Bæjarblaðið - 23.01.1981, Síða 10
Dagvistun aldraðra á Hötða
Að undanförnu hefur verið
unnið að því af stjórn dvalar-
heimilisins Höfða og félags-
málaráði að koma upp aðstöðu
á dvalarheimilinu fyrir dagvistun
aldraðra og finna rekstrargrund-
völl fyrir slíka starfsemi.
Nokkuð er síðan húsnæðisað-
staða fyrir dagvistunina var til-
búin á Höfða, en beðið hefur
verið eftir úrskurði daggjalda-
nefndar um það hvort samþykkt
yrðu daggjöld fyrir dagvistunina.
Nú hefur daggjaldanefnd nýlega
samþykkt daggjöld fyrir dagvist-
un á Höfða og yrðu þau þá
greidd af Tryggingastofnun rík-
isins.
Ætti því ekkert að vera því
til fyrirstöðu að fara að taka á
móti fólki til dagvistunar og er
stefnt að því að dagvistunin
geti hafist í byrjun febrúar.
Úthlutun plássa í dagvistun
verður í höndum félagsmálaráðs,
en reksturinn verður í höndum
stjórnar og /forstöðumanns
Höfða.
Hægt er að sækja um heils-
dags- eða hálfsdagsvistun 5
daga vikunnar og til greina
kæmi einnig að vera t.d. tvo
eða þrjá daga í viku. Miðað er
við að dagvistunin verði opin
frá kl. 8 til 17 og fær fólk þá
þær máltíðir, sem fram eru
reiddar á þeim tíma, sem það
dvelur á staðnum. Þá verður
þeim sem verða á dagvistun gef-
inn kostur á að taka þátt í því,
sem fram fer á dvalarheimilinu
svo sem ýmis konar tómstunda-
iðju og njóta annarrar þjónustu
sem vistmenn á Höfða njóta.
Aðstaða er til þess að fólk í
dagvistun geti lagt sig og hvílst,
ef það óskar eftir því.
Þeim, sem hafa hug á að
sækja um dagvistun á Höfða
er bent á auglýsingu hér í blað-
inu varðandi umsóknir um dag-
vistun fyrir aldraða.
(Fréttatilk. frá Félagsmálastj.)
Húsnœði
Þægileg 2ja herbergja íbúð til
leigu að Skagabraut 2, uppi.
íbúðin leigist með húsgögnum.
Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar á
staðnum.
Skítkast kennarablaðsins
Ritstjórn Dögunar, málgagns
Alþýðubandalagsins, sá ástæðu
til þess í síðasta blaði sínu að
kalla Bæjarblaðið „málgagn
Framsóknarflokksins", en eins
og lesendur Bæjarblaðsins vita
er blaðið algerlega óháð öllum
stjórnmálaflokkum og tekur ekki
flokkspólitíska afstöðu til eins
eða neins. Hitt er annað mál að
í Bæjarblaðið er öllum frjálst að
skrifa og ritstjórn þess dregur
fólk ekki í pólitíska dilka. Það
má vel vera að einhverjir Fram-
sóknarmenn hafi skrifað meira í
blaðið en menn úr öðrum flokk-
um. Er það þá ekki umhugsun-
arefni fyrir liðsmenn annarra
flokka. Þeim er velkomið að
láta skoðun sína í Ijós á síðum
Bæjarblaðsins. Það er nú einu
sinni svo að flokksblöðin koma
einungis út þegar von er á
miklum auglýsingum (Dögun að
vísu 5 sinnum s.l. ár), svo ekki
er vanþörf á blaði án flokkslitar.
Dögun taldi jafnframt að Bæj-
arblaðið og Dögun kæmu bæði
reglulega út og væru ein um
það. Nær hefði verið fyrir þá að
segja að kennarablaðið Dögun
komi reglulega sjaldan út. Af
Bæjarbaðinu komu út 10 tölu-
blöð á s.l. ári en Dögun 5 tölu-
blöð.
Að lokum er gaman að sjá
samsetningu ritstjórnar Dögunar
en þar eru 4 af 6 ritstjórnar-
mönnum kennarar, auk þeirra
skrifuðu 3 aðrir kennarar í síð-
asta blað. Fjölbreytt samsetning
eða er það ekki.
Bókari
Staða bókara á skrifstofu Akraneskaupstaðar
er laus til umsóknar. Upplýsingar um starfið
veitir undirritaður í síma 1320.
Umsóknarfrestur er til 1. febrúar. Skrifleg-
um umsóknum skal skilað á skrifstofu Akra-
neskaupstaðar, Kirkjubraut 8, Akranesi.
Bæjarritari.
Trésmiöjan flkur selur
hluta af húsnæöi sinu
Sá orðrómur hefur gengið hér
um Skaga udanfarið, að Tré-
smiðjan Akur hf. hyggðist draga
úr starfsemi, væri að selja hús
sín og myndi jafnvel segja upp
starfsfólki.
Vegna þessa orðróms hafði
Bæjarblaðið samband við Stefán
Teitsson, framkvæmdastjóra Ak-
urs hf. og spurðist fyrir um
þessi mál.
Stefán kvað engar áætlanir
um samdrátt vera uppi hjá fyrir-
tækinu, frekar væri verið að
færa út kvíarnar. Trésmiðjan
hefði sótt um 2 hektara lóð við
Smiðjuvelli og hyggðist flytja
starfsemi sína þangað. Þá sagði
hann að athafnasvæði trésmiðj-
unnar við Akursbraut væri orðið
allt of Iítið, en lóðin þar er um
V2 hektari.
„Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðja Akraness hf. hefur keypt
af okkur hluta af húsunum við
Akursbraut, en þessar sögur
um uppsagnir og samdrátt hafa
ekki við rök að styðjast", sagði
Stefán jafnframt.
Til sölu
Renault 5 GTL árg. ’80 ekinn
9.000 km. Upplýsingar á Skaga-
braut 2 uppi.
Notuð bráðabirgða eldhúsinnrétt-
ing til sölu. Nýleg eldavél getur
fylgt. Upplýsingar í síma 2204.
Tilboð óskast
Tilboð óskast í húseignina Suð-
urgötu 18 til flutnings eða nið-
urrifs. Upplýsingar í síma 1364.
Ljúffengur þorramatur verður á
boðstólnum á Hótelinu laugardaginn
24. janúar nk. frá kl. 19,00
Dansleikur á eftir til kl. 02,00
10