Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 4

Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 4
Litið í Fjárhagsóœtlun 1981 Vormynd frá Akranesi. Ljósm.: Ö.J. Fjárhagsáætlun Akraneskaup- staðar var samþykkt í mars sl. og verður hér litið á helstu liði áætlunarinnar og eru allar tölur í nýkrónum. Niðurstöðutölur á teknalið eru kr. 30. 600.000,00. Stærstu tekju- liðir eru útsvars- og aðstöðu- gjöld 21.550.000,00. Fasteigna- gjöld eru 3.350.000,00, framlag úr jöfnunarsjóði er 3.800.000,00 og vaxtatekjur og aðrar tekjur nema 1.900.000,00. Áætlað er að rekstur bæjar- ins og stofnana hans nemi um 21.068.550,00. Helstu rekstrar- gjöld bæjarins eru: Félagsmál 5.085.650,00, þar af í lýðhjálp og lýðtryggingar kr. 2.788.500,00 Til fræðslumála kr. 4.303.000,00 þar af fær Fjölbrautaskólinn 1.086.500,00. Meðferð bæjarmála 3.053.780,00 og þar er bæjar- skrifstofan stærsti liðurinn kr. 1.681.100,00. Framkvæmdir á vegum bæjar- ins á árinu 1981 eru áætlaðar 7.859.450,00, og er þeim tví- skipt í fjárhagsáætluninni þ.e.a.s. gjaldfærð fjárfesting sem er til gatnagerðar og tækja- kaupa og eignfærð fjárfesting sem eru varanlegir rekstrarfjár- munir. Sundurliðun á helstu fram- kvæmdum bæjarins er sem hér segir: Gatnagerð Aðalverkefnin við malargötur eru lagning síðari hluta Jörund- arhoits og lagning malarlags (slitlags) á fyrri hlutann. Áætl- aður framkvæmdakostnaður við malargötur og holræsi er kr. 1.800.000 og við bundið slitlag kr. 1.732.950. Leiguíbúðir Á þessu ári mun Trésmiðjan Akur hf. afhenda 8 íbúðir sem samið var um byggingu á sam- kvæmt lögum um sölu- og leigu- íbúðir. Gert var ráð fyrir að selja 6 íbúðanna. Pá er áætlað að hefja byggingu fleiri íbúða samkv. þessum lögum. Grunnskólinn Vegna þess hve fjárveitingar á fjárlögum ríkisins til Grunda- skóla eru knappar, er fjárhags- áætlun miðað við að grunnskól- inn starfi með sama sniði út ár- ið, þó er gert ráð fyrir nokkr- um rekstrarkostnaði ef úr rætist með framkvæmdafé, svo hægt verði að taka einhvern hluta Grundaskóla í notkun fyrir árs- lok. Framlag bæjarins til Grundaskóla er kr. 1.050.000. Fáist viðbótarframlag til bygg- ingarinnar af hálfu ríkisins, er nægi til þess að taka hluta skólans í notkun á árinu, er viðbótarframlag háð því skilyrði kr. 500.000. Reksturskostnaður við grunnskólann er áætlaður kr. 2.123.200. F j ölbr autaskólinn Nemendur Fjölbrautaskólans á vorönn eru liðlega 450 og hefur fjölgað verulega frá því árið áð- ur og gera má ráð fyrir nokk- urri aukningu að nýju næsta haust. í skólanum er efsti bekk- ur grunnskólans til húsa og und- ir stjórn Fjölbrautaskólans, u.þ.b. 100 nemendur. Ríkissjóður greið- ir 50% af rekstrarkostnaði Fjöl- brautaskólans á móti bæjarsjóði. Á fjárhagSáætlun er stofnbúnað- ur Fjölbrautaskólans kr. 300.000. Framlag þetta er mótframlag bæjarsjóðs vegna byggingar verknámshúss við Fjölbrauta- skólann. Dagvistunarstofnanir Framlag til dagvistunarstofn- anna á fjárhagsáætlun er kr. 190.000,00 og er það áætlað til að Ijúka framkvæmdum við leikskólann við Skarðsbraut og mótframlag til byggingar nýs dagheimilis. Gert hefur verið ráð fyrir því í viðbyggingu við Skarðsbrautarleikskólann Rekstr- arkostnaður við leikskólana þrjá er áætlaður um 1.437.700,00. Sjúkrahús Heilsugæslustöð Þarna er framlag bæjarsjóðs kr. 120.000,00 en af fjárlögum ríkissjóðs er áætlað kr. 650.000. Fjármagnið verður notað til tækjakaupa og áframhaldandi uppbyggingar á Sjúkrahúsinu. Varðandi heilsugæslustöð skal upplýst að skv. heilbrigðislög- um greiðir ríkissjóður laun fast- ráðinna heilsugæslulækna, hjúkr- unarfræðinga og Ijósmæðra. Sveitarfélög greiða annan kostn- að, þar með talið Iaun sérfræð- inga og annars starfsfólks. Að- kallandi er að fá sem fyrst ráð- inn þriðja heilsugæslulækninn að stöðinni. Æskulýðsmál Fjárveiting til æskulýðsstarfs er hækkuð úr 140.000,00 í 456. 550,00 kr. Fjárveiting þessi er heildarfjárveiting til æskulýðs- nefndar og verður notuð til að standa straum af kostnaði vegna æskulýðsstarfsemi á vegum nefndarinnar, Iaunum starfs- manns, rekstri og viðhalds Arn- ardals og til annarra verkefna á vegum nefndarinnar. Eldvarnir Búið er að innrétta tækjabíl- inn sem kom fyrir rúmu ári. Nýr öflugur dælubíll er í pöntun og er hann væntanlegur á árinu. Fjármagn til kaupa á dælubíln- um er kr. 550.000,00. íþróttavöllur Gert er ráð fyrir byggingu tveggja nýrra búningsklefa við íþróttavallarhúsið og er áætlað til þess verks kr. 400.000,00. Einnig er gert ráð fyrir að hefja undirbúning að byggingu nýrrar sundlaugar. Til hennar eru veitt- ar kr. 100.000,00. Höfnin Gert er ráð fyrir 50% hækk- un á tekjum hafnarinnar á árinu. Á sl. ári var unnið að grjótgarði í Lambhúsasundi. Nokkuð vant- aði á að fjármagn fengist til framkvæmdarinnar og verður að greiða upp bráðabirgðalán sem fengust í þessu skyni. Fjárveiting á fjárlögum ríkis- ins er alls 2.275.000,00 þar af 2.050.000,00 til framkvæmda í Lambhúsasundi, hluti af þeirri fjárhæð er til greiðslu fram- kvæmda frá fyrra ári. Fram- kvæmdir sem stefnt er að, eru að byggja grjótvörn meðfram þró S.F.A. til að minnka hreyf- ingu í höfninni. Þörf er á miklu fjármagni til viðgerða á grjót- varnargarðinum er varð fyrir miklum skemmdum í óveðri er gekk yfir.í febrúar s.l, Eins og sjá má af þessari upptalningu er ýmislegt á döf- inni hjá Akranesbæ, eins og vera ber í ört vaxandi bæjar- félagi. Húsnœði Óskum eftir að taka á leigu litla ibúð eða tvö herb. með eidhús- og hreinlætisaðstöðu frá 1. sept. til 31. maí. Fteglusemi heitið. Upplýsingar í síma 1988 ATVINNA Óskum eftir að ráða vana bifreiðastjóra með meirapróf. 'ÞORGEIRiHELGÍi1 STEHPUSTOÐ RHRRHESl —*......■imiinnr” Suðurgötu 17, Akranesi Símar: 2390 - 2590 - 1494 - 1830 4

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.