Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 14

Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 14
Bœiorblodid 7. maí 1981. Verð kr. 5,00. Lionsklúbbur Akraness tuttugu og fimm ára Lionsklúbbur Akraness hélt upp á 25 ára afmæli sitt laugar- daginn 25. apríl sl., en klúbbur- inn var stofnaður 22. apríl 1956. í Lionsklúbbi Akraness eru nú Um 60 félagar en stofnfélagar voru 15 og eru 5 þeirra enn starfandi í klúbbnum. Fyrsti for- maður klúbbsins var Ólafur heit- inn Sigurðsson, útgerðarmaður, en núverandi formaður er Gunn- ar Elíasson, verslunarmaður. Fjölmenni var á afmælisfundi Lionsklúbbsins og voru honum fluttar kveðjur og gjafir víða að. Nánar verður sagt frá afmæl- isfundi Lionsklúbbsins og starf- semi klúbbsins í næsta tölublaði Bæjarblaðsins, sem út kemur í lok maímánaðar. Meðfylgjandi myndir tók Sigurbjörn Guð- mundsson á afmælisfundinum. „Og trú og frú“ í fundargerð jafnréttisnefndar Akraness frá 30. mars sl. mátti lesa eftirfarandi: „Samþykkt var að senda bæjarritara bréf og benda honum á, að óviðeigandi er, að gefnar skuli út opinberar fundargerðir þar sem aðeins karlmenn eru nafngreindir, en ritað einungis „og frú, og frú“ þegar um kvenmenn er að ræða (sjá fundargerð nr. 537 frá Höfða).“ Við skulum vona að bæjar- ritari taki þessa athugasemd tiL greina, en þó ekki þannig að hann fari að rita „og eiginmað- ur“. Fimm nefndarmenn sátu þennan fund jafnréttisnefndar, fjórar konur og einn karlmaður, svo það er víða pottur brotinn í jafnréttismálum, en við skulum samt vona að jafnréttið sé þar í hávegum haft. m. Bernaisósu, salatbar, skorið í salnum. Verð alls kr. 140 Þrír af stjórnarmönnum Lionsklúbbs Akraness: Guðmundur Pálma- son, ritari, Gunnar Elíasson, formaður og Ásmundur Jónsson, gjald- keri. í næsta blaði Bæjarblaðsins kemur viðtal við þá féiaga. Styrkir til félagsmála á fjárhagsáætlon 1981 Félag Krónur Barnastúkan Stjarnan 2.700 Bókasafn Sjúkrahúss Akraness 1.500 ÍA v/íþróttahúss 150.000 ÍA starfsstyrkur 15.000 K.F.U.M. og K. v/æskulýðsstarfs 8.000 K.F.U.M. og K byggingastyrkur 10.000 Kirkjukór Akraness v/hljómplötu 10.000 Kirkjukór Akraness starfsstyrkur 15.000 Sumarbúðir að Ölver 4.000 Samband borgfirskra kvenna 1.500 Skátafélag Akraness, starfsstyrkur 8.000 Skátafélag Akraness, byggingastyrkur 10.000 Skjalasafn Akraness 5.000 Slysavarnadeildin Hjálpin v/björgunarsveitar 18.000 Sögufélag Borgarfjarðar 22.500 Tónlistarfélag Akraness 6.000 Útvegsmannafélag Akraness v/talstöðvarþjónustu 3.300 Karlakórinn Svanir 11.000 Skagaleikflokkurinn 15.000 Sigurfarasjóður 22.500 Taflfélag Akraness 2.000 Vernd 1.500 Styrkir til kennara 3.000 Golfkl. Leynir v/húsakaupa og tjaldstæða 5.000 Norræna félagið 4.000 Hestamannafélagið Dreyri v/unglingastarfs 7.500 Til ritunar skólasögu 25.000 Skógræktarfélag Akraness 5.000 Lúðrasveit 8.000 Samtals 400.000 Ráðinn byggingafulltrúi Fyrir skömmu voru opnaðar umsóknir um starf bygginga- fulltrúa hjá Akraneskaupstað. Eftirtaldar umsóknir bárust: Guðmundur Jónsson, trésmíða- meistari Akranesi, Skúli Lýðs- son, byggingafræðingur ísafirði og Stefán Magnússon, trésmíða- meistari Akranesi. Bæjarstjórn samþykkti að Skúli Lýðsson yrði ráðinn bygg- ingafulltrúi. Húsnæði óskast Bæjarblaðið óskar eftir húsnæði til leigu fyrir ritstjórnarskrifstofu og afgreiðslu. Upplýsingar gefa Haraldur Bjarnason, sími 2774 og Sigþór Eiríksson, sími 1919.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.