Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 12

Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 12
Aukin þjónusta hér í bœ Handboltafölk verðlaunað Nýlega opnaði Karl Ragnarsson verslun og innrömmunarverk- stæði að Skólabraut 25a, þar sem verslunin Ásberg var áður til húsa. Karl hefur um árabil stundað innrammanir með sjó- mennsku en hefur nú alfarið snúið sér að þessari iðju. Auk þess að ramma inn myndir, hefur Karl á boðstólnum ýmsar tegundir mynda, eftirprentanir og fleira. Bæjablaðið óskar Karli til hamingju með verkstæðið og verslun- ina og hvetur Akurnesinga til að notfæra sér þjónustu Karls. Handknattleiksvertíðinni er nú alveg lokið. Fyrir skömmu verð- launaði Handknattleiksráð leikmenn flokkanna 1980-81. Á meðfylgj- andi mynd eru leikmenn yngri flokkanna, sem fengu verðlaun sín afhent í hófi í Arnardal. Pjálfarar hvers flokks útnefndu besta leikmann ársins. Verðlaunahafarnir eru, talið frá vinstri: Hilmar Barðason, 5. fl. dr., Lárus Heiðarsson, 4. fl. dr., Pétur Björnsson 3. fl. dr. og Sigurlín Jónsdóttir 3. fl. st. Eldri flokkarnir héldu síðan sitt lokahóf á Hótel Akranesi fyrir skömmu og þar voru veittar viðurkenningar til leikmanna eldri flokkanna. Fyrir valinu urðu: Pétur Ingólfsson mfl. karla, Kristín Brandsdóttir mfl. kvenna, Kristín Reynisdóttir 2. fl. kvenna og Hallgrímur Rögnvaldsson 2. fl. karla. Frá Krabbameinsfélaginu Aðalfundur Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis var hald- inn 4. maí sl. Eins og undanfarin ár hefur félagið staðið fyrir rekstri leit- arstöðvar, þar sem á síðastliðnu ári voru skoðaðar 514 konur. Ákveðið hefur verið að halda almennan fræðslufund um krabbameinsvarnir í síðari hluta maímánaðar, og verður fundur- inn auglýstur síðar. Kaffisala verður á fundinum og eru bæjarbúar eindregið hvattir til þess að koma á fund- inn. (fréttatilkynning). AKRANESKAUPSTAÐUR Starf bókavarðar Auglýst er laust til umsóknar starf bókavarð- ar (forstöðumaður) við Bæjar- og héraðs- bókasafnið á Akranesi. Upplýsingar um starfið veitir formaður bóka- safnsstjórnar, Önundur Jónsson, sími 2268. Umsóknarfrestur er til 20. maí 1981. Bókasafnsstjórn. Bæjarblaðið eykur nmsvifin Prentsmiðjan Prentbær sf., sem m.a. hefur prentað Bæjar- blaðið undanfarin ár, mun hætta störfum á næstu dögum. Bæjarblaðið hefur hingað til haft sitt aðsetur hjá Prentbæ, afgreiðslu o.fl. en er nú á hrak- hólum með húsnæði fyrir þá starfsemi. Fjölmargir bæjarbúar hafa undanfarið spurt útgefend- blaðsins hvort það hætti að koma út þegar Prentbær hættir. Því er til að svara að Bæjar- blaðið er síður en svo hætt að koma út og er jafnvel ráðgert að fjölga útkomudögum. En sem sagt, stóra málið nú er að hús- næði vantar fyrir ritstjórnar- skrifstofu og afgreiðslu. Akranes - Nærsveitir! Arabia salerni kr. 1.896,00 Handlaugar, 2 stærðir kr. 382,00 og 340,00 Z-brautir — kappar — borðar og hjól Verkfæri — spónaplötur og m.m. fl. TrésmiSja Sigurjóns & Þorbergs hf. Byggingavörudeild sími 2722 Þjóðbraut 13 Akranesi. 12

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.