Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 3

Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 3
Guðjón Krístjónsson: Hátt hreykir heimskur ser og því verður fall hans mikið Sementsverksmiðjan. — Dæmi um atvinnuuppbyggjandi fyrirtæki. Einn flokkur öðrum fremur hefur stært sig af því að vera eini verkalýðsflokkur landsins. En eins og margt er snertir þennan flokk er þessu öfugt far- ið. Þeir segja eitt en fram- kvæma hið gagnstæða. Nýlega hafa komið upp tvö dæmi sem sanna það svo ekki verður um villst að þessi flokk- ur starfar gegn launþegum landsins en ekki með þeim. Flokkurinn styður kaup- skerðingu Eftir „Febrúarlögin" svo- nefndu, sló málgagn þessa flokks því upp í fyrirsögnum sem náðu yfir hálfar forsíður blaðsins, hversu svívirðiieg árás lögin væru á launþega landsins. Forvígismenn flokksins kepptust við að lýsa því yfir, að ríkis- stjórnin væri óvinur launþega númer eitt. Með efnahagsaðgerðum ríkis- stjórnarinnar frá því á gamlárs- dag, styður þessi sami flokkur nákvæmlega eins aðgerðir og voru í „Febrúarlögunum", þ.e. að skerða kaupmátt launa. Þeir styðja það, að ávallt skuli byrj- að á því að níðast á launþegum landsins. Flver er nú orðinn andstæðingur launþega númer eitt? Flokkurinn vill auka atvinnuleysi Undanfarið hefur verið um mikinn samdrátt að ræða í byggingariðnaði, og þar með aukið atvinnuleysi hjá iðnaðar- mönnum. Einnig hefur heyrst um aukið atvinnuleysi á Suðurnesj- um. Til að bæta úr þessu þyrfti að auka, eða jafnvel byrja á nýj- um framkvæmdum hér á Suð- vesturhorni landsins. Þetta er ekki eins auðvelt og menn halda, ef þær framkvæmdir eiga ekki að vera verðbólguhvetjandi. Ein af þeim leiðum sem taldar eru lækka verðbólgu er að draga úr þenslu í þjóðfélaginu með minnkun ríkisútgjalda. Því er einsýnt að ríkið getur ekki staðið að slíkum framkvæmdum frekar en einstaklingar. Eina lausnin virðist því vera að láta einhvern aðila, sem fell- ur ekki inn í hina verðbólgu- hvetjandi þætti þjóðlífsins, standa að slíkum framkvæmd- um. Þessi aðili er fundinn og er reiðubúinn að hefja framkvæmd- ir sem veita myndu fjölda manns atvinnu hvort sem er iðn- aðarmönnum eða verkafólki. Þessar framkvæmdir myndu einnig standa yfir í langan tíma, allt að einum áratug. Flvernig bregst svo þessi flokkur við þessum tilboðum? Flann er algjörlega á móti þeim og notar neitunarvald sitt innan ríkisstjórnarinnar til að koma í veg fyrir þær. Þar með sýnir hann enn á ný í verki, andstöðu sína gegn launþegum landsins. Það leynir sér víst ekki hver þessi flokkur er og hvaða fram- kvæmdir talað er um hér á undan. Framkvæmdirnar eru bygging flugskýla á Keflavíkur- flugvelli og olíubirgðastöð í Flelguvík. Flokkurinn er Alþýðu- bandalagið. Flvernig stendur á því að aft- ur og aftur kýs hluti af laun- þegum landsins þennan flokk? Flokk sem er eins andsnúinn þeim og mögulegt er. Flvenær gera launþegar sér grein fyrir falshátt Alþýðubandalagsins og hætta að styðja það? Flvenær kemur sú stund að enginn Al- þýðubandalagsmaður verður á Alþingi? Vonandi sem allra allra fyrst og þá verður fall þess mikið. Akraneskaupstaður Fasteignaeigendur flkranesi athugiö! Seinni gjalddagi fasteignagjalda er 15. maí. Eindagi er 1. júní. - Gerið skil Dráttarvextir eru þeir sömu og hjá innláns- stofnunum. Bœjarskrifstofan er opin mánudaga til föstu- daga frá ki. 9.30-12.00 og 12.30-15.30. I nnheimtustjóri Akraneskaupstaðar. 3

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.