanga hafnar en það
er mestur hluti niðurskagans.
Um þann áfanga sjá verktakarn-
ir Úlfar Harðarson úr Reykjavík
og Stuðlastál svf., Akranesi.
Norrænt kristilegt skólamót
var haldið á Akranesi um miðjan
mánuðinn og voru þátttakendur
um 300 frá öllum Norðurlönd-
unum. Mótið tókst mjög vel og
settu þátttakendur mikinn svip
á bæjarlífið.
Sá sérstæði atburður átti sér
stað hér skammt undan Akra-
nesi að hraðbáturinn Ötull úr
Borgarnesi og trillubáturinn Blíð-
fari frá Akranesi lentu í árekstri
á þann hátt að hraðbáturinn
þeysti yfir Blíðfara og tók með
sér stýrishús bátsins um leið.
Mildi var að ekki urðu slys á
mönnum við þessar aðfarir, en
eigandi Blíðfara, Böðvar Jóhann-
esson var einn um borð og var
hann staddur við beitningu
fremst í bátnum. Hvað sem
segja má um tilurð þessa at-
burðar, má Ijóst vera að þetta
er einn sérstæðasti árekstur árs-
ins.
Október
Harðar deilur risu í bæjar-
stjórn vegna fyrirhugaðra kaupa
bæjarins á jörðinni Fögrubrekku
í Innri-Akraneshreppi. Kaupverð-
ið var 75 millj. g.kr. og sýndist
sitt hverjum um ágæti þessara
kaupa. Ætlun Akranesbæjar var
að tryggja sér landið undir íbúð-
Fjölbreytt starfsemi var æsku-
lýðsheimilinu Arnardal. Myndin
er þaðan.
arlóðir í framtíðinni. Síðar var
ákveðið að bærinn keypti jörð-
ina og var það samþykkt í bæj-
arstjórn með sjö atkvæðum gegn
tveimur atkvæðum Framsóknar-
manna.
Slæmt ástand ríkti í atvinnu-
málum sökum þess að hrað-
frystihúsið Heimaskagi hafði
verið lokað frá miðjum júlí
vegna hráefnisskorts. Par af
leiddi að um 70 konur voru at-
vinnulausar.
Æskulýðsheimilið Arnardalur
er nú nær fullfrágengið eftir að
neðri hæð hússins hefur verið
tekin í notkun, en þar er m.a.
setustofa, Ijósmyndaherbergi og
ýmiskonar tómstundaaðstaða.
Nóvember
Miklar umræður hafa orðið
um hugsanlega kolabrennslu
Sementsverksmiðju ríkisins.
Bæjarstjórn vill láta kanna
mengunarhættu til hlítar áður
en hún gefur samþykki sitt til
brennslunnar.
Haraldur Böðvarsson & Co hf.
tóku f notkun nýjar og mjög
fullkomnar síldarsöltunarvélar.
Vélar þessar valda gjörbyltingu
í síldarsöltun og breyta um
leið þeirri sérstöku stemningu
sem ríkt hefur í síldarsöltun.
Hróp eins og tunnu! - salt! -
meiri síld! heyrast ekki lengur,
Frá góðri uppfærslu Skagaleik-
flokksins á „Storminum". Akur-
nesingar sóttu mjög illa þetta
góða verk og er það miður.
allavega ekki þar sem söltunar-
vélar hafa tekið við.
Tónlistarskólinn á Akranesi
varð 25 ára 2. nóvember. Við
það tækifæri voru haldnir af-
mælistónleikar í Bíóhöllinni. Á
tónleikunum komu fram bæði
nemendur og kennarar auk gesta
og fluttu áheyrendum tónlist af
ýmsu tagi. Fyrsti skólastjóri
Tónlistarskólans var Anna Magn-
úsdóttir, en núverandi skóla-
sjóri er Jón Karl Einarsson.
Skagaleikflokkurinn hóf sýn-
ingar á Storminum eftir Sigurð
Róbertsson og er þetta 12. verk-
efni leikflokksins frá stofnun
hans. Leikstjórn annaðist hinn
landskunni leikari Gísli Halldórs-
son. Aðsókn að verkinu var því
miður frekar dræm, en að mati
þeirra er leikritið sáu var þetta
eitt jafnbest leikna verkið sem
Skagaleikflokkurinn hefur tekið
fyrir.
Deseraber
1. desember kom hingað til
Akraness nýr sjúkrabíll sem
Rauða kross deild Akraness
hefur staðið fyrir söfnun á árinu.
Bíllinn er af Chevrolett Subur-
ban gerð og er búinn fullkomn-
ustu hjálpartækjum. Koma bíls-
ins til Akraness eru mikil gleði-
tíðindi fyrir okkur bæjarbúa, þar
sem með honum ætti að vera
komin lausn á sjúkraflutnings-
vandamálum okkar. En því er nú
ekki að heilsa vegna þess að
nú er komið upp annað vanda-
mál og ekki minna. Enginn vill
taka á sig kostnaðinn við manna-
hald á bílnum og stendur hann
því ónotaður. Hvort sem bæjar-
félagið eða ríkið tekur að sér
þann kostnað þá er það krafa
bæjarbúa að þetta mál verði
leyst sem allra fyrst því annað
er hreint hneyksli að hinn full-
komni sjúkrabíll skuli ekki vera
til staðar ef slys ber að hönd-
um eða að flytja þarf sjúklinga
á sjúkrahús. í viðtali sem Bæjar-
blaðið átti við Reyni Porsteins-
son kom fram að heildarkostn-
aður við bílinn nemur um 14
millj. g.kr.
Skv. bókum lögreglunnar fór
jólamánuðinn átakalítið fram
sem betur fer, þrátt fyrir erilinn
og innkaupin. Jól og áramót
voru friðsöm og róleg.
Óskast keypt
Getur þú selt bílatalstöð? eða
bílakerru? hringdu þá í sima
1475 eftir kl. 18.30.
Frá hjólreiðakeppni ÍA og Bæjarblaðsins. Keppendur
bíða hér eftir verðlaunaafhendingunni.
Frá síldarsöltun með nýjum vélum hjá HB og Co.
7