Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 8

Bæjarblaðið - 07.05.1981, Blaðsíða 8
Hvers á höfnin að gjalda? frh. af bls. 5 að með jarðýtu og minnti þetta þá helst á afleggjara að sveita- bæ, (þó varla hafi verið um æf- ingu að ræða fyrir Fögrubrekku- afleggjarannj síðan tók veðrið við með úrkomu og rennsli sem færði ofaníburðinn í höfn- ina. Þarna var um þetta alkunna bráðabirgðakák að ræða, sem sjá má alltof víða. Far er pen- ingum hent í einskisnýt verk eftir duttlungum manna, sem ekki virðast hafa vit á því sem þeir eru að vinna. Nú mun eiga að breyta stefnu efsta hluta bryggjunnar og nota í uppfyll- ingu nokkurra milljóna kerbotn sem flanað var út í að steypa með sýndarmennsku áhuga, og var svo ekki hægt að nota eins og frægt var á sínum tíma (nokkurs konar Kröfluaðferðj. Á fremsta hluta hafnargarðs átti að koma Ijósamastur sem búið er að liggja hjá Rafveit- unni svo árum skiptir. En svo mega menn sem þarna vinna við afgreiðslu skipa og báta, vera í hálfgerðu myrkri sem gæti boðið hættunni heim, þar sem bryggjukantar eru lágir og eru næstum í kafi þegar snjór og krap er svo menn geta varla fótað sig við að taka á móti þungum landfestum skipa, þar sem litlu hefur mátt muna að slys hlytist af. Þetta ófremdar- ástand, sem sjá má á um 120 m viðlegukanti er og hefur verið til skammar, er hjá einni tekju- hæstu höfn landsins sem mik- ið hefur verið gumað af. Það sem hér hefur verið drep- á er lítið brot af því sem blasir við, en ekki er hægt að fram- kvæma að því er virðist sök- um fjárskorts. En þess má geta sem gert er þó ekki sé til fyrir- myndar. Á sl. ári, var hafnsögu- bátur tekinn á land til viðgerð- ar sem tók 4 mánuði enda unn- ið á tveimur stöðum með til- heyrandi dýrum flutningum á milli staða. En svo skeður það, að það sem unnið var á fyrri staðnum var rifið burt á þeim seinni. Þar fuku kannski nokk- ur þúsund. Hvað klössunin hefur kostað er ekki vitað, en sökum langrar frátafar hafnsögubáts voru greiddar hátt í 2 millj. gkr. fyrir bát og menn í hans stað, en nóg um það, hafnarsjóður borgar brúsann og enginn segir neitt, enda ekki hægt að segja að ráðamenn þvælist fyrir á þeim stöðum sem unnið er á vegum bæjarins. Nú í vetur varð höfnin fyrir stórtjóni en var þó vel sloppið hjá því ef brim hefði fylgt þessu mikla veðri. Enmitt þetta óttuðust menn sem hér þekkja til, að gæti komið fyrir þegar þeir sáu rusl- ið sem í þetta var keyrt og kallað var kjarni. En fræðingar áttu í fórum sínum teikningar sem skyldi halda og mönnum var bent á. Það ætti því að vera hverjum manni Ijóst, sem um þessi mál Björn Pétursson: Hin nýja stétt í blaðinu Dögun hefur verið tekin upp sú stefna af ritstjórn- inni að reyna á lævísan hátt að ata auri á mannorð samborgar- anna. í fersku minni er árás á lngjald Bogason, en nú er það heil ætt, Grundarættinn — sem vega skal að. Til áréttingar er rétt í upp- hafi að geta hverjir þetta eru, en það eru börn Emilíu og Þórð- ar heitins Ásmundssonar, tengdabörn og niðjar þeirra. Það virðist tilgangur smá- klausu á öftustu síðu 3. tbl. Dögunar að ófrægja félagsmála- störf þessa fólks á liðnum árum, eða gefa í skyn að þetta fólk hafi verið með niðurrifsstörf á því sviði, hvað má ekki lesa út úr síðustu málsgrein klausunn- ar Mér er því spurn: Vilja kven- félagssamtökin hér á Akranesi samþykkja að störf Grundar- systra hafi verið til óþurftar á liðnum árum? Telur íþróttahreyf- ingin að störf Grundarættarinn- ar þar hafi verið til óþurftar? Hvaða dóm leggja bæjarbúar á öll félagsstörf Jóns heitins 8 Árnasonar, Alþingismanns, auk starfa hans til að afla fjár til Sjúkrahúss Akraness, hafnar- gerðar hér og svo margs fleira til uppbyggingar Akraness. Þau munu fá félög hér á Akranesi sem ekki hafa notið félagslyndi og starfs fólks af Grundarætt- inni. Það er harkaleg árás, sem þetta félagslynda fólk verður fyrir í Dögun og virðist tilgang- urinn augljós, — að bola þessu fólki frá með því að skapa tor- tryggni á störf þeirra. Það kemur manni spánskt fyr- ir sjónir að sjá í Dögun einn bæjarfulltrúann gefa öðrum bæj- arfulltrúum og samstarfsmönn- um sínum siðgæðis-vottorð, og stingur þetta í stúf við orðafar Jóhanns Ársælssonar sem sýnir hógværð og kurteisi eins og svo margir aðrir sem skrifað hafa í blöð Alþýðubandalagsins á Akranesi nú og fyrr, en nú virðist risin ný stétt innan þessa flokks, sem hefur þörf fyrir að upphefja sjálfa sig með því að reyna að traðka á oðrum. hugsar í alvöru að þörf er að á verði breyting og nýta verður alla þá tekjumöguleika sem höfnin á með réttu, því mörg verkefni bíða. Hefðu ekki menn komist þar í með fingurna og unnið höfninni það óþurftarverk sem þeir áttuðu sig ekki á hvaða afleiðingar myndu hafa þeim til lítils sóma eða álits- auka. Vonandi erum við Akur- nesingar einir á báti með að eiga slíka afreksmenn sem þannig vinna byggðalagi sínu og einni okkar dýrmætustu eign, höfninni. En vissulega er ekki von á góðu á meðan ráðamenn telja að höfnin standi svo vel að hana muni ekkert um jafnvel tugi milljóna gkr. tekjumissi, þó mannvirkin tali öðru máli ef skoðuð eru. Þess vegna er ekki óeðlilegt að menn velti fyrir sér spurn- ingum og langi til að vita. í fyrsta lagi, hvort ráðamenn séu staðráðnir í að halda áfram á sömu óheillabraut hvað sem fjárþörf hafnarinnar líður,. og hvaða áföllum sem hún verður fyrir. í öðru lagi, hvort það sé í þeirra augum meira virði fyrir Akranes og þá dýrmætu eign sem höfnin er og hefur átt sinn stóra þátt í að skapa þá vel- megun sem hér hefur verið með aðstöðu fyrir þróttmikið atvinnu- líf, að hún sé svipt tekjum í sambandi við Akraborg í vax- andi mæli með sömu aðferð og gert hefur verið en horfa á hafnarmannvirkin í stöðugt versnandi ásigkomulagi vegna getuleysis. Eiga skattgreiðendur að trúa því að ráðamenn séu Akranes - Nœrsveitir! Leðurstólar — Furu sófasett og Hornsófar Eldhúsborð og pinnastólar 6 gerðir Svefnbekkir, 3 gerðir Skrifborð og stólar Veggskápaeiningar í unglingaherbergi Stereoskápar, 4 gerðir Fataskápar í einstaklingsherbergi Eins manns rúm með stereoútvarpi og klukku Ávallt eitthvað nýtt STOFAN Bárugötu 21 — Sími 1970 svo heillum horfnir að þeir sjái ekki hvert stefnir. Það var hygginna manna hátt- ur að fara vel með og gæta þess sem aflað var og mönnum var trúað fyrir og þótti betra hjá sjálfum sér að taka eftir því sem ástæður leyfðu. Það er liðin tíð eins og bent hefur verið á, en meira hugsað um snobb og allslags vitleysu og leikaraskap sem tilheyrir nú- tíma kerfi, hvort sem fjárhagur leyfir eða ekki. Fylgifiskur þess hugsunarháttar eru fleiri ferðir í lánastofnanir til að kría út lán sem kallar svo á hækkandi skatta á almenning til að geta staðið í skilum og dugir kannski ekki til. Þetta vrðist vera það lögmál sem eftir er dansað nú á tímum. Þeir sem ekki vilja sætta sig við þann hrunadans eru taldir gamaldags eða kannski annað verra. Af því sem hér hefur verið sagt, finnst mér ráðamenn gætu tekið sér í munn orð séra Sig- valda í Manni og konu: „Nú held ég að sé kominn tími til að biðja Guð að hjálpa sér“. Húsnœði Fjölbrautaskólakennara vantar 4 -5 herbergja íbúð til leigu sem allra fyrst. Getur greitt u.þ.b. V2 ár fyrir fram. Upplýsingar i síma 2598 og í Fjölbrautaskól- anum sími 2544. Til sölu sem ný KPS eldavél. Upplýs- ingar í síma 2204. ÓDÝRT! Happy stólar og borð Skápaeiningar frá kr. 944,00 hver eining. Til sýnis að Sóleyjargötu 6, Bólsturverkstæði.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.